Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Þrjú hundruð stjórnmálakonur skora á stjórnvöld: „Hótað nauðgun vegna skoðana minna“

305 ís­lensk­ar stjórn­mála­kon­ur skrifa und­ir áskor­un til stjórn­mál­anna um­að taka kyn­ferð­is­lega áreitni og of­beldi al­var­lega. Níu reynslu­sög­ur fylgja áskor­un­inni, þar sem þær segja frá því hvernig þeim var hald­ið niðri með slíkri fram­komu.

Þrjú hundruð stjórnmálakonur skora á stjórnvöld: „Hótað nauðgun vegna skoðana minna“

Já, ég er einhleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórnmálastarf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á konunum sínum,“ segir ónafngreind íslensk stjórnmálakona.

Ríflega 300 íslenskar konur úr öllum flokkum hafa sent frá sér áskorun til stjórnmálanna um að taka á kynferðisofbeldi og áreitni af festu, þar sem allir flokkar setja sér viðbragðsreglur og lofi konunum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær fái stuðning.

Samhliða því sendu stjórnmálakonurnar níu reynslusögur ónafngreinda kvenna, sem greina frá áreitni sem þær hafa orðið fyrir. Ein segir þar frá því að henni hafi verið hótað nauðgun vegna skoðana sinna og önnur segir það þekkt á alþjóðlegum fundum hvaða stjórnmálamenn séu mestu perrarnir, því þær hafi margar lent í þeim.

Sögurnar má allar lesa hér að neðan, sem og yfirlýsinguna í heild sinni.

 

„ Margar hafa fengið beina hótun um að pólitískur ferill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það einhvernveginn“

1. Síðan ég byrjaði að starfa í pólitík hafa nokkrir menn úr stjórnmálaflokknum, og þá flestir giftir menn verið að senda mér skilaboð á kvöldin. Menn gera sér upp misjöfn tilefni til þess að hafa samband. Segjast vilja hjálpa mér ef mig vanti einhverja hjálp t.d. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir vilji eiga inni hjá mér greiða eða hvort þeir séu að sýna að þeir séu valdameiri. Svo koma komment eins og: þú ferð nú í framboð er það ekki? Þú hefur allavega kinnbeinin í það. (Já, stelpur, þið sem eruð með kinnbein, drífið ykkur í framboð!) Svo hef ég líka fengið: þú ert nú með röddina í það, oh þessi rödd! Einn af þessum mönnum veit ég til að hefur verið að hafa samband við fleiri ungar konur í flokknum. Já ég er einhleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórnmálastarf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á konunum sínum.

 2. Ég var einu sinni í Finnlandi á UNR sem er Ungmenna þing Norðurlandaráðs sumsé þvert á alla flokka þegar ég mæti í kjól og hælum fyrir dinnerinn segir hann NEI loksins sexy og sæt kona í vinstri pólitík, sama kvöld talaði hann við nokkra aðra stráka um þetta og í hvert skipti sem ég og sænsk vinkona mín gengum nálægt honum þá þurfti hann að kommenta á útlit okkar. Óþolandi og gerði mig alltof meðvitaða um sjálfa mig, áttum svo eftir heilan dag af þinginu og ég meikaði bara ekki að tjá mig daginn eftir á fundinum. 

Annars á svipuðum event sat ég með nokkrum ungum konum af öllum flokkum þar sem var farið yfir hvaða þingmenn væru mestu perrarnir á þessum þingum. 

Það er því miður þannig að flestar af ungu konunum sem taka þátt í þessum þingum hafa lent í perraköllum og sumar hafa bara mjög grófar og ógéðslegar sögur. Margar hafa fengið beina hótun um að pólitískur ferill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það einhvernveginn

„Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar“

3. Eftir umræðufund um málefni tengt Íraksstríðinu hélt hópurinn á bar og þar sem ég sat og ræddi við stjórnmálamenn tvo og einn vin þeirra um mál fundarins, fór vinurinn upp úr þurru að benda á hvað ég væri með fallega brjóstaskoru. Mér þótti þetta augljóslega óþægilegt og bað hann um að hætta þessu, en hann hélt áfram. Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar, ég fór. Hvað hafði eiginlega gerst, í miðri málefna umræðu var ég á svipstundu orðin hlutur í augum þriggja manna. Ég á fleiri svona sögur.

4. Er komin fram sagan af karlkyns borgarstjóranum sem fór með gamanmál í fjölmennri veislu í Viðey á vegum borgarinnar? Þar fjallaði hann um gangtegundir kvenna. Þær hafa nefnilega bara tvenns konar gang: frekjugang og yfirgang. Þetta var á þessari öld notabene.

5. Einn af upprennandi stjórnmálamönnunum er með margar „óstaðfestar“ sögur um áreitni gangvart ungum konum. Innan flokksins var gert mál úr þessu og reynt að láta hann sæta ábyrgð. Einhverjar konur gátu ekki hugsað sér að starfa með flokknum vegna þessa manns. Ekkert kom útúr málinu og maðurinn starfar í flokknum eins og ekkert hafi í skorist enda er svo rosalega dramatískt að hefta pólitískan feril ungs manns þrátt fyrir sögusagnir.

„Nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra“

6. Ég er nýkjörin formaður í nýju kjördæmisfélagi flokks. Öflugt félag strax, fundarherferðir, umræður og stuð ... Ýmsir karlmenn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður ... Nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra ... Engum tókst en hafði þau áhrif að mig langaði ekki að vera í forystu ... þeirra.

7. Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoðana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um allskonar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.

8. Að taka þátt í prófkjöri var ávísun á að þurfa þola kossa, þukl og faðmlög frá flokksMönnum, helst með bros á vör, (annars myndu Þeir ekki kjósa þig).

9. Ég hef verið þátttakandi í pólitísku starfi allt frá menntaskólaárum. Ég hef oft orðið fyrir niðurlægjandi ummælum og framkomu sem beinlínis má rekja til þess að ég er kona, en ég hef ekki orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í störfum mínum í nefndum, í framboði, í borgarstjórn, á alþingi eða í ráðuneyti. Það er ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekki undir áskorunina en sé svo að það hafa nokkrar gert, sem eins er ástatt um. En utan hins pólitíska vettvangs - bæði í vinnu og í skemmtanalífi hef ég lent í alls konar - eins og sagt er. 

 

Áskorun til stjórnmálanna

Í SKUGGA VALDSINS #METOO

1. Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu. 

2. Meðfylgjandi eru frásagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.

„Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð“

3. Það verður að verða breyting á. Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.

Á meðal þeirra sem skrifa undir áskorunina eru þingkonur, fyrrverandi ráðherrar og framákonur í stjórnmálum. Þar má nefna Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra og borgarstjóra sem nú starfar fyrir UN Women, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi varaformann Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra, sem og Svandísi Svavarsdóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra og Oddnýju Harðardóttir sem stýrði fjármálaráðuneytinu um tíma. 

Ráðherrar fráfarandi ríkisstjórnar eru einnig á listanum, þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Björt Ólafsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem og aðstoðarkona forsætisráðherra, Svanhildur Hólm Valsdóttir. 

Undirskriftir:

1. Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður og borgarfulltrúi. Samfylkingin.

2. Guðlaug Svala S Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Björt framtíð.

3. Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastjóri VG.

4. Sigríður Erla Sturludóttir, 2. varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

5. Claudia Overesch, Alþýðufylkingin.

6. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands.

7. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viðreisn.

8. Silja Jóhannesdóttir, stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar.

9. Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.

10. Nikólína Hildur Sveinsdóttir, alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar

11. Björt Ólafsdóttir, ráðherra. Björt Framtíð.

12.  Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

13. Hildur Þórisdóttir, varabæjarfulltrúi L-lista á Seyðisfirði og formaður Samfylkingar á Seyðisfirði.

14. Þórey Vilhjalmsdottir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

15. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð.

16. Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

17. Herdís Sigurjónsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.

18. Dagrún Ósk Jónsdóttir, ritari UVG.

19. Sigrún Jónsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi.

20. Margrét Erla Þórsdóttir, viðburðastýra UVG.

21. Sigrún Skaftadóttir, fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóðaritari Ungra Jafnaðarmanna og núverandi stjórnarmaður í kvennahreyfinu Samfylkingarinnar. 

22. Sólveig Skaftadóttir, stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar.

23. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna og forseti borgarstjórnar.

24. Margrét Lind Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

25. Elín Margrét Böðvarsdóttir. Sjálfstæðisflokknum. 

26. Kristbjörg Þórisdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins.

27. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna.

28. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

29. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

30. Þórlaug Borg Ágústdóttir, ráðsfulltrúi og fyrrverandi formaður Pírata í RVK.

31. Eva Einarsdottir, varaborgarfulltrúi og fyrrverandi varaþingkona. Björt Framtíð.

32. Sólveig Anna Jónsdóttir, Sósíalistaflokki Íslands.

33. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar í Fljótsdalshéraði.

34. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrrv. þingkona Samfylkingarinnar.

35. Laufey Líndal Ólafsdóttir, meðlimur í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands.

36. Guðrún Arna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Garðabæ. Samfylkingin.

37. Pálína Margeirsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar í Fjarðabyggð.

38. Auður Lilja Erlingsdóttir. Vinstri Græn.

39. Margrét M. Norðdahl, varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Samfylkingin.

40. Dagbjört Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.

41. Halldóra Mogensen, þingkona Pírata.

42. Eva Pandora Baldursdóttir, fráfarandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi.

43. Svandís Svavarsdóttir, formaður þingflokks VG.

44. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.

45. Ragnheiður Hergeirsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.

46. Bryndís Haralds, þingkona og bæjarfulltrúi. Sjálfstæðisflokkurinn.

47. Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.

48. Þórhildur Hlín, ungir jafnaðarmenn.

49. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

50. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Vinstri græn.

51. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna.

52.  Ída Finnbogadóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.

53. Kristín Elfa Guðnadóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg.

54. Rósanna Andrésdóttir, Samfylkingunni.

55. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þinmaður, ritari og starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

56. Eva H. Baldursdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður Félags frjálslyndra jafnaðarmanna.

57. Esther Ösp Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.

58. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.

59.  Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður. VG.

60. Sigrún Blöndal, bæjarfulltrúi L-listans á Fljótsdalshéraði og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

61. Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ og formaður bæjarráðs.

62. Katla Hólm Þórhildardóttir. Píratar.

63. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, fyrrverandi formaður UVG. Vinstri Græn.

64.  María Hjálmarsdóttir, varaþingmaður samfylkingarinnar í Norðaustur kjördæmi.

65. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Samfylkingin.

66.  Sigurþóra Bergsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.

67. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar. Sjálfstæðisflokkur.

68. Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, varabæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.

69. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Samfylkingunni.

70. Silja Snædal Drífudóttir, fyrrverandi alþjóðaritari UVG og varamaður í stjórn VG í Reykjavík.

71. Erla Björg Guðmundsdóttir, Samfylkingunni.

72. Alma Lisa Johannsdottir, VG.

73. Marta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík. Samfylkingin.

74. Tanja Rún Kristmannsdóttir, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna.

75. Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og ritari VG.

76.  Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri. Framsóknarflokkurinn.

77. Oddný Sturludóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

78. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar.

79. Ingibjörg Ingvadóttir, Framsóknarflokki.

80. Eydís Blöndal, önnur varaþingkona VG í Reykjavík suður.

81. Nichole Leigh Mosty, formaður hverfisráðs Breiðholts og fyrrum þingmaður Bjartar framtíðar.

82. Halla Gunnarsdóttir, varaþingmaður VG.

83. Kristín Sævarsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi.

84. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.

85. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði, Kvennalista, Reykjavíkurlista og Samfylkingu.

86. Iðunn Garðarsdóttir, Vinstri græn.

87. Dóra Sif Tynes, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar.

88. Andrea Hjálmsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri.

89. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg.

90. Margrét Tryggvadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar. 

91. Jónína Erna Arnardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

92. Guðrún Ágústsdóttir, aðal- og varaborgarfulltrúi á árunum 1978-1999. Forseti borgarstjórnar frá 1994-1999. VG.

93. Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar.

94. Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrum forman Ungra jafnaðarmanna.

95. Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.

96. Hildur Friðriksdóttir. VG.

97. Sigríður Pétursdóttir, formaður hverfisráðs Kjalarness. VG.

98. Una Hildardóttir, gjaldkeri og varaþingmaður VG. 

99. Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra Vinstri grænna.

100. Ása Elín Helgadóttir, framkvæmdarstjórn UJ. Samfylkingin.

101. Marzibil S. Sæmundardóttir, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

102.  Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

103. Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi í Rvk. Samfylking.

104. Sema Erla Serdar, fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi.

105. Gerður Jónsdóttir, stofnfélagi í Miðflokknum. Fyrrverandi formaður Landssambands framsóknarkvenna, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri.

106. Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

107. Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata og varaþingmaður Pírata.

108. Kristín María Birgisdóttir, formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar. Listi Grindvíkinga.

109. Anna Lísa Björnsdóttir. VG.

110. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands.

111. Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

112. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir. Framsóknarflokki.

113. Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata.

114. Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi varaformaður ungra jafnaðarmanna.

115. Svala Jónsdóttir, varamaður í nefnd fyrir VG.

116. Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálaráðgjafi og meðlimur í Samfylkingunni.

117. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður UVG.

118. Helga Dögg Björgvinsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

119. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins.

120. Guðný Hildur Magnúsdóttir, VG, fyrrverandi formaður VG á Vestfjörðum og núverandi stjórnarkona VG á Vestfjörðum.

121. Jóna Björg Sætran, 4 á lista Framsóknar- og flugvallarvina, á lista Framsóknarflokksins til alþingiskosinga 2017.

122. Birna Hafstein, Viðreisn.

123. Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.

124.  Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.

125. Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, fyrrverandi formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar á Vestfjörðum.

126. Rannveig Ernudóttir, fyrrverandi ritari Pírata og núverandi vararitari Pírata, frambjóðandi með Pírötum 2017.

127. Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, innanstarfsfulltrúi UVG.

128. Greta Björg Egilsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og nú síðast á lista Miðflokksins.

129. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdaráðs Pírata og núverandi formaður Pírata í Hafnarfirði.

130. Guðrún Ágústa þórdísardóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata.

131. Álfheiður Eymarsdóttir, kafteinn Pírata á Suðurlandi og varaþingmaður.

132.  Fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri til 12 ára, formaður Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri í 10 ár. Miðstjórn ASÍ og stjórn LÍV.

133. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, stofnfélagi í Miðflokknum, áður í Framsókn.

134. Ása Richardsdóttir, Samfylkingin ,bæjarfulltrúi Kópavogi og varaforseti bæjarstjórnar.

135. Ása Lind Finnbogadóttir, fyrrverandi frambjóðandi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Samfylkingu.

136. Þorgerður María Halldórsdóttir, fv. Sjálfstæðisflokknum.

137.  Margrét Kristín Helgadóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn Akureyrar.

138. Guðrun Erla Geirsdóttir, ein af stofnendum Kvennaframboðsins og Samfylkingarinnar og fyrverandi varaborgarfulltrúi.

139. Björk Vilhelmsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans.

140. Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, fyrrverandi formaður UJ í Gbæ og Álftanesi, fyrrverandi stjórn Röskvu.

141. Halldóra Jónasdóttir, einkaþjálfari og flugkona, virk innan Pírata og frambjóðandi í SV fyrir Pírata 2017.

142. Hanna Bjartmars Arnardóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar.

143. Þorgerður Jóhannesdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi.

144. Silja Dōgg Baldursdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri. L- listinn.

145. Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar.

146. María Pétursdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands.

147. Ingibjörg Stefánsdóttir, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, fyrrverandi varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og varamaður í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Fyrrverandi starfskona Kvennalistans.

148. Sigríður Sigmarsdóttir. Sjálfstæðisflokkur.

149. Anna Margrét Guðjónsdóttir, fyrrverandi varaþingkona Samfylkingarinnar, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík.

150. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.

151.  Hólmfríður Bjarnadóttir. Pírati.

152. Unnur Tryggvadóttir Flóvenz, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og fyrrverandi málefnastýra Ungra jafnaðarmanna.

153. Sigríður M Guðjónsdóttir, bæjarfullltrúi Fjarðslistans í Fjarðabyggð.

154. Sigríður Gísladóttir, formaður VG á Vestfjörðum.

155. Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimur í stjórn Samfylkingarfélags  Reykjavíkur, SffR.

156. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra  Sjálfstæðisflokksins.

157. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG.

158. Steinunn Rögnvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna.

159. Geirlaug Jóhannsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð. Samfylking.

160.  Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

161. Guðrún Íris Valsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.

162. Bryndís Sigurðardóttir, fyrsti formaður Samfylkingar í Hveragerði og á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi fyrir nokkrum kosningum.

163. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.

164.  Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir. Sjálfstæðisflokkurinn.

165. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins.

166.  Ásta Kristín Sigurjónsdóttir , fyrrverandi bæjarfulltrúi og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

167.  Diljá Ámundadóttir, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Bjartrar Framtíðar.

168. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi og bæjarstjóri á Akureyri. Sjálfstæðisflokki.

169. Bryndís Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi, fyrrverandi formaður SUF og fyrrverandi varaþingmaður Framsóknar.

170.  Ingibjörg Óðinsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

171. Elva Dögg Ásud. Kristindóttir, oddviti VG í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn.

172. Borghildur Sölvey Sturludóttir, varabæjarfulltrúi BF í Hafnarfirði.

173. Þorgerður Anna Arnardóttir. Sjálfstæðisflokkurinn.

174. Valgerður Halldórsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Samfylking.

175. Vilborg Oddsdóttir, 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíð suður fyrir síðustu Alþingiskosningar.

176. Jónína Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Heimdalli og oddviti Vöku félags lýðræðissinnaðra stúdenta á Menntavísindasviði. Sjálfstæðisflokkurinn.

 177. Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs og fyrrvreandi varaþingmaður.

178. Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.

179. Katrín Ósk, varaþingmaður Sjálfstæðisflokkins í SV, varaformaður Stefnis, félags ungra í Hafnarfirði og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ.

180. Jenný Heiða Zalewski, varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.

181. Ásrún Birgisdóttir, ritari Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi í Reykjavík.

182. María Júlía Rúnarsdóttir. Framsókn.

183. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

184. Margrét Gísladóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra og fyrrverandi ráðgjafi forsætisráðherra. Framsókn.

185. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, varaþingkona Framsóknar og stjórnarmeðlimur SUF.

186. Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata.

187. Dagbjört Hákonardóttir, fyrrverandi gjaldkeri og meðstjórnandi Ungra Jafnaðarmanna, Röskvukona og fyrrverandi formaður Ungra Evrópusinna.

188. Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins.

189. Ásrún Helga Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík fyrir Framsóknarflokkinn.

190. Eva Margrét Kristinsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi og fyrrverandi formaður ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi. Samfylking.

191. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði og varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi.

192. Guðrún Katrín, fyrrverandi flokkstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarstjótnarmaður á Seyðisfirði fyrir Samfylkinguna.

193. Guðveig Eyglóardóttir, oddviti Framsóknar í sveitarstjórn Borgarbyggðar.

194. Lára Björg Björnsdóttir, VG.

195. Sæunn Stefánsdóttir, fyrrum ritari og þingmaður Framsóknarflokksins.

196. Dagný Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.

197. Anna Björg Níelsdóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir Framfarasinna.

198. Inga María Hlíðar Thorsteinson, Sjálfstæðisflokkurinn.

199. Sunna Rós Víðisdóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdaráðs Pírata.

200. Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri Pírata.

201. Ragnhildur Vigfúsdóttir, Kvennalista og síðar Samfylkingin.

202. Inga Þyri Kjartansdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands Framsóknarkvenna, í miðstjórn og varamaður í kjördæmisráði Framsóknarflokks í SV.

203. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fyrrverandi varaborgafulltrúi Samfylkingarinnar.

204. Fríða Rós Valdimarsdóttir, fyrrverandi frambjóðandi Kvennalistans.

205. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann. Samfylkingin.

206.  Halla Sigríður Steinólfsdóttir, varaoddviti í sveitarstjórn Dalabyggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

207. Hafdís Gunnarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.

208.  Sif Huld Albertsdóttir, varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ.

209. Birna Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fyrrverandi varaþingmaður í NV-kjördæmi.

210. Hildur Knútsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður VG.

211. Hrefna Guðmundsdóttir, Björt framtíð, á lista bæði í sveitastjórnar- og alþingiskosningum.

212. Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður jafnréttisnefndar Viðreisnar.

213. Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

214. Sara Oskarsson, varaþingmaður Pírata.

215. Ásta Dís Guðjóns, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar. Sit í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokksins.

216. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður.

217. Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

218.  Jasmina Crnac, oddviti Bjartar framtíðar í Suðurkjördæmi. Einnig fulltrúi velferðarnefndar í Reykjanesbæ fyrir A-lista.

219.  Sigríður Elva Konráðsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi.

220. Guðrún Inga Ingólfsdottir, hagfræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. 

221. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

222. Una María Óskarsdóttir, uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.

223. Brynhildur S. Björnsdóttir. Björt framtíð.

224.  Halldóra Baldursdóttir, fulltrúi gæðamála OR. Miðflokkurinn.

225. Ólína Freysteinsdóttir, fjölskyldufræðingur, Samfylkingin.

226. Drífa Sigfúsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, varabæjarstjóri og varamaður á Alþingi, stjórn LFK, framkvæmdastjórn o.fl. Framsóknarflokki.

227. Anna Pála Sverrisdóttir, fyrrum formaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar.

228. Anna Lóa Ólafsdóttir, bæjarstjórn RNB 2014-15.

229. Jónína Holm, bæjarfulltrúi N listans, sem er þverpólitískt framboð í Garði.

230.  Sólveig Guðjónsdóttir, 3. sæti á lista Miðflokks í suðurkjördæmi. 

231.  Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar.

232. Auður Alfa Ólafsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar

233. Hildur Karen Sveinbjarnardóttir, Sjálfstæðisflokki. 

234. Anna Bara Ólafsdóttir, framkvæmdarstjóri. Miðflokkurinn.

235. Sunna Snædal, varakona í Velferðarráði, VG.

236. Valgerður Sveinsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins.

237. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi.

238. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 

239.  Laufey Elísabet Gissurardóttir, fjölskyldunefnd á Seltjarnarnesi. Samfylking.

240. Oktavía Hrund Jónsdóttir, 1. varaþingkona Pírata suðvestur og stjórnarformaður Evrópskra Pírata.

241. Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður og stjórnarmeðlimur Viðreisnar.

242. Lovísa Rósa Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar á Hornafirði. Sjálfstæðisflokki. 

243.  Þorbjörg Þorvaldsdóttir. Samfylkingunni

244. Þóra Magnea Magnúsdóttir, stjórnarmaður í VG, Reykjavík.

245. Ásdís Bjarnadóttir, 4. sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.

246. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

247. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritari stjórnar VG í Reykjavík.

248.  Margrét K. Sverrisdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Frjálslynda flokks og síðar borgarfulltrúi Samfylkingar.

249.  Herdís Hjörleifsdóttir, 7. sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.

250. Sigríður Sólveig, grasrótin í Sjálfstæðisflokknum. 

251.  Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.

252. Jórunn Einarsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi og varaþingmaður VG.

253. Eva Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður fræðslunefndar í Mosfellsbæ og fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

254. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina

255. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, aðstoðarmaður félags-og jafnréttismálaráðherra og varaþingmaður Viðreisnar. 

256.  Jóna Björg Hlöðversdóttir. VG.

257.  Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sjálfstæðisflokki.

258.  Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi Akranesi, Sjálfstæðisflokki.

259. Anna Aurora Waage Óskarsdóttir,framkvæmtastjóri og í stjórn Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ.

260.  Bergljót Kristinsdóttir, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og varabæjarfulltrúi.

261. Hildur Helga Gísladóttir, formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi.

262. Lilja Alfreðsdóttir, alþingiskona og varaformaður Framsóknarflokksins.

263.  Linda Hrönn Þórisdóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna.

264. Bjarnveig Ingvadóttir, Framsóknarflokkurinn, ritari Landsambands Framsóknarkvenna.

265. Rakel Dögg Óskarsdóttir. Framsókn og flugvallarvinir.

266. Elín Jóhannsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins.

267.  Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins.

268. Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna.

269.  Elín Jónsdóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, Selás og Ártúni og meðlimur í stjórn Varðar. 

270. Hreindís Ylva Garðarsd. Holm. VG.

271. Eygló Björg Jóhannsdóttir, formaður kjördæmasambands framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.

272. Gyða R. Stefánsdóttir. Sjálfstæðisflokkurinn.

273. Gerður Pálsdóttir, fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar. Samfylkingin

274. Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi. Björt framtíð.

275. Aníta Rut Hilmarsdóttir. Sjálfstæðisflokkurinn.

276. Bryndís Bjarnadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn.

277.  Margrét Pétursdóttir, stjórnarkona í VG.

278. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingkona Samfylkingar.

279. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og þingkona Samfylkingar.

280. Silja Rán Arnarsdóttir. Sjálfstæðisflokkurinn.

281.  Erla Guðrún Gísladóttir. VG

282.  Friðbjörg Matthíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn.

283. Varaformaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

284.  Fyrrum aðstoðarmaður ràðherra, Samfylkingin.

285. Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir, fyrrverandi kosningastýra í Reykjavík. Samfylkingin.

286. Margrét Frímann. Samfylking.

287. Björg Eva Erlendsdóttir,  framkvæmdastjóri VG og fyrrverandi stjórnarfulltrúi hér og þar.

288. Andrea Gunnarsdóttir, stjórnarmeðlimur Sambands ungra Sjálfstæðismanna.

289. Fyrrverandi varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar.

290. Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður Framsóknarfélags Húnaþings vestra.

291. Fyrrverandi formaður bæjarráðs og fyrrverandi stjórnarmaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sjálfstæðisflokkurinn.

292. Varaforseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og fyrrverandi alþingismaður

Sjálfstæðisflokksins.

293. Fyrrverandi Þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Pírata. 

294. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, stjórn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.

295. Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki.

296. María Grétarsdóttir,  bæjarfulltrúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ.

297. Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki.

298. Hildur Margrétardóttir, formaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og 2.

varabæjarfulltrúi.

299. Hólmfríður Garðarsdóttir, aðgerðarsinni víða, meðal annars í Samfylkingu og með Kvennalista.

300. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokki.

301. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins. 

302. Bergþóra Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks. VG.

303. Nanna Kristín Tryggvadóttir, varamaður í miðstjórn. Sjálfstæðisflokki.

304. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra

framsóknarmanna. 

305.  Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í

Fjarðabyggð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
5
Úttekt

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugs­ar: „Þetta vil ég ekki“

Ing­unn Lára Kristjáns­dótt­ir er rúm­lega þrí­tug og hef­ur aldrei fund­ið löng­un til barneigna. Hún tel­ur að inn í það spili ónóg­ur stuðn­ing­ur við barna­fjöl­skyld­ur í ís­lensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í fé­lags­fræði seg­ir ástæð­urn­ar fyr­ir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flókn­ar en að kerf­ið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyld­um, ekki síst mæðr­um.
Verðbólga hækkar meira en væntingar gerðu ráð fyrir
8
FréttirEfnahagsmál

Verð­bólga hækk­ar meira en vænt­ing­ar gerðu ráð fyr­ir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,46% frá því í júní. Ár­s­verð­bólga mæl­ist nú 6,3 pró­sent en var kom­in nið­ur í 5,8 pró­sent síð­asta mán­uði. Það er meiri hækk­un en spár við­skipta­bank­anna gerðu ráð fyr­ir. Auk­in verð­bólga þýð­ir að minni lík­ur eru á því að stýri­vaxta­hækk­an­ir muni eiga sér stað á þessu ári eins og von­ast var til.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
2
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Enginn sem tekur við af mér“
5
Viðtal

„Eng­inn sem tek­ur við af mér“

Það er barn­ing­ur fyr­ir marga að vera sjálf­stætt for­eldri á ein­um tekj­um. En hver er stað­an ef for­eldr­ið er al­far­ið eitt með barn­ið? Hvað ef barn­ið glím­ir við sér­tæk­ar grein­ing­ar? Alma Hrönn Hrann­ar­dótt­ir og Diljá Ámunda­dótt­ir Zoëga eru báð­ar ein­ar á vakt­inni, alltaf. Mæð­urn­ar hafa glímt við heilsu­brest vegna álags, með­vit­að­ar um að ef eitt­hvað kem­ur fyr­ir þær er eng­inn sem tek­ur við af þeim.

Mest lesið í mánuðinum

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
2
FréttirHúsnæðismál

Þau sem hafa hagn­ast æv­in­týra­lega á Þorp­inu

Ár­ið 2021 keypti hóp­ur fjár­festa í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag­ið Þorp­ið 6 ehf. lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ár­túns­höfða í Reykja­vík fyr­ir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­ind­in seld fyr­ir ell­efu millj­arða króna án þess að nokk­uð hafi ver­ið byggt á svæð­inu. Við­skipt­in sýna vel hvernig fjár­fest­ar geta hagn­ast æv­in­týra­lega með því að kaupa og selja lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömm­um tíma.
Greiddu 17 milljónir fyrir skýrslu um stöðu drengja
4
Fréttir

Greiddu 17 millj­ón­ir fyr­ir skýrslu um stöðu drengja

Skýrsla um stöðu drengja í skóla­kerf­inu sem unn­in var að beiðni mennta- og barna­mála­ráð­herra og há­skóla-, iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra kostaði sam­an­lagt um 13,7 millj­ón­ir króna auk virð­is­auka­skatts og hljóð­ar heild­ar­upp­hæð­in því upp á rúm­ar 17 millj­ón­ir. Tryggvi Hjalta­son, grein­andi hjá CCP, er eini höf­und­ur skýrsl­unn­ar. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa unn­ið að skýrsl­unni sam­hliða öðr­um störf­um en vinn­an tók um eitt og hálft ár.
Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti
5
RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flyt­ur inn hundruð tonna af kjöti

Ris­ar á ís­lensk­um kjöt­mark­aði, sem fengu í vor um­deild­ar und­an­þág­ur frá sam­keppn­is­lög­um til þess að verj­ast sam­keppni að ut­an, verða á þessu ári um­fangs­mest­ir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­naut­ar sjálfs sín. „Von­brigði,“ seg­ir formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar. Um­fangs­mik­il heild­sala á hundruð­um tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leiktjald fyr­ir öfl­ug­asta hags­muna­afl­ið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
6
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Ég var bara niðurlægð“
9
Viðtal

„Ég var bara nið­ur­lægð“

Séra Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, bisk­up Ís­lands, vill skila skömm­inni til kirkju­þings þar sem hún upp­lifði nið­ur­læg­ingu eft­ir að óvissa varð uppi um lög­mæti embætt­is­gjörða henn­ar. Hún seg­ir að kirkju­þing hafi átt að greiða úr mál­inu og eyða óvissu um stöðu henn­ar. Agnes tel­ur að karl­kyns bisk­up hefði aldrei þurft að þola slíka fram­komu af hálfu kirkju­þings en hún er fyrsta kon­an sem er kjör­in bisk­up.
Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
10
Fréttir

Þurftu að kalla fólk nið­ur af fjalli til að færa bíl­ana

Daní­el Freyr Jóns­son, svæð­is­sér­fræð­ing­ur í nátt­úru­vernd­art­eymi, seg­ir stans­laus­ar tepp­ur hafa ver­ið á bíla­stæð­um við Land­manna­laug­ar áð­ur en far­ið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld á álags­tím­um í sum­ar. Kalla hafi þurft bíl­stjóra nið­ur af fjöll­um til að færa bíl­ana til að greiða leið fyr­ir rút­um. Nýja fyr­ir­komu­lag­ið hafi hlot­ið góð við­brögð hjá gest­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu