Ásmundur fékk nærri fjórum sinnum meira í akstursgjöld en ökuglaðasti norski þingmaðurinn

Noregur og Svíþjóð veittu Stund­inni ítar­legt yfir­lit yfir akst­urs­gjöld þing­manna sinna. Danmörk, eins og Ísland, veitir ekki þessar upp­lýs­ingar en þar eru greiðslur lægri og reglur skýr­ari. Ásmundur Frið­riks­son er að öllum lík­indum Norð­ur­landa­meist­ari í akstri á eigin bif­reið í vinn­unni. End­ur­greiðslur til íslenskra þing­manna á hvern keyrðan kíló­metra eru miklu hærri á Íslandi en í Svíþjóð og Noregi.

Ásmundur fékk nærri fjórum sinnum meira í akstursgjöld en ökuglaðasti norski þingmaðurinn
Ökuglað­astur á Norð­ur­lönd­unum 2017 Sam­an­burður Stund­ar­innar á akst­urs­gjöldum þing­manna á Íslandi og Svíþjóð og Noregi bendir til þess að Ásmundur Frið­riks­son hafi verið ökuglað­asti þing­maður Norð­ur­land­anna 2017 þar sem hann keyrði mest og fékk hæstu end­ur­greiðsl­urnar fyrir að nota bíl­inn sinn í vinn­unni. Ásmundi, og öðrum þing­mönnum á Íslandi til varnar, eru aðrir sam­göngu­mátar eins og flug eða lest lak­ari eða ekki fyrir hendi á Íslandi. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Heild­ar­kostn­aður danska þjóð­þings­ins, Fol­ket­inget, vegna akst­urs 179 þing­manna þess á eigin bif­reiðum nam tæp­lega 46 millj­ónum króna árið 2016 en kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna akst­urs tíu þing­manna nam tæpum 38 millj­ónum króna á sama tíma­bili. Danska þingið neitar hins vegar að veita upp­lýs­ingar um akst­urs­greiðslur ein­stakra þing­manna með nöfnum þeirra. Raunar var það svo á Íslandi að þeir tíu þing­menn sem keyrðu mest árið 2016 – Alþingi hefur neitað að upp­lýsa nöfn þeirra – fengu alla þá fjár­muni sem íslenska ríkið greiddi til þing­manna vegna akst­urs þeirra á eigin bif­reiðum, 37.791.690 krónur.  

Norska þingið veitir hins vegar þessar upp­lýs­ingar, rétt eins og sænska þingið hefur gert, og sendi Stund­inni yfir­lit í rúm­lega 5.000 þús­und bók­halds­færslum um allar akst­urs­greiðslur til allra 169 norsku þing­mann­anna í fyrra auk sam­an­tek­inna upp­lýs­inga um árin 2015 og 2016. Skoðun Stund­ar­innar á yfir­lit­inu yfir akstur norskra þing­manna sýnir fram á að ökuglað­asti norski þing­mað­ur­inn, Bård …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár