Eigandi Hótel Adam við Júlíus Vífil: „Þú ert lagður í einelti“

Júlíus Vífill Ingv­ars­son ber af sér sakir í Facebook-færslu vegna meintra brota sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært hann fyrir. Hann fær stuðn­ing frá vinum í athuga­semdum, meðal ann­ars frá eig­anda Hótel Adam sem seg­ist standa í sama bar­daga eftir að hót­el­inu var lokað og hann sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Eigandi Hótel Adam við Júlíus Vífil: „Þú ert lagður í einelti“
Ragnar Guð­munds­son Eigandi Hótel Adam seg­ist standa í sama bar­daga og Júlíus Vífill. Mynd: Vera Pálsdóttir/HokusFokus.is

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, ber af sér sakir hér­aðs­sak­sókn­ara í færslu á Facebook síðu sinni í dag. Júlíus sætir ákæru fyrir pen­inga­þvætti, en hann sagði af sér sem borg­ar­full­trúi eftir að ljóstrað var upp um aflands­fé­lag hans í Panama­skjöl­unum sem geymdi arf for­eldra hans sem systk­ini Júlíusar höfðu leitað.

Júlíus segir engar laga­legar for­sendur fyrir ákærunni og segir að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ásak­anir um illa fengna fjár­muni á erlendum banka­reikn­ingum stand­ist ekki. „Hann hefur hins vegar birt mér ákæru sem snýr að skatta­málum,“ skrifar Júlíus. „Það kom á óvart og eru mér von­brigði.“

Vinir Júlíusar senda honum kveðjur við færsl­una, meðal ann­ars Björn Gíslason, núver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, og Hallur Hallsson blaða­maður. „Þú ert lagður í ein­elti,“ skrifar Ragnar Guð­munds­son, eig­andi Hótel Adam á Skóla­vörðu­stíg. „Ég er núna í sama bar­daga en vegna ann­ara hluta.“

Hótel Adam var lokað í sumar eftir umfjöllun Stund­ar­innar. Rekstr­ar­leyfi hót­els­ins var falið bak við vín­flöskur og fleiri her­bergi voru leigð út en leyfi var fyrir. Fyrr­ver­andi lyk­il­starfs­maður hót­els­ins lýsti ömur­legum vinnu­að­stæðum sínum í for­síðu­við­tali Stund­ar­innar þar sem hún var ítrekað nið­ur­lægð, svikin og beitt kyn­ferð­is­legri áreitni. Hún vann mál í hér­aðs­dómi gegn félagi Ragnars sem var gert að greiða henni tæpar þrjár milljón krónur í van­goldin laun.

Færsla Júlíusar í heild sinni:

Und­an­farin tvö ár finnst mér eins og ég hafi staðið í veð­ur­báli. Á mig voru bornar ótrú­legar og frá­leitar sakir í æsifrétta­stíl um að fjár­munir á erlendum banka­reikn­ingum væru illa fengnir og ekki mín eign. Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur nú kannað sann­leiks­gildi máls­ins og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé fótur fyrir þeim ásök­unum.

Hann hefur hins vegar birt mér ákæru sem snýr að skatta­málum. Það kom á óvart og eru mér von­brigði. Ég tel engar laga­legar for­sendur vera fyrir ákærunni og mun auð­vitað takast á við hana fyrir dóm­stólum. Það mál verður útkljáð á þeim vett­vangi.

Það krist­all­ast margt í líf­inu við mót­læti og átök. Eftir stendur að lokum það sem er mik­il­væg­ast: fjöl­skyldan, vin­áttan og kær­leik­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár