Segir hatursorðræðu áhrifafólks óþekkta á Íslandi: „Íslendingar almennt vel upp aldir í góðum siðum“

Dómsmála­ráðherra fjallar um ákæru gegn múslima­klerki í Danmörku og fagnar því að slík mál hafi ekki komið upp á Íslandi.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra segir að hatur­orðræða áhrifa­manna gegn einstökum hópum fólks þekkist ekki á Íslandi. Hún leyfir sér að vona að það sé „vegna þess að Íslendingar eru almennt vel upp aldir í góðum siðum og náunga­kærleik, vel upplýstir og umburðar­lyndir“. 

Þetta kemur fram í pistli eftir ráðherra sem birtist í Frétta­blaðinu í morgun. Þar gerir hún að umtals­efni að nýlega hafi „ímam (klerkur múslima) nokkur í Danmörku“ verið ákærður fyrir að hvetja til morða á gyðingum í predikun. Ráðherra fagnar því að sambærileg mál hafi ekki komið upp á Íslandi og lýsir áhyggjum af vaxandi gyðinga­hatri í Evrópu.

„Hatur á einstökum hópum manna, sem endur­speglast í máli áhrifa­valds eins og því sem nú verður ákært fyrir í Danmörku, þekkjum við ekki hér á landi og skulum aldrei kynnast,“ skrifar Sigríður Andersen sem telur að ástæðan sé gott uppeldi Íslendinga og gildi sem þjóðin standi vörð um. Þó sé þjóðin oft stóryrt í netheimum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár