Andrés Ingi og Rósa Björk fóru gegn flokkslínunni og studdu vantraust

Það er ekki nóg að stofna starfs­hópa til að skapa traust á stjórn­mál­unum, sagði Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir sem studdi van­traust­s­til­lögu Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar gegn dóms­mála­ráð­herra vegna Lands­rétt­ar­máls­ins.

Andrés Ingi og Rósa Björk fóru gegn flokkslínunni og studdu vantraust

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, þing­menn Vinstri grænna, voru einu stjórn­ar­lið­arnir sem studdu van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar gegn Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra. Ráðherra stóð af sér van­traust­s­til­lög­una sem var felld með 33 atkvæðum gegn 29, en einn þing­maður sat hjá. 

„Sumir vilja meina að sið­ferði og rétt breytni skipti litlu máli í stjórn­málum. Ég er ósam­mála því. Þessi afstaða mín var ein af ástæðum þess að ég studdi ekki stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks þegar til þess var stofnað,“ sagði Andrés Ingi þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu.

„Á þeim tíma taldi ég að nóg væri af dæmum um mál sem sýndu að ekki væri hægt að treysta sam­starfs­flokk­unum. Það var sér­stak­lega fram­ganga Sjálf­stæð­is­flokks­ins í málum sem tengd­ust upp­reist æru, harðn­andi afstaða flokks­ins í útlend­inga­málum og loks skipan dóm­ara í Lands­rétt.“

Hann sagði Sigríði Andersen hafa sýnt að hún væri ekki trausts­ins verð. „Vinnu­brögðin sæma ekki ráð­herra og almenn­ingur getur ekki treyst því að vandað sé til verka til að tryggja óháða dóm­stóla. Mín afstaða er ein­föld. Ég styð ekki áfram­hald­andi setu dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn. Ég segi já.“

Rósa Björk gagn­rýndi Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra hafa veitt skipun nýrra dóm­ara við Lands­rétt í far­veg tor­tryggni og van­trausts.

„Það blasir við öllum. Líka æðsta dóm­stigi Íslands, Hæsta­rétti sem stað­festir þetta með skýrum hætti í dómi sínum um skip­un­ina í des­em­ber,“ sagði hún.

„Traust á stjórn­völdum vinnst ekki með því að stofna starfs­hópa. Traust til stjórn­valda er áunn­ið­með sann­girni, virð­ingu og heið­ar­legum vinnu­brögðum, ekki vinnu­brögðum sem veikja dóms­kerfið eða rétt­ar­kerfið í heild sinni og vekja athygli á alþjóða­vísu eða kosta okkur for­múu úr sam­eig­in­legum sjóðum. Traustið verður að vinn­ast með verkum en ekki slæ­legum emb­ætt­is­færslum sem eng­inn ber póli­tíska ábyrgð á. Hér verður ráð­herra dóms­mála í land­inu að bera póli­tíska ábyrgð á sínum emb­ætt­is­verkum.“ Rósa Björk sagð­ist styðja van­traust­s­til­lög­una, því hún vildi ekki fúin og trénuð vinnu­brögð, heldur ný og betri vinnu­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár