GAMMA sankar að sér einbýlishúsum og raðhúsum fyrir allt að 100 milljónir

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA kaupir upp rúm­lega 40 fast­eignir, meðal ann­ars rað­hús og ein­býl­is­hús í dýrum hverfum í Reykja­vík. Keyptu 103 millj­óna króna ein­býl­is­hús við Sel­vogs­grunn og 96 millj­óna króna rað­hús við Laug­ar­ás­veg. Eign­irnar standa utan við Almenna leigu­fé­lagið og eru í eigu sjóðs með ógagn­sætt eign­ar­hald.

GAMMA sankar að sér einbýlishúsum  og raðhúsum fyrir allt að 100 milljónir
Veðmál sem heppn­að­ist Veðmál GAMMA á íslenska fast­eigna­mark­aðnum heppn­að­ist og heldur fyr­ir­tækið áfram að kaupa upp fast­eignir í stórum stíl. Gísli Hauksson, stofn­andi GAMMA, sagði árið 2013 að GAMMA hygð­ist ekki kaupa meira en um 140 íbúðir en síðan hafa eign­irnar meira en tífald­ast.

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA heldur áfram stór­felldum upp­kaupum á íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur nú í auknum mæli fært sig yfir í rað­hús og ein­býl­is­hús sem kosta allt að 100 millj­ónir króna. Þessar eignir GAMMA standa utan við Almenna leigu­fé­lagið svo­kall­aða sem á 1.300 íbúðir og sem skráð verður á hluta­bréfa­markað á næsta ári, sam­kvæmt því sem Gísli Hauksson, stofn­andi og starf­andi stjórn­ar­for­maður GAMMA, sagði í við­tali við Bloomberg um miðjan nóv­em­ber. Auk upp­kaupa á íbúð­ar­hús­næði mun Almenna leigu­fé­lagið ætla að reisa 4.000 leigu­í­búðir. 

Aðspurður segir Gísli við Stundina að hug­myndin með upp­kaup­unum á þessum eignum sé að vera með þær í lang­tíma­leigu: „Þessi félög sem þú nefnir hafa á síð­ustu tveimur árum keypt nokkra tugi stærri sér­býla í þeim til­gangi að leigja þau út í lang­tíma­leigu. Eft­ir­spurn eftir slíkum eignum hefur verið minni á fast­eigna­mark­aði og verðið á þeim hefur að okkar mati ekki verið hátt í sam­an­burði við minni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár