„Að sverja af sér barnaníð er niðurlægjandi reynsla sem ég óska engri saklausri manneskju“

Víkingur Krist­jáns­son leik­ari segir barna­vernd­ar­kerfið hafa tekið þátt í barns­ráni eftir að fram komu ásak­anir um kyn­ferð­is­brot í umgengn­is­deilu. Sak­sókn­ari felldi niður kæru og Barnahús taldi engan fót fyrir ásök­unum.

„Að sverja af sér barnaníð er niðurlægjandi reynsla sem ég óska engri saklausri manneskju“

Rík­is­sak­sókn­ari hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert sé hæft í ásök­unum á hendur Víkingi Krist­jáns­syni leik­ara um að hafa mis­notað son sinn. Víkingur greinir frá þessu í pistli á Kvenna­blað­inu, gagn­rýnir barna­verndar- og rétt­ar­vörslu­kerfið harð­lega og fjallar um sögu­sagnir um sig og son sinn sem eng­inn fótur reynd­ist fyrir að mati ákæru­valds­ins.

„Nið­ur­staðan var sú að ég væri full­kom­lega sak­laus,“ skrifar Víkingur og bætir því við að það að sverja af sér barn­a­níð sé nið­ur­lægj­andi reynsla sem hann óski engri sak­lausri mann­eskju. Víkingur er fjög­urra barna faðir og á jafn­framt stjúp­dóttur, en hafði aldrei verið sak­aður um kyn­ferð­is­brot eða ósæmi­lega hegðun af neinu tagi fyrr en í fyrra.

Víkingur rekur ásak­an­irnar til umgengn­is­deilu sem hann og barns­móðir hans hafa staðið í um langt skeið. Þá bendir hann á að áður en ásak­an­irnar á hendur honum komu fram hafi unnusta hans verið sökuð um gróft ofbeldi gegn syni hans. Þær ásak­anir hafi ekki reynst eiga sér neinar stoðir í raun­veru­leik­anum. Telur Víkingur að barna­vernd­ar­kerfið hafi brugð­ist í veiga­miklum atriðum.

„Ég veit fyrir víst að Rann­sókn­ar­lög­reglan komst að nið­ur­stöðu í mál­inu í októ­ber síð­ast­liðnum og sendi hana þá til sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins. Nið­ur­staðan var sú að ég væri full­kom­lega sak­laus. Síðan þá hefur málið legið í bunka, fyrst hjá Rík­is­sak­sókn­ara, og því næst Hér­aðs­sak­sókn­ara án þess að nokkuð væri aðhafst fyrr en nú, rúmu ári eftir að þessi ótrú­lega atburð­ar­rás fór af stað,“ skrifar Víkingur. 

„Eftir stendur stað­reynd sem má að mínu mati með fullum rétti orða svona: Sjö ára syni mínum var rænt frá mér af aðilum sem aug­ljós­lega svífast einskis í aðgerðum sínum, og ég bý í sam­fé­lagi þar sem engin leið er að treysta á að yfir­völd komi mér til hjálpar, þvert á móti hefur starfs­fólk á sviði barn­ar­verndar stutt þennan gjörn­ing með vafasömum ákvörð­unum sínum.“

Hann seg­ist ekki geta breytt því sem gerst hefur en vilja gera sitt besta til að stuðla að því að ekk­ert for­eldri þurfi að upp­lifa það sama og hann í sam­skiptum við íslensk barna­vernd­ar­yf­ir­völd. „Auk þess vil ég hreinsa mann­orð mitt. Þrátt fyrir að mál þetta hafi bless­un­ar­lega ekki kom­ist í hámæli, hef ég oftar en einu sinni heyrt af sögum sem um mig ganga úti í bæ, þess efnis að ég hafi í raun og sanni mis­notað son minn. Mér þykir ljóst hvaðan þær sögur spretta. Það er gott að geta hér und­ir­strikað að þær eiga ekki við rök að styðj­ast.“

Hér má lesa grein hans í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár