Skipuleggja hipp hopp-stórtónleika með konur í forystu

Femíníska við­burða­fyr­ir­tækið Puzzy Patrol heldur tón­leika og mál­þing um upp­gang og sögu femín­isma í hipp hopp-heim­inum ásamt umræðum um stöðu og fram­tíð kvenna í dag.

Skipuleggja hipp hopp-stórtónleika með konur í forystu
Konur taka pláss Á tón­leikum sem haldnir verða 20. jan­úar í Gamla bíói koma fram margar af þekkt­ustu kraft­konum íslenska hipp hopp-heims­ins, meðal ann­ars Reykja­vík­ur­dætur.

Puzzy Patrol, fem­inískt við­burða­fyr­ir­tæki, sér­hæfir sig í við­burðum með lista­konum og bregst nú við kynja­halla í tón­list­ar­líf­inu með tón­leika­haldi. „Það hallar á konur í tón­list og þær eru útundan. Það sýndi sig þegar Reykja­vík Grapevine var að fjalla um nýlið­un­ina í hipp hopp í sumar og það var ekki minnst á eina ein­ustu konu þótt þær væru svo margar að gera góða hluti í þess­ari senu,“ segir Val­gerður Árna­dóttir, sem rekur Puzzy Patrol, með Ingi­björgu Björns­dóttur, vin­konu sinni. 

Mótsvar við TrumpVal­gerður fann fyrir inn­blástri til að stofna Puzzy Patrol með vin­konu sinni þegar Trump var settur í emb­ætti sitt.

Næsti við­burður tvíeyk­is­ins eru tón­leikar með kraft­miklum konum úr hipp hopp-sen­unni, meðal ann­ars Cell7, Alviu og Reykja­vík­ur­dætrum en sam­hliða tón­leik­unum verður haldið mál­þing þar sem Laufey Ólafs­dóttir kynnir BS rit­gerð sína: „Hipp-hopp femín­ismi, mark­aðsvæð­ing menn­ingar og þöggun hins háværa minni­hluta: Er hipp-hopp vett­vangur fyrir femín­isma?“

Val­gerður segir að sam­staða kvenna í listum sé bráð­nauð­syn­leg. „Það hallar alltaf á konur, en ég held að það sé ekki endi­lega af því að gaur­arnir séu vilj­andi að skilja þær útundan, heldur er þetta orðið normið. Þeir halda sér saman, í sínum hópi, halda sína tón­leika og dettur ekki einu sinni í hug að hafa sam­band við þær.“

Risaeðlum fer fækkandi

Val­gerður segir að það sé ekki endi­lega slæmur ásetn­ingur að baki þess­ari hegðun heldur séu þetta ómeð­vit­aðir for­dómar. Val­gerður segir að hinn vest­ræni heimur sé á tíma­mótum varð­andi kven­frelsi eftir að Donald Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna og #metoo bylt­ing­ing fór af stað. „Við erum helm­ingur jarð­ar­búa, við erum að gera list og við erum að taka pláss. Auðvitað eru ennþá ein­hverjir rapp­arar að tala niður til kvenna í sínum texta og svo­leiðis, en skila­boðin eru að breyt­ast og vakn­ingin nær til flestra, sér­stak­lega til yngri kyn­slóð­ar­innar.“

Jafnvel þótt Puzzy Patrol vinni sér­stak­lega að því að vekja athygli á lista­konum segir Val­gerður að tak­markið sé að á end­anum verði hætt að skil­greina konur sem kven­lista­menn. „Þær eru mann­eskjur sem eru að gera list og það þarf ekki að flokka það eftir kyni þeirra. Konur eiga einmitt að mega fjalla um það sem þær vilja; þær þurfa ekki að vera með fem­inískan boð­skap frekar en þær vilja.“

--

Við­burð­ur­inn er hald­inn í Gamla bíói 20. jan­úar. Mál­þingið hefst klukkan 15.00 og tón­leik­arnir klukkan 20.00 þar sem fram koma ALVIA, Cell7, Fever Dream, Krakk & Spag­hettí, Reykja­vík­ur­dætur og Sigga Ey. Miðaverð er 3.900 kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár