Íhuga að leita til saksóknara vegna viðskipta Björns Inga með DV og Pressuna

Ný stjórn Pressunnar sendir frá sér yfir­lýs­ingu um mis­unun kröfu­hafa og vafasöm við­skipti með DV og fleiri miðla, af hálfu Björns Inga Hrafns­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns. Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður er skráður eig­andi, en ekki kemur fram hver fjár­magn­aði kaupin.

Íhuga að leita til saksóknara vegna viðskipta Björns Inga með DV og Pressuna
Björn Ingi Hrafns­son Frá­faradi stjórn­ar­for­maður reiddi fram 80 millj­óna króna kröfu á Pressuna og voru miðlar félags­ins, þar á meðal DV, selt út á yfir­töku á kröfu hans. Mynd: Skjáskot af ÍNN

Ný stjórn fjöl­miðla­fé­lags­ins Press­unar, sem átti og rak fjöl­miðl­ana DV, Pressuna, Eyjuna, Bleikt.is og fjölda hér­aðs­frétta­blaða, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu um við­skipti fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns­ins, Björns Inga Hrafns­sonar, þar sem hann er meðal ann­ars sak­aður um hót­anir, mis­munun kröfu­hafa og að hafa mis­farið með fé.

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni þykir nýjum eig­endum sem við­skiptin séu vafasöm og að hugs­an­leg lög­brot verði send til hér­aðs­sak­sókn­ara til rann­sóknar.

Fram hefur komið að eign­irnar í félag­inu voru seldar út úr félag­inu, yfir í félagið Frjálsa fjöl­miðlun ehf, sem Sigurður G. Guð­jóns­son er skráður fyrir. Ný stjórn hefur kom­ist að raun um að Björn Ingi Hrafns­son stjórn­ar­for­maður var lyk­ill­inn að þeim við­skiptum, með þeim hætti að hann gerði 80 millj­óna króna kröfu á félagið og seldi eignir þess með yfir­töku á þeirri kröfu. Ekki kemur fram hvers vegna Björn Ingi átti 80 millj­óna króna kröfu á félagið.

Þá kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi útgef­andi og stjórn­ar­for­maður, hafi haft í hót­unum við for­svars­menn Dalsins, eig­enda Pressunnar og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga hans.

"Fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Press­unar og fyrrum útgef­andi hefur ítrekað haft í hót­unum við stjórn­ar­menn Dalsins. Felast þær hót­anir meðal ann­ars í skrifum um ein­staka hlut­hafa Dalsins sem lekið skal til fjöl­miðla, sem eru byggðar meðal ann­ars á gögnum og rök­semd­ar­færslum sem not­aðar voru af Novator í til­hæfu­lausum mála­ferlum við sömu aðila," segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Yfir­lýs­ingin í heild sinni:

Und­an­farnar vikur hefur stærsti hlut­hafi Press­unar, Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn ehf., ítrekað óskað eftir hlut­hafa­fundi í Press­unni sem loks var hald­inn með aðstoð ráð­herra í dag. Á dag­skrá fund­ar­ins var umræða um kaup­samn­ing Press­unar við Frjálsa Fjöl­miðlun, ráð­stöfun kaup­verðs til kröfu­hafa og kosn­ing stjórnar.

Nýir stjórn­ar­menn í Press­unni eru þeir Matthías Björns­son, Ómar R. Valdi­mars­son og Þor­varður Gunn­ars­son.

Pressan getur ekki staðið undir skuld­bind­ingum

Stjórn Press­unar hefur nú undir höndum gögn sem sýna umtals­verðar skuldir við opin­bera aðila, líf­eyr­is­sjóði og almenna kröfu­hafa. Frá­far­andi stjórn Press­unar hefur ekki getað upp­lýst eig­endur og nýja stjórn­ar­menn félags­ins um hvernig félag­inu verði gert kleift að standa við sínar skuld­bind­ingar.

Skuldir Press­unar og tengdra félaga við Toll­stjóra vegna opin­berra gjalda nema um 150 millj­ónum króna auk umtals­verða van­skila ann­arra kröfu­hafa.

Mismunun kröfu­hafa

Eins og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum voru nán­ast allar eignir Pressunnar ehf. og DV ehf. seldar til Frjálsrar Fjöl­miðl­unar ehf. þann 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Ný stjórn félags­ins hefur þá kaup­samn­inga undir höndum þar sem meðal ann­ars kemur fram að kaup­verð er greitt með yfir­töku á kröfu frá­far­andi stjórn­ar­for­manns á félagið að fjár­hæð 80.000.000 króna auk yfir­töku á hand­völdum skuldum félag­anna þar sem Björn Ingi Hrafns­son er í per­sónu­legum ábyrgðum. Þetta ásamt öðrum atriðum, sem nánar verður gerð grein fyrir síðar, hefur gert það að verkum að legið hefur fyrir grunur um að ekki hafi ein­ungis verið mis­farið með fjár­muni félag­anna heldur hafi kröfu­höfum félag­anna einnig verið mis­munað í bága við lög. 

Hlutverk nýrrar stjórnar

Fyrstu störf nýrrar stjórnar verða að kanna fjár­hags­stöðu félags­ins nánar og með­ferð fjár­muna félags­ins og taka í fram­haldi af því ákvörðun um hvort skylda beri til að gefa félagið upp til gjald­þrota­skipta og hvort atvik séu með þeim hætti að vísa eigi ein­stökum þáttum til hér­aðs­sak­sókn­ara til frek­ari rann­sóknar. Skoðað verður sér­stak­lega hvort fram­kvæmda­stjóri hafi nýtt fjár­muni félags­ins í eigin þágu. 

Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn ehf. er eig­andi að 68,27% hlut í Press­unni og hefur lagt umtals­verða fjár­muni til rekst­urs Press­unar og tengdra félaga. Fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Press­unar og fyrrum útgef­andi hefur ítrekað haft í hót­unum við stjórn­ar­menn Dalsins. Felast þær hót­anir meðal ann­ars í skrifum um ein­staka hlut­hafa Dalsins sem lekið skal til fjöl­miðla, sem eru byggðar meðal ann­ars á gögnum og rök­semd­ar­færslum sem not­aðar voru af Novator í til­hæfu­lausum mála­ferlum við sömu aðila. Þá hefur ítrekað verið reynt að kom­ast hjá því að halda hlut­hafa­fundi þrátt fyrir ósk stærsta hlut­hafa þannig að leita þurfti til ráð­herra til að þvinga boðun fund­ar­ins. Þetta gefur til kynna að fyrrum stjórn­ar­mönnum og stjórn­endum Pressunnar sé umhugað um að eig­endur félags­ins og opin­berir aðilar kom­ist ekki yfir fjár­hags­legar upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár