Gestir í Afganistan Banda­rískir her­menn í land­inu eru nú um 10 þús­und. Mynd:

Stríð án enda

Afganar hafa upp­lifað 40 ára styrj­öld. En er loks­ins að rofa til?

Þann 30. apríl bár­ust þær fréttir að 36 hefðu lát­ist í sjálfs­morð­sprengju­árásum í Kabúl. Vikuna áður sprakk sprengja við kosn­inga­skrán­ing­ar­stöð í Kabúl og drap 69 manns. Er þetta stærsta árás þar í landi síðan í jan­úar þegar sjúkra­bíll var fylltur af sprengi­efni og drap 103 við Chicken Street, sömu götu og ráð­ist var á íslensku teppa­kaup­menn­ina haustið 2004, en að með­al­tali 66 óbreyttir borg­arar eru drepnir í hverri viku í Afganistan. Allar fréttir frá land­inu virð­ast slæmar. En hvernig hófst þetta allt saman? 

Eins og flestir af minni kyn­slóð varð ég fyrst með­vit­aður um til­vist Afganistan í kringum inn­rás Sov­ét­ríkj­anna á 9. ára­tugnum. James Bond fór þangað í Living Daylights og Rambó í Rambo III, báðir til að styðja hug­djarfa skæru­liða gegn heims­veld­inu illa. En kalda stríð­inu lauk og Afganistan hvarf sjónum, þar til það birt­ist aftur með eft­ir­minni­legum hætti í kjöl­far árásanna 11. sept­em­ber. Hetjur fóru aftur að ríða um héruð í bíó, en í þetta sinn var heims­veldið annað og skæru­lið­arnir orðnir vondu kall­arnir. 

Sherlock Holmes og hipparnir

Segja má að Vest­ur­landa­búar hafi fyrst upp­götvað Afganistan í gegnum nýlendu­brölt Breta á 19. öld. Í bók­menntum tíma­bils­ins var það nokk­urs konar Lang­tí­burtustan, hættu­legt og fjar­lægt land í sögum Rudyard Kipling eða Conan Doyle, og Dr. Watso, líf­læknir Sherlock Holmes, hafði verið særður þar. En í kjöl­far fyrri heims­styrj­aldar höfðu Bretar sig end­an­lega á brott, og þar að auki var nóg af stríðs­sögum frá nálæg­ari slóðum. 

Landið birt­ist fyrst aftur í dæg­ur­menn­ing­unni á 7. ára­tugnum og nú á nokkuð öðrum for­sendum. Í þá daga var hægt að ferð­ast á rúg­brauði frá Kaup­manna­höfn og í gegnum Íran og Írak, Afganistan og Pakistan, Jammú og Kasmír, til að fara að hug­leiða á Indlandi eða í Tíbet. Ýmislegt tóku hipp­arnir með sér heim aftur, klædd­ust kaftönum og hver kann­ast ekki við svartan Afgan? 

Í bókum eins og Flug­dreka­hlauparanum og Bók­sal­anum í Kabúl er tím­anum fyrir inn­rás Sov­ét­ríkj­anna lýst sem nokk­urs konar horf­inni para­dís. Og vissu­lega er nokkuð til í því. Þrátt fyrir að vera eitt fátæk­asta land í heimi ríkti þó friður. Sami kon­ungur réði ríkjum í 40 ár, og jafn­vel þegar frændi hans Daud setti hann af árið 1973, lýsti yfir stofnun lýð­veldis og gerði sjálfan sig að for­seta kom það ekki að sök. Fimm árum síðar var hins vegar gerð komm­ún­ista­bylt­ing og nú átti að nútíma­væða landið á einni nóttu. Nið­ur­staðan af þessu varð 40 ára stríð sem enn sér ekki fyrir end­ann á, með yfir milljón lát­inna.

Kabúl40 ára stríð er enn yfir­stand­andi.

Sturlungaöld

Við fyrstu sýn virð­ast Ísland og Afganistan vera eins ólík lönd og hugs­ast getur. Ísland er frið­söm eyja í Norður-Atl­ants­hafi, Afganistan er stríðs­hrjáð land í Mið-Asíu með engan aðgang að sjó. En þegar nánar er að gáð eru nokkur land­fræði­leg lík­indi. Land þetta er alsett fjöllum og með miklar veð­ur­fars­breyt­ingar frá einum stað til ann­ars en suð­ur­landsund­ir­lendið er frjósam­ast, hér eru engar lestir en hring­veg­ur­inn tengir helstu byggðir saman. Og jafn­vel má finna nokkur póli­tísk lík­indi líka. 

Sagt er að Afganistan hafi aldrei verið sigrað af erlendum herjum, en þetta er ekki alls kostar rétt. Ríkið hefur og verið hluti af öðrum heims­veldum og jafn­vel stofnað nokkur sjálft. En þeir sem hafa ráðið land­inu hafa aðeins haft yfir­ráð yfir helstu borgum og bæjum, rækt­un­ar­svæðum og áveitum. Flestir hafa kom­ist að því að ætt­bálk­ana upp til fjalla er best að láta í friði, heims­veldi allt frá Alex­ander til Breta­veldis hafa farið flatt á því að kom­ast upp á kant við þá. 

Ætt­bálkar þessir, sem margir eru af Ghilzai kvísl Pastúna, hafa verið og eru enn sára­fá­tækir. Þar sem lítið er um auð­söfnun verður sjaldn­ast til mið­stýrt yfir­vald. Höfð­ingjar eru því neyddir til þess að tala um fyrir stuðn­ings­mönnum sínum frekar en að skipa þeim fyrir, og eru settir af þyki þeir ekki standa sig. Minnir þetta nokkuð á íslenska ætt­bálka­sam­fé­lagið, sem var að mörgu leyti lýð­ræð­is­legt en svo fátækt að jafn­vel höfð­ingjar lentu í erjum út af ost­bita. 

Járn-Emírinn og hauskúputurnarnir

Sá fyrsti sem reyndi að koma valdi sínu yfir landið allt með beinum hætti var Járn-Emírinn svo­kall­aði, Abdur Khan, sem ríkti frá 1880 til 1901. Kom hann sér upp öfl­ugum her og leyni­þjón­ustu og seldi fólk í þræl­dóm eða lét byggja turna úr haus­kúpum þeirra ef þeir hög­uðu sér ekki. Sér­stak­lega urðu Hasarar, sem játa sjí­a­trú, illa úti, en um 70 pró­sent þeirra voru drepnir eða hraktir í burtu. Járn-Emírinn lét loka land­inu að mestu og forð­að­ist sam­skipti við umheim­inn, en gerði engar til­raunir til að breyta lífs­háttum fólks. 

Synir Khans drógu mjög úr ógn­ar­stjórn­inni og reyndu að koma á alls konar umbótum, en mis­ræmið á milli hinna mennt­uðu Kabúlbúa og ætt­bálkanna til sveita jókst stöðugt. Son­ar­son­ur­inn, Amanullah Khan, rak Breta end­an­lega á brott en varð jafn­framt fyrsti kon­ungur Afgana til að heim­sækja Evrópu. Hann vildi meðal ann­ars koma á við­skiptum við umheim­inn og kven­rétt­indum í land­inu, en þetta var of mikið fyrir heima­menn og var hann settur af árið 1929. Við tók Musa­hiban-grein ætt­ar­innar sem réði ríkjum allt til 1978. 

Afganistan býr yfir tals­verðum nátt­úru­legum auð­lindum, svo sem kopar og eðal­steinum, en þær hafa aldrei verið nýttar og auður í Afganistan því alltaf komið utan frá. Verkefni valda­manna í land­inu hefur því verið tví­þætt. Annars vegar þurfa þeir að virð­ast vernd­arar sjálf­stæð­is­ins í augum landa sinna til að öðl­ast lög­mæti, hins vegar þurfa þeir að hafa aðgang að fjár­magni utan frá til að deila á milli fylg­is­manna sinna og kaupa sér þannig stuðn­ing. Og höfð­in­gj­arnir í Kabúl náðu miklum tökum á þess­ari list. 

Mið­aust­ur­löndAfganistan liggur land­lukt í fjall­lend­inu ofan Indus-dals­ins mitt milli Aust­ur­landa nær og fjær.

Kalda stríðið til bjargar

Frá því silki­leiðin gamla lok­að­ist með hruni Persa­veldis snemma á 18. öld höfðu Afganar helst tekjur af því að herja á svæði þar sem nú eru Pakistan og Indland. En um miðja 19. öld fór lega lands­ins aftur að skipta máli, Rússar sótt­ust til áhrifa í Mið-Asíu úr norðri og Bretar frá Indlandi að sunnan. Hinir síð­ar­nefndu her­námu landið tvisvar en voru hraktir í burtu og komust að því að auð­veld­ara var að múta Afgönum en að stjórna þeim beint. Leið­togar skæru­liða urðu frels­is­hetjur í augum landa sinna fyrir að berj­ast gegn Bretum en hlutu svo miklar greiðslur frá þeim eftir á, og var Járn-Emírinn einn af þessum mönnum. Bretar fengu það sem þeir vildu fyrir pen­ing­inn, Afganar skuld­bundu sig til að halda Rússum úti og ráð­ast ekki á Indland sjálfir.

Afganar kjósa helst að starfa með veldum sem eru sem lengst í burtu og var Þjóð­verjum lof­aður stuðn­ingur ef þeir sendu her á vett­vang í báðum heims­styrj­öldum, en til þess kom ekki og haldið var í hlut­leysið. Eftir lok þeirrar síð­ari voru góð ráð dýr, Bretar yfir­gáfu Indland og ekki var meiri fjár­muna að vænta þaðan. En kalda stríðið kom til bjargar og Afganar sömdu við báða aðila, fengu meiri stuðn­ing miðað við höfða­tölu frá Rússum en nokkrir aðrir og jafn­framt fé frá Banda­ríkj­unum til inn­viða­upp­bygg­ingar. Landið var reyndar vita gagns­laust frá hern­að­ar­legu sjón­ar­miði og her­stöðvar ekki í boði fyrir utan­að­kom­andi, en lógík kalda stríðs­ins var jú sú að hinn aðil­inn mátti ekki kom­ast til áhrifa og því varð að keppa um hverja spildu. Gagn­að­ist þetta Afgönum ágæt­lega, allt þar til þau reg­in­mi­s­tök voru gerð að ganga í lið með Sov­ét­ríkj­unum beint. 

Hæðirnar ofan Kabul

Kommúnismi og Íslamismi

Menntun var almennt ekki mikil, en þó hafði háskóli verið stofn­aður í Kabúl árið 1931. Fyrstu ára­tug­ina komust flestir mennta­menn í örugg störf hjá rík­inu, en upp úr 1970 hafði þeim fjölgað svo mjög að þetta var ekki lengur ger­legt. Nýjar hug­myndir bár­ust að utan og tvær náðu að skjóta rótum, komm­ún­ismi og ísla­mismi. Aftur gerði aðgrein­ingin á milli sveita og borgar vart við sig, þar sem fyrri hóp­ur­inn átti ættir að rekja til borg­ar­el­ít­unnar en sá seinni kom af fjöllum. Vissu­lega voru íbú­arnir almennt íslam, en þetta var talið sjálf­gefið og því ekki efni í sér­staka póli­tíska hreyf­ingu. 

Þegar Daud rændi völdum árið 1973 hafði hann notið stuðn­ings komm­ún­ista, en síðan ýtt þeim til hliðar. Í apríl 1978 töldu komm­ún­istar hins vegar að röðin væri komin að sér og Daud var myrtur ásamt fjöl­skyldu sinni. Bylt­ing­ar­stjórn var komin til valda og nú skyldi öllu breytt. Vald­hafar í Kabúl höfðu hingað til látið ætt­bálk­ana að mestu afskipta­lausa, en komm­ún­istar töldu að með nýjum hertólum frá Sov­ét­ríkj­unum væri hægt að koma vilja sínum fram. Þeir skiptu jörð­unum upp á nýtt, reyndu að brjóta upp hefð­bundin valda­kerfi í hér­uð­unum og höfn­uðu trú­ar­brögðum. Á sama tíma voru miklar hreins­anir gerðar innan flokks­ins og um helm­ingur flokks­manna var drep­inn eða rek­inn í útlegð. Efna­hags­um­bæt­urnar gáfust illa og allt log­aði í upp­reisnum. Meira að segja sov­éskum ráð­gjöfum fannst heldur rösk­lega til verks gengið og rík­is­stjórnin rið­aði til falls. 

Rússar höfðu í raun lít­illa hags­muna að gæta í Afganistan, en það var lógík kalda stríðs­ins að rík­is­stjórn bræðra­þjóðar mætti ekki falla. Ákveðið var að senda her á vett­vang undir árs­lok 1979. Speznatssveitir brut­ust inn í höll­ina og tóku leið­toga komm­ún­ista, Amin, af lífi en komu sínum eigin manni, Karmal, að sem átti að snúa við hinum miklu breyt­ingum fyr­ir­renn­ara síns. En allt gekk á aft­ur­fót­unum, hin erlenda inn­rás guð­lausra komm­ún­ista sam­ein­aði ætt­bálk­ana í upp­reisnum sínum og nú fóru önnur erlend ríki að veita gangi mála athygli. 

Skæruliðatískan og Star Wars

Banda­ríkja­menn voru enn í sárum eftir Víetnam og vildu ólmir veita Rússum sömu nið­ur­læg­ingu. Þeir töldu sig hafa lært að betra væri að treysta á aðstoð þeirra sem þekktu til aðstæðna. Því var ákveðið að leyni­þjón­usta Pakistan, ISI, myndi sjá um að útdeila vopn­unum sem þeir sendu til Afgana. Pakistanar tóku vel í þetta og völdu þá úr sem þeim lík­aði best, gjarnan ísla­mista, og Sádi-Arabar vildu líka styðja við bakið á trú­bræðrum sínum. Þannig voru að minnsta kosti tvö stríð í gangi í einu, kalda stríðið gegn komm­ún­ism­anum og stríð ísla­mista við guð­leys­ingja. 

TalibaniMeðlimur trú­ar­lög­reglu tali­bana lemur hér konu vegna þess að hún afklædd­ist búrku sinni opin­ber­lega.

Allt fór í gegnum bæinn Peshawar í Pakistan, en blaða­menn sem þangað komu báru ástandið saman við Mos Eisley í Star Wars, þarna voru njósn­arar, skæru­liðar og vopna­salar á hverju strái, lit­ríkir per­sónu­leikar eins og hin svo­nefnda „Gucci Muj“, sem höfðu meiri áhuga á skæru­liðat­ísk­unni heldur en bar­dögum, eða Abdul Haq, sem hafði misst fót­inn sökum jarð­sprengju en klifraði ein­fættur um fjöll og firn­indi til að stofna nýjar sveitir þegar hinar gömlu voru lagðar að velli. Nið­ur­staðan varð sú að yfir milljón manns misstu lífið og fjórar millj­ónir gerð­ust land­flótta. Stríð voru ekk­ert nýtt í Afganistan, en þetta var í fyrsta sinn sem átökin náðu um land allt. 

Undir lok ára­tug­ar­ins hófu Sov­ét­ríkin að lið­ast í sundur og ísla­mistar litu svo á að það væri þeim að þakka. Banda­ríkja­menn hættu hins vegar öllum afskiptum af land­inu. Eftir stóð Pakistan sem kaus að styðja talí­bana þótt fjár­ráðin væru nú minni. Borg­ara­stríð braust út og náði í fyrsta sinn til Kabúl sem var lögð í rúst. Talí­bönum tókst að lokum að leggja undir sig stærstan hluta lands­ins, en þeir áttu við svip­aðan vanda að etja og komm­ún­istar áður. Fólk leit á þá sem hand­bendi útlend­inga, Pakistana og Araba og tók illa í að þeir reyndu að ger­breyta sam­fé­lag­inu með shar­ía­lögum. Talí­bönum tókst einnig að fá allt alþjóða­sam­fé­lagið upp á móti sér og þegar þeir veittu Osama bin Laden hæli reitti það bæði Banda­ríkja­menn og Sádi-Araba til reiði. 

KabulBanda­rískir her­menn ganga fram hjá afgönskum börnum.

Stjórnarskrárdeilan

Flestir vita hver nið­ur­staðan af þeirri vin­áttu var. Banda­ríkin studdu Norð­ur­banda­lagið með vopnum og loft­árásum og stjórn talí­bana féll furðu skjótt. Flestir Afganar létu sér vel líka, fáir erlendir her­menn voru í land­inu og Banda­ríkin þar að auki í hæfi­legri fjar­lægð. Svo vel tókst að gera það á nokkrum mán­uðum sem Sov­ét­ríkj­unum hafði ekki tek­ist á 10 árum að óhætt þótti að beina athygl­inni annað. Írakar hlytu að taka þeim jafn vel og Afganar höfðu gert. En annað kom á dag­inn, og á meðan athygli Banda­ríkj­anna var á óöld­inni sem þeir höfðu skapað í Írak misstu þeir tökin á Afganistan líka. 

FriðurFyrr­ver­andi her­menn úr röðum tali­bana skila vopnum sínum í Ghör, Afganistan, árið 2012, og skuld­binda sig til að vinna í þágu friðar og upp­bygg­ingu í Íslamska lýð­veld­inu Afganistan.

Vandinn lá að ein­hverju leyti í hinni nýju stjórn­ar­skrá lands­ins. Eftir fall talí­bana var Hamid Karzai, af góðum ættum og vel mæltur á hin ýmsu tungu­mál, val­inn bráða­birgða­for­seti á fundi skæru­liða­for­ingja í Bonn. Brátt risu þó deilur um hvort ætti að verða for­setaræði eða þing­ræði í hinu nýja Afganistan, en þing­ræðið hefði ef til vill hentað betur. Hin ótal héruð höfðu látið til sín taka í hinni löngu bar­áttu gegn Sov­ét­ríkj­unum og talí­bön­unum og myndi ekki vera jafn auð­veld­lega stjórnað frá Kabúl framar. En Karzai dustaði rykið af gömlu kon­ungs­tjórn­ar­skránni frá 1964 og var orð­inu kon­ungur skipt út fyrir orðið for­seti. Var þetta gert með svo miklu hraði að í upp­runa­legu útgáf­unni á farsí var kon­ungs­tit­ill­inn stundum enn inni. Tillögur stjórn­ar­skrár­nefndar voru og að hluta til huns­aðar, þar sem loka­út­gáf­unni var mikið breytt eftir að hún hafði lokið störfum. Þá bann­aði Karzai að menn byðu sig fram undir merkjum stjórn­mála­flokka, hér skyldi kjósa fólk og ekki flokka. Nið­ur­staðan var óheyri­legur fjöldi fram­bjóð­enda þar sem fjár­munir eða frægð skiptu mestu, og víða þurfti ekki nema 5-10 pró­sent atkvæða til að ná meiri­hluta. 

Hamid KarzaiHunsaði til­lögur stjórn­ar­skrár­nefndar og bann­aði stjórn­mála­flokka.

Karzai var svo kos­inn til for­seta 2004 í til­tölu­lega frjálsum kosn­ingum. Verr tókst til eftir að hann hafði tryggt sér völdin. Menn litu á hann sem hand­bendi Banda­ríkj­anna, sem í sjálfu sér þurfti ekki að vera svo slæmt, nema hvað að hann fékk litla pen­inga frá þeim til að útdeila til fylg­is­manna sinna. Erlendar hjálp­ar­stofn­anir og fyr­ir­tæki kusu frekar að starfa án hlut­deildar rík­is­ins, sem hrað­aði upp­bygg­ingu en gerði það að verkum að heima­menn fengu sjaldn­ast vinnu við störfin, og á vinnu var þörf þar sem flótta­menn hófu að snúa heim af miklum móð. 

Von?

Árið 2006 braust svo aftur út upp­reisn talí­bana í suður- og aust­ur­hér­uðum lands­ins. Fólk var vissu­lega orðið lang­þreytt á stríðum og dug­andi for­seti hefði lík­lega með stuðn­ingi alþjóða­sam­fé­lags­ins getað stuðlað að friði. En hvor­ugt var í boði, og fjár­munum í stað­inn eytt í inn­rás í Írak. Þegar Obama varð for­seti Banda­ríkj­anna var áherslan aftur lögð á Afganistan um stund, en nú var það orðið of seint. 100.000 her­menn voru sendir á vett­vang, en þeir höfðu aðeins verið um 5.000 í upp­hafi árs 2002. Og þó tókst ekki að vinna bug á talí­bönum, sem nú ráða um helm­ingi hér­aða og er tala banda­rískra her­manna kom­inn niður í 10.000. Því er harla ólík­legt að sigur vinn­ist á þeim í bráð. 

Karzai varð aftur kos­inn for­seti árið 2009 en nú voru vin­sældir hans horfnar og stór­felldu kosn­inga­svindli beitt. Árið 2014 lýsti Banda­ríkja­stjórn því yfir að verk­efni þeirra væri lokið og Ashraf Ghani, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og rektor Kabúl-háskóla, varð for­seti eftir umdeildar kosn­ingar. Hefur honum orðið eitt­hvað ágengt að efla við­skipta­tengsl við nágranna­ríkin, en á í köldu stríði við Pakistan sem hann ásakar um að styðja við bakið á hryðju­verka­mönnum. Fyrstu járn­braut­irnar til útlanda hafa verið lagðar, Kín­verjar hafa aðstoðað við að opna járn­bræðslu, verið er að leggja jarð­gaslínu frá Tur­k­menistan til Indlands og nýjar hafnir í Íran hafa opn­ast. Afganistan er því land sem ef til vill á fram­tíð­ina fyrir sér. Ghani hefur boðið talí­bönum opin­bera við­ur­kenn­ingu sem stjórn­mála­flokkur ef þeir sam­þykkja að taka þátt í frið­ar­við­ræðum, en ljóst er að engar við­ræður geta borið ávöxt án þeirrar þátt­töku. Talí­banar hafa hafnað þessu, en vonir standa til að þeir skipti um skoðun. Þangað til halda sjálfs­morðsárásir þeirra sem kenna sig við íslamska ríkið áfram. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár