Undir látlausu yfirborði

Bók Krist­ínar Eiríks­dóttur Elín, ýmis­legt er furðu­leg lestr­a­r­eynsla. Frá­sögnin er köld og óper­sónu­leg og sagan lætur lítið yfir sér við fyrstu sýn.

Undir látlausu yfirborði
Kristín Eiríks­dóttir Mynd: dino ignani

 

                                                  

                                                     Elín, ýmis­legt

                                                       Kristín Eiríks­dóttir

                                                        JPV

                                                        3 stjörnur af 5

                                                          

Um mið­bik skáld­sögu Krist­ínar Eiríks­dóttur er kafli um karl­menn sem fara til Taílands til að kaupa blíðu þar­lendra kvenna. Þessi kafli í bók­inni, sem segir frá lífi rúm­lega sjö­tuga leik­mynda­hönn­uð­ar­ins Elínar, nær að fanga vel líðan og stemn­ing­una hjá þessum körlum án þess að Kristín sé kvik­ind­is­leg eða dæm­andi á nokkurn hátt þegar hún segir frá for­sendum þeirra fyrir Taílands­ferð­unum. Elín kynn­ist einum þeirra, Mike, sem Kristín lýsir svona: „Til að byrja með greini ég engan mun á honum og hinum. Sömu kakís­tutt­bux­urnar, sami póló­bol­ur­inn, sömu sokk­arnir í sömu sand­öl­unum, sömu blás­legnu næpu­hvítu leggirnir.“ 

Þessi hluti bókar Krist­ínar er brilj­ant af því hann lýsir þessum heimi Taíland­skarl­anna vel og af sam­kennd í fáum og meit­l­uðum orðum. „Kyn­hvötin er bara frum­hvöt einsog svengd og þreyta. Hun er eðli­legur hluti af líf­inu og hvers vegna á að neita mér um að svala frum­þörf?,“ segir Mike þegar hann útskýrir fyrir Elínu að hverju hann leitar. Elín veltir því fyrir sér hvað Mike sér þegar hann sér hana, hvað taí­lensku kon­urnar hugsa um hana af því hún er hvorki á hött­unum eftir kyn­lífi eins og kall­arnir, eða pen­ingum eins og þær, og ein­mana menn­irnir líta ekki á hana sem kyn­veru. Hvað vill Mike henni þá?

Kaflinn er einn af þeim betri í bók Krist­ínar: Sterkur, skrít­inn og óþægi­legur. Fram að honum finnst mér vanta flug í sög­una eins og hún bíði eftir því að byrja. Frá­sögnin er lát­laus, hlut­læg, hörð og laus við stórar til­finn­ingar að mestu, dálítið ein­tóna. Þessi bók er ekki sin­fónía, heldur lág­stemmdur ein­leikur á streng. Orðið ísmeygi­leg kemur upp í hug­ann, eða lævís, því undir text­anum og orð­unum á blöð­unum leyn­ist kannski eitt­hvað meira en við fyrstu sýn. Und­ir­texti bók­ar­innar er örugg­lega lengri en þessar tæpu 200 síður sem nóv­ellan telur. 

Elín fær í byrjun bók­ar­innar senda til sín kassa með gömlum hlutum úr æsku sinni en bókin er öðrum þræði um minn­ing­arnar úr for­tíð Elínar - einn kass­inn er merktur Elín, ýmis­legt, heiti bók­ar­innar - sem tengja má köss­unum. Hún er vinna við nýtt leik­rit eftir unga konu, Ellenu Álfs­dóttur, sem er dóttir ógæfu­sams rit­höf­undar sem hét Álfur Finnsson, og Elín á minn­ingar sem tengj­ast leik­rita­skáld­inu og föður hennar. Þannig flétt­ast líf Elínar og Ellenar saman og býr til þráð­inn þeirra á milli. Elínu finnst leik­ritið sjálft reyndar vera „algert drasl“ og telur að ástæðan fyrir því að það er sett upp sé að fólk vilji vita hvernig það var fyrir Elínu að alast upp með þekktu breysk­menni eins og Álfi en ekki út af virði þess sem lista­verks.  Áhugi fólks á leik­rit­inu er því ekki áhugi á góðu leik­verki heldur gægju­þörf inn í líf frægs manns. 

Bók Krist­ínar skortir fleiri hápunkta, meira ris, eins og í frá­sögn­inni af Taílands­ferð Elínar. Sagan verður dálítið flöt en kannski er það mark­miðið með lát­leys­inu að kalla fram þau hug­hrif hjá lesandum.  Inn á milli koma samt leiftr­andi setn­ingar og hugs­anir eins og: „Lát­laus­asta og algeng­asta manns­hvarfið á sér samt stað innra með manni sjálfum. Þegar per­sónu­leik­inn tekur við starfi sál­ar­innar og heldur áfram, alger­lega vél­rænt með hjálp lík­am­ans,“ sem skilja mann eftir með hugs­anir. Kristín er fær.

Þetta er sér­stök bók, und­urfurðu­leg alveg og erfið: Sjálfur botna ég ekki alveg í henni. Ég er alveg viss að ég mun ekki lesa neitt þessu líkt á næst­unni. Eftir að hafa lesið hana hugs­aði ég svip­aðar hugs­anir og þegar ég hef lokað sumum bókum Steinars Braga, til dæmis Hálend­inu: Hvern fjand­ann var ég eig­in­lega að lesa og hvað er höf­und­ur­inn að segja mér í þess­ari sögu? Þetta er bók sem maður þarf eig­in­lega að lesa aftur og svo kannski aftur. Það er alltaf gaman þegar skáld­sögur kýla mann, eða löðr­unga eins og þessi, og skilja eftir óvissu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jólabækur

Hvernig skrifa rithöfundarnir?: „Manneskja sem er skelfingu lostin gagnvart orðunum“
MenningJólabækur

Hvernig skrifa rit­höf­und­arnir?: „Mann­eskja sem er skelf­ingu lostin gagn­vart orð­unum“

Jóla­bóka­flóðið hefur verið sagt sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri þar sem svo margar bækur koma út, eða um 35 til 40 pró­sent allra bóka sem gefnar eru út á hverju ári. Stundin fékk fimm rit­höf­unda, sem allir gefa út skáld­verk fyrir þessi jól, til að lýsa því hvernig þeir skrifa bækur sínar og bað þá vin­sam­leg­ast líka að fara út fyrir efnið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár