Geir Jón um dómsmálaráðherra: „Það er ekki hægt að treysta svona fólki“

Fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks seg­ist ekki geta stutt flokk­inn vegna stöðu lög­gæslu­mála undir stjórn Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Hann segir ljóst að eitt­hvað muni fara úrskeiðis vegna mann­eklu og fjár­skorts.

Geir Jón Þórisson
Geir Jón Þórisson Fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn segir stöðu lög­gæslu­mála mjög alvar­lega. Mynd: Pressphotos

Geir Jón Þórisson, fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist ekki geta stutt flokk­inn vegna stöðu lög­gæslu­mála undir stjórn Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Ljóst sé að eitt­hvað muni fara úrskeiðis vegna mann­eklu og fjár­skorts. „Það er ekki hægt að treysta svona fólki til að halda utan um svona mik­il­vægt mál­efni, svo ég tali um hana sér­stak­lega,“ segir Geir Jón.

Dóms­mála­ráð­herra hélt því fram í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 á mánu­dag að aldrei hefði jafn miklum fjár­munum verið varið til lög­gæslu­mála og nú. Aukning á fjár­heim­ildum hefði aldrei verið eins mikil og frá 2014 til dags­ins í dag. Full­yrð­ingar Sigríðar stang­ast á við opin­berar tölur um fjár­veit­ingar til lög­gæslu, bæði rík­is­reikn­inga og fjár­lög. Í umsögn um fjár­mála­áætl­un fyr­ir árin 2018 til 2022 lýsti rík­is­lög­reglu­stjóri því yfir að ástand lög­gæslu­mála væri „almennt óvið­un­andi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár