Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Ásmundur vissi allt um þrýsting Braga en sagði Alþingi ekkert

„Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að vel­ferð­ar­nefndin setji sig vel inn í þetta mál,“ sagði Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra um leið og hann hélt því leyndu fyrir Alþingi hvernig Bragi Guð­brands­son beitti sér fyrir umgengni prests­sonar við dætur sínar sem hann var grun­aður um að mis­nota.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, bjó yfir ítar­legum upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­mál­inu í Hafn­ar­firði og þrýst­ing­inn sem Bragi beitti barna­vernd­ar­starfs­mann af vor­kunn­semi við fjöl­skyldu manns sem grun­aður var um kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum þegar rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn að útnefna Braga sem fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Stundin fjallar ítar­lega um málið í dag, en fram kemur að um leið og Bragi hlut­að­ist til um með­ferð máls­ins hjá barna­vernd­ar­nefnd átti hann ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins, Þjóð­kirkju­prest sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál. Samkvæmt þeim gögnum sem Stundin hefur undir höndum fólst í þrýst­ingi Bragasú krafa að móðir stúlkn­anna myndi hætta að „hamla umgengni“ þrátt fyrir að barna­vernd Hafn­ar­fjarðar hefði ráð­lagt henni að halda dætrum sínum í öruggu skjóli frá föður þeirra meðan málið væri rann­sakað. Á sama tíma og afskipti Braga áttu sér stað lá til­vís­un­ar­bréf barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar vegna máls­ins – þar sem farið var fram á rann­sókn­ar­við­töl við stúlk­urnar í ljósi sterkra og marg­vís­legra vís­bend­inga um að fað­ir­inn hefði beitt þær kyn­ferð­is­of­beldi – óhreyft í um mánuð í póst­hólfi Barna­húss. Barnahús er rekið af Barna­vernd­ar­stofu og heyrði þannig óbeint undir Braga Guð­brands­son þegar afskipti hans af mál­inu fóru fram. Að sögn Braga bil­aði jafn­framt tölvu­kerfi Barna­húss um þetta leyti og skil­aði til­vís­unin sér því ekki, hvorki með staf­rænum hætti né í pósti. 

Ráðherra hélt öllum þessum upp­lýs­ing­unum leyndum fyrir Alþingi þegar hann sat fyrir svörum hjá vel­ferð­ar­nefnd þann 28. febr­úar. Þetta gerði Ásmundur þrátt fyrir að hann hefði sjálfur boðað komu sína á fund nefnd­ar­innar undir þeim for­merkjum að hann vildi upp­lýsa ræki­lega um kvört­un­ar­mál barna­vernd­ar­nefnd­anna og nið­ur­stöður ráðu­neyt­is­ins. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að vel­ferð­ar­nefndin setji sig vel inn í þetta mál. Þess vegna hafði ég sam­band við for­mann vel­ferð­ar­nefndar nú um helg­ina og óskaði sér­stak­lega eftir því að vel­ferð­ar­nefnd setti sig inn í þetta mál,“ sagði hann í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi 26. febr­úar. 

„Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að vel­ferð­ar­nefndin setji sig vel inn í þetta mál“

Ásmundur full­yrti að Bragi Guð­brands­son hefði „ekki brotið af sér með neinum hætti“ og væri „fram­bæri­legur kandídat til fram­boðs til barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna“. Á fundi nefnd­ar­innar tveimur dögum síðar lét Ásmundur ósagt að Bragi Guð­brands­son hefði beitt barna­vernd­ar­starfs­mann þrýst­ingi vegna kyn­ferð­is­brota­máls á sama tíma og hann átti ítrekuð sam­skipti við föður máls­að­ila og til­vís­un­ar­bréf vegna sama máls gleymd­ist í póst­hólfi Barna­húss sem heyrði óbeint undir Braga. 

Á þessum tíma höfðu skjölin sem sýndu þetta – skjölin sem umfjöllun Stund­ar­innar byggir á – legið fyrir á skrif­stofu ráð­herra í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í tæpan mánuð, eða frá 31. jan­úar 2018. Þann dag voru gögnin afhent á fundi með aðstoð­ar­manni Ásmundar Einars, skrif­stofu­stjóra og lög­fræð­ingi í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu auk þess sem þau voru sett ítar­lega inn í málið, for­sögu þess og máls­at­vik, aðkomu Braga Guð­brands­sonar og ítrekuð sam­skipti hans við föður máls­að­ila. 

Þannig lágu allar þessar upp­lýs­ingar fyrir hjá ráð­herr­anum sem fer með barna­vernd­ar­mál í rík­is­stjórn Íslands þegar sú ákvörðun var tekin þann 23. febr­úar 2018 að bjóða Braga Guð­brands­son fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Þegar kom að því að upp­lýsa Alþingi um kvört­un­ar­málin og nið­ur­stöður ráðu­neyt­is­ins fékk vel­ferð­ar­nefnd nær engin gögn sem varpað gátu ljósi á afskipti Braga, rétt­mæti þeirra eða laga­grund­völl og afstöðu ráðu­neyt­is­ins til þess hvað væri hæft og hvað ekki í athuga­semdum nefnd­anna. 

Það var ekki fyrr en nú undir lok apríl – eftir að Stundin hafði byrjað að spyrj­ast fyrir um málin og úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál tekið synjun á upp­lýs­inga­beiðni blaðs­ins til efn­is­með­ferðar – sem ráðu­neytið afhenti loks vel­ferð­ar­nefnd Alþingis gögn sem óskað hafði verið eftir. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var hluti gagn­anna afhentur þing­mönnum undir strangri trún­að­ar­kröfu. Þannig eru gögnin ein­ungis aðgengi­leg í skjala­geymslu Alþingis þar sem þing­menn mega skoða þau en er óheim­ilt að afrita þau með neinum hætti. 

Dómsmálaráðuneytið einnig með gögnin

Með ítar­legri gögn en ÁsmundurDóms­mála­ráðu­neytið fékk gögnin sem Stundin byggir umfjöllun sína á afhent í fyrra vegna kæru á sýslu­manns­úr­skurði.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið er ekki eina ráðu­neytið sem hefur fengið gögn um íhlutun Braga á sitt borð. Þegar móð­irin kærði dag­sekt­ar­úr­skurð Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þann 23. júní 2017 fylgdu kærunni 23 skjöl, meðal ann­ars skýrslur list­með­ferð­ar­sér­fræð­ings­ins, nið­ur­stöður með­ferð­ar­funda barna­verndar Hafn­ar­fjarðar og bréf barna­verndar til lög­reglu og Barna­húss, en jafn­framt afrit af tölvu­pósts­sam­skiptum Braga og föð­urafans og stað­fest afrit af sím­tali Braga við barna­vernd­ar­starfs­mann­inn í Hafn­ar­firði. Þetta eru enn ítar­legri gögn en félags­mála­ráð­herra fékk afhent.

Þannig er ljóst að upp­lýs­ingar um vinnu­brögð Braga og eðli máls­ins sem hann skipti sér af lágu fyrir í tveimur ráðu­neytum þegar fram­boðs­á­kvörð­unin var tekin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár