Fyrrverandi aðstoðarmaður félagsmálaráðherra kaupir elleftu íbúðina með lánum frá Íbúðalánasjóði

Matthías Imsland, fyrr­verandi aðstoðar­maður Eyglóar Harðar­dóttur félagsmála­ráðherra í síðustu ríkis­stjórn, er orðinn stórtækur fjár­festir í fasteignum.

Úr ráðuneyti í fasteignageirann
Úr ráðu­neyti í fast­eigna­geir­ann Matthías Imsland var aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2013 til 2016. Hann hefur fengið um 140 millj­óna króna lán frá Íbúða­lána­sjóði til að kaupa íbúðir síð­ast­liðið ár. Matthías og Eygló sjást hér á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2015. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

Matthías Imsland, fyrr­verandi aðstoðar­maður Eyglóar Harðar­dóttur, félagasmálaráðherra úr Framsóknar­flokknum, sem var æðsti yfirmaður Íbúða­lánasjóðs og sú sem skipaði í stjórn sjóðsins, keypti íbúð í Vestmanna­eyjum í gegnum félagið MPI ehf. með láni frá Íbúða­lánasjóði þann 3. maí síðastliðinn. 

Kaupverð íbúðarinnar var 16,5 milljónir og lánaði Íbúða­lánasjóður rúmlega 13 milljónir vegna kaupanna. Þetta er 11. íbúðin sem Matthías kaupir í Vestmanna­eyjum með lánum frá Íbúða­lánasjóði á síðastliðnu ári. Heildar­lánveitingarnar til félags Matthíasar nema um 140 milljónum króna. 

DV sagði frá kaupum félags Matthíasar á tíu af íbúðunum fyrr í maí en sama dag og DV birti fréttina var gögnum um kaup Matthíasar á 11. íbúðinni þinglýst.  

Matthías segir í svörum sínum við spurningum Stundarinnar, sem eru birt hér í heild sinni, að hann hafi sótt um lánin á heimasíðu Íbúða­lánasjóðs og að hann viti ekki betur en að hver sem er geti fengið slík lán hjá sjóðnum. Í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár