Ráðuneytið vill leynd um mál Braga

Velferðar­ráðuneytið segir að bréf sem fjallaði um fyrir­hugaðar aðgerðir til að efla traust á sviði barna­verndar­mála hafi verið „formleg niður­staða“ ráðu­neyt­isins í kvörtunar­málum vegna Barn­ar­vernd­ar­stofu.

Kandídat Íslands
Kandídat Íslands Rík­is­stjórn Íslands vill að Bragi Guð­brands­son fái sæti í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna en vill ekki veita upp­lýs­ingar um hvernig hann var hreins­aður af ásök­unum barna­vernd­ar­nefnda.

Velferðar­ráðuneytið vill ekki veita neinar upplýsingar um niður­stöður í málum er varða umkvartanir þriggja barna­verndar­nefnda vegna samskipta við Barna­verndar­stofu og Braga Guðbrandsson forstjóra hennar.

Þetta er ljóst af svörum ráðuneytisins við upplýsinga­beiðni Stundarinnar frá því í febrúar. Eins og Stundin greindi frá þann 9. desember síðastliðinn hefur Bragi Guðbrandsson verið gagn­rýndur fyrir óeðlileg inngrip í einstök barnaverndarmál og sagður fara út fyrir vald­heimildir sínar.

Ráðuneytið telur Braga ekki hafa ekki gerst sekan um brot í starfi en vill ekki útskýra opinber­lega hvernig komist var að þeirri niður­stöðu eða hvað var hæft og hvað ekki í athuga­semdum þriggja barna­verndar­nefnda sem báru hann þungum sökum.

Ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur ákvað þann 23. febrúar síðastliðinn að sækjast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barnaréttar­nefnd Sameinuðu þjóðanna og útnefna Braga Guðbrandsson sem fulltrúa Íslands.

Sama dag sendi ráðuneytið þremur barna­verndar­nefndum bréf og fullyrti á vef sínum að þar væri greint frá „niður­stöðum“ vegna umkvartana nefndanna er vörðuðu samskipti og starfs­hætti Braga. 

Í bréfunum var þó ekki fjallað um neinar niður­stöður í málum heldur eingöngu um viðbrögð ráðuneytisins og fyrir­hugaðar aðgerðir til að endur­heimta traust og trúnað á sviði barna­verndar­mála. Stundin óskaði eftir því að fá afhentar raun­verulegar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár