Móðurfölsun og móðurmorð

Um Móð­ur­lífið, blönduð tækni eftir Yrsu Þöll Gylfa­dóttur.

Móðurfölsun og móðurmorð

„Það er vissu­lega auð­veld­ara að vera lista­maður þegar maður er móður- og föð­ur­laus, held ég.“ Þessa setn­ingu les dóttir í bréfi frá löngu lát­inni móður. En þótt mæður deyi er maður ekki endi­lega móð­ur­laus, ekki þegar móð­irin er fræg lista­kona sem ásækir dótt­ur­ina ítrekað aftur í gegnum forna frægð.

En spólum aðeins til baka. Þetta byrjar allt á dag­bók. Einni af þessum ótal dag­bókum sem byrjað er á en gleym­ast svo – í henni er bara ein færsla, óljós æskuminn­ing eða draumur. Það er ekki alveg ljóst, aðal­per­sónan Kamilla er að lesa þetta löngu seinna og er ekki alveg viss. En strax í byrjun fáum við að smakka á mörgum helstu kostum bók­ar­innar; hversu vel hún lýsir óreiðu­kenndum draumum, sem og litlum  hvers­dags­legum sann­leiksmolum sem sjaldan eru orð­aðir – eins og allar dag­bæk­urnar og stíla­bæk­urnar sem deyja á fyrstu síð­unum.

Svona gullfa­legar og ein­faldar hvers­dags-stemmur eru víða í bók­inni, eins og þegar nývöknuð Kamilla sér nágrann­ann og er fegin að hann hafi ekki séð hana, „[...] til að þurfa ekki að spjalla strax, svona nývöknuð og koff­ín­laus.“

„Stundum fram­kall­ast þessar stemmur svo og verða eitt­hvað miklu stærra og meira og fal­legra“

Stundum fram­kall­ast þessar stemmur svo og verða eitt­hvað miklu stærra og meira og fal­legra, eins og þegar Kamilla sýnir ferða­manni borg­ina og býr til þessa stór­kost­legu teng­ingu á milli ferða­manns og barns, með sín nýju og óreyndu augu:

„Allt í einu var göngut­úr­inn upp göt­una heim úr leik­skól­anum orð­inn að meiri­háttar spennu­för, þar sem mis­fellur í gang­stétt­inni, lít­ill fíf­ill í steypu­sprungu, regn­dropi á lauf­blaði eða óvenju­leg lögun á bruna­hana voru grand­skoðuð og rædd í þaula.“

Þá er bókin sann­ar­lega laun­fyndin á köflum. Frosk­ur­inn Sean Connery er fluttur stein­dauður á milli íss­kápa á meðan hann bíður greftr­unar, fánar eru settir í hunda­skít, gömul kona útskýrir af hverju drekku­tím­inn klukkan fimm er hápunktur dags­ins og maður heilsar ókunnum manni með hund og útskýrir svo eftir á: „Fólk á hunda svo þeim sé heilsað oftar.“

Uppreisnarlata kynslóðin

En þótt það sé húmor­inn og ein­stak­lega naskar og mann­legar hvers­dags-stemm­urnar sem fanga mann fyrst þá er það þó plottið sem heldur manni. Það virð­ist þó frekar hvers­dags­legt í byrjun. Kamilla er söng­kona sem syngur í jarð­ar­förum og virð­ist sæmi­lega sátt við sitt, þótt maður skynji á köflum söknuð eftir alvöru blússandi ham­ingju, hún er sátt en vantar smá flug­elda í lífið. Hún á vel gerðan son og virð­ist hafa náð ágætis frið í gegnum eigin rútínu. Það virð­ist ekki breyta miklu þegar hún er fengin til að aðstoða við yfir­lits­sýn­ingu um list Sirríar, lát­innar móður sinnar. Ólíkt föður sínum og bróður virð­ist hún nefni­lega búin að vinna í sínum málum og búin að ná sátt við þessa erf­iðu móður.

Sirrí er sann­ar­lega ákveðin erkitýpa, lista­kona af hippa­kyn­slóð­inni sem yfir­gefur börnin og fórnar fjöl­skyldu­líf­inu fyrir list­ina. Þetta kyn­slóða­bil er ein­kenn­andi fyrir flestallar kon­urnar í sög­unni, eldri kon­urnar eru iðu­lega kjaft­forar og ber­söglar á meðan þær yngri daðra jafn­vel stundum við tepru­skap – þeim finnst hálf­part­inn að það þurfi að rit­skoða þessar gömlu kjaft­foru kyn­systur sínar. Þannig birtir sagan okkur kyn­slóð sem virð­ist átaka­fæln­ari og upp­reisn­arlat­ari en sú sem á undan kom – og tóma­rúmið sem hún virð­ist upp­lifa á köflum þess vegna. Hún deilir vissu­lega sam­fé­lags­legri með­vit­und og póli­tík móð­ur­innar í flestu, en hana vantar ástríð­una – þetta brennur ekki á henni. Hún erfði list­ina en ekki ástríð­una, hún syngur í jarð­ar­förum sem er ekki ólíkt þeim list­ræna dauða sem móð­irin ótt­að­ist mest.

Hlutverk Kamillu virð­ist þó frekar ein­falt. Hún er eini ætt­ing­inn sem sýnir þess­ari sýn­ingu ein­hvern áhuga og því er hún fengin til að hjálpa til við að nálg­ast ætt­ingj­ana og fá frá þeim list­gripi og efni tengt Sirrí. Það gengur þó ansi illa – þangað til hún kemst að því að ein­hverjir kassar séu hjá móður lát­ins elsk­huga mömm­unnar í Banda­ríkj­unum. Þegar þangað kemur fer ástin svo að kræla á sér, bæði gömul ást og ný. En það er þó sú gamla sem hefur yfir­hönd­ina.

Í köss­unum finnur hún nefni­lega ekki bara safn­gripi, heldur líka gömul bréf móður sinnar til Ingólfs, elsk­hug­ans sem virð­ist hafa verið stóra ástin í lífi hennar. Þetta eru ber­sögul bréf og Kamilla lærir sitt­hvað nýtt um móður sína, þótt fátt komi það henni á óvart; bréfin eru svo sann­ar­lega í karakter hinnar kjaft­foru lista­konu og áhuga­lausu móður. Þar kemur hins vegar for­vitni­legt rof í upp­lifun les­anda og Kamillu, því þótt les­and­inn skemmti sér yfir þess­ari hömlu­lausu konu, án þess að hneyksl­ast nein ósköp, þá stingur þetta Kamillu. Því þetta er móðir hennar og flest sem hún finnur í bréf­unum eru ítrekuð svik við fjöl­skyld­una og sinnu­leysi gagn­vart henni. Innst inni leyfði hún sér kannski að vona að móð­irin hafi elskað hana – en þessi bréf virð­ast tor­tíma þeirri von.

Listin eða listamaðurinn?

„Ég var búin að segja þér það, fullt af fólki hefur ein­göngu áhuga á lista­mann­inum Sirrí. Í alvör­unni, ég veit ekki á hvaða tímum þú heldur að við lifum, en fólk hefur séð allan and­skot­ann í fjöl­skyldu­að­stæðum og er ekki að kippa sér upp við það þótt ein kona sé ekki súper­góð móðir eða hafi haldið fram­hjá.“

Þessi sena sýnir ágæt­lega hvernig þessi mál horfa öðru­vísi við fjöl­skyld­unni ann­ars vegar og umheim­inum hins vegar – og líka það hvernig bók sem lík­lega hefur verið kláruð á þessu ári er strax að örlitlu leyti orðin sögu­leg skáld­saga. Kannski voru þessar full­yrð­ingar Þóreyjar sýn­ing­ar­stjóra líka ósannar síð­asta vor – en nú á dögum #metoo lifum við sann­ar­lega á tímum þar sem fólk kippir sér upp við syndir lista­manna og klippir þá jafn­vel út úr til­búnum verkum eða frestar frum­sýn­ingu út af mögu­legum skandölum.

Þannig eru áhyggjur Kamillu skyndi­lega orðnar áhyggjur lista­heims­ins alls, þótt til­efnið sé vissu­lega allt annað. En hér er hins vegar rétt að vara við örlitlu spilli­efni fyrir þá sem vilja ekk­ert vita of mikið fyr­ir­fram:

Kamillu dettur örþrifa­ráð í hug. Fyrir hálf­gerða til­viljun, í hálf­gerðu óráði, fer hún að bæta í bréfin – og endar á að end­ur­skrifa þau öll með fals­aðri rit­hönd móður sinnar. Ein lítil hvít lygi stækkar og stækkar – þótt kannski sé hún að gera fólki greiða, heila það jafn­vel. Hún finnur sig betur og betur í hlut­verki fals­ar­ans, hins skap­andi ævi­sagna­rit­ara, og jafn­vel þegar hún er búin að falsa bréfin sjálf þá heldur hún áfram að skrifa.

Það  er eins og hún hafi upp­götvað skáldið í sjálfri sér og um leið og hún grefur sig dýpra og dýpra í eigin gröf kvikna með les­anda áhuga­verðar spurn­ingar um eðli lista og fræða og mörkin þar á milli.

List­fræði og menn­ing­arrýni snýst meðal ann­ars um að reyna að temja hið ótamda, en um leið að reyna að skilja það – en þótt Kamilla sé í raun að reyna að temja móður sína freist­ast hún til þess að kasta af sér fræði­manns­hamnum og taka sér ham svindlar­ans – eða lista­manns­ins. Hún er lyg­ar­inn sem má ekki ljúga, hún hefur afsalað sér sínu list­ræna frelsi með því að ganga inn í  hlut­verk skrá­setj­arans.

En hún vill ekki skrá­setja móður sína eða skilja hana, hún er búin að gera nóg af því, búin að reyna það nógu lengi. Hún vill ein­fald­lega semja hana upp á nýtt, það er hennar móð­ur­morð. Svo er spurn­ingin bara hvort list­fræð­ing­arnir leyfi það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár