Atkvæði ólöglega skipaðra dómara réðu úrslitum þegar Hervör var kjörin forseti

Fjórir dómarar voru skipaðir við Landsrétt í fyrra án þess að sýnt væri fram á, í samræmi við kröfur stjórnsýslu­laga, að þau væru í hópi hæfustu umsækjenda. Atkvæði þeirra skiptu sköpum þegar forseti Lands­réttar var kjörin þann 15. júní 2017.

15 dómarar við nýtt millidómsstig
15 dóm­arar við nýtt milli­dóms­stig Lands­réttur tók til starfa í byrjun árs­ins eftir margra ára und­ir­bún­ing. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Atkvæði þeirra dómara við Landsrétt sem skipaðir voru án þess að reglum stjórnsýslu­réttar væri fylgt réðu úrslitum þegar Hervör Lilja Þorvalds­dóttir var kjörin forseti hins nýja milli­dómsstigs þann 15. júní 2017. 

Stundin hefur áreiðanlegar heimildir fyrir þessu en ekki hafa fengist nákvæm svör frá Lands­rétti um hvernig staðið var að kjörinu og hvernig atkvæði einstakra dómara féllu.  

Dómarar fund­uðuHér má sjá fund­ar­gerð af fundi nýskip­aðra Lands­rétt­ar­dóm­ara þann 15. júní 2017 þegar for­seti Lands­réttar var kjör­inn. Stundin fékk skjalið frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Kosið var í tveimur umferðum og varð Hervör hlut­skarpari í þeirri síðari. Þar hafði úrslita­áhrif að dómarar, sem skipaðir voru við Landsrétt að tillögu Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra án þess að teljast í hópi 15 hæfustu umsækjenda að mati dómnefndar um hæfni umsækjenda, greiddu Hervöru atkvæði sitt. 

Sjálf hafði Hervör lent í 15. sæti á lista dómnefndarinnar, en hinir dómararnir sem buðu sig fram til að gegna forseta­hlutverki við Landsrétt, þeir Davíð Þór Björgvinsson og Sigurður Tómas Magnússon, prýddu 1. og 2. sæti á lista dómnefndarinnar, þ.e. voru metnir hæfastir allra umsækjenda. 

Ólögleg málsmeðferð við skipun dómara

Fjórir dómarar voru skipaðir við Landsrétt í fyrra án þess að sýnt hefði verið fram á, í samræmi við megin­reglur stjórnsýslu­laga, að þau væru hæfustu umsækjendurnir. Þetta eru þau Arnfríður Einars­dóttir, Ásmundur Helgason, Ragn­heiður Braga­dóttir og Jón Finnbjörnsson. 

Eins og Stundin hefur greint ítarlega frá ákvað Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra að hunsa sérfræði­ráðgjöf sem hún fékk í dómsmála­ráðuneytinu við meðferð málsins. Þann 19. desember 2017 komst Hæstiréttur að þeirri niður­stöðu að ráðherra hefði ekki uppfyllt rannsóknar­reglu stjórnsýslu­réttarins við undir­búning þess og þannig brotið stjórnsýslulög. 

Ráðherra vöruð viðSigríður Andersen var hvött ein­dregið til þess af sér­fræð­ingum þriggja ráðu­neyta að rann­saka hæfni dóm­ara­efna og rök­styðja betur ákvörðun sína um að víkja frá mati dóm­nefndar.

Skipun Arnfríðar Einars­dóttur og Jóns Finnbjörns­sonar vakti mesta athygli. Arnfríður Einars­dóttir er eiginkona Brynjars Níels­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, en Brynjar tók það óvenju­lega skref nokkrum vikum eftir skipun landsréttar­dómara að gefa eftir oddvita­sætið á framboðs­lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður og færa sig niður um sæti fyrir Sigríði Andersen, sem varð þá eina konan í oddvita­sæti hjá Sjálfstæðis­flokknum í alþingis­kosningunum 2017 og þannig gull­tryggð sem ráðherra­efni flokksins. Jón Finnbjörnsson, sem lenti í 30. sæti á hæfnis­lista dómnefndarinnar, er eigin­maður Erlu S. Árna­dóttur, sem er góðkunningi Sigríðar Andersen og var vinnu­veitandi hennar til margra ára hjá lögmanns­stofunni Lex. 

Hervör Lilja Þorvalds­dóttir, forseti hins nýja Lands­réttar, er náfrænka Davíðs Oddssonar og hefur setið sem fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins í Lands­kjörstjórn. Bróðir hennar, Ólafur Börkur Þorvaldsson, var skipaður hæstaréttar­dómari af Birni Bjarna­syni árið 2003 þótt aðrir umsækjendur hefðu verið metnir hæfari samkvæmt 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár