Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Nýrnaveiki í eldislaxi leiðir til laxadauða og taps fyrir Arnarlax

Norskt móð­ur­fé­lag Arn­ar­lax á Bíldu­dal seg­ir nýrna­veiki hafa sett stórt strik í reikn­ing­inn hjá fyr­ir­tæk­inu í ár. Arn­ar­lax hef­ur glímt við nýrna­veik­ina frá því í fyrra­haust. Vík­ing­ur Gunn­ars­son­ar neit­ar að ræða nýrna­veik­ina og seg­ir hana vera smá­mál þrátt fyr­ir um­fjöll­un norska móð­ur­fé­lags­ins um skakka­föll­in vegna smit­sjúk­dóms­ins.

Nýrnaveiki í eldislaxi leiðir til laxadauða og taps fyrir Arnarlax
Neitar að tjá sig um opinberar upplýsingar Víkingur Gunnarsson neitar að tjá sig um upplýsingar um nýrnaveiki og laxadauða hjá fyrirtækinu sem norskt móðurfélag Arnarlax opinberaði í dag. Hann sést hér á tali við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra og Heiðrúnu Lind Marteinsdóttir hjá SFS á sjávarútvegssýningu í Brussel.

Nýrnaveiki hefur sett stórt strik í reikninginn í starfsemi laxeldisfyrirtækisins Arnarlax í Arnarfirði á þessu ári og leitt til mikils dauða á eldislaxi hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri móðurfélags Arnarlax, Salmar AS, sem gert var opinbert í morgun. Salmar er eitt stærsta laxeldisfyrirtæki Noregs og á 34 prósenta hlut í Arnarlaxi.  Í sérstökum kafla í árshlutauppgjörinu er fjallað um starfsemi Arnarlax nýrnaveikina sem fyrirtækið hefur barist við á árinu og allt frá því í fyrrahaust. 

Orðrétt segir í árshlutauppgjörinu: „Kostnaður við lífmassann [eldislaxinn] sem var ræktaður var á þriðja ársfjórðungi varð fyrir neikvæðum afleiðingum vegna líffræðilegra þátta, þar með talið hærri dánartíðni, meðal annars vegna fiskisjúkdómsins BKD, nýrnaveiki.“ Þessar upplýsingar um nýrnaveikina og dánartíðni eldislaxa Arnarlax á þriðja ársfjóðrungi 2017 hafa ekki komið fram áður en Salmar As virðist telja að brýnt sé að halda þessum upplýsingum til haga. 

 Tekjutap út sjúkdómnum

Fram kemur í uppgjörinu að tekjur Arnarlax hafi dregist saman frá 198 milljónum norskra króna á öðrum ársfjórðungi og niður í 113,8 milljónir norskra króna á þriðja ársfjórðungi 2017, meðal annars vegna nýrnaveikinnar. Þá fór hagnaður Arnarlax fyrir fjármagnsliði úr 26 milljónum norskra króna á öðrum ársfjórðungi og niður í mínus 4,8 milljónir norskra króna. 

„Ég ætla ekki að tala um þetta“

Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax, neitar að tjá sig um nýrnaveikina og þær upplýsingar sem fram koma í árshlutauppgjöri Salmar. Norska félagið gefur því meiri upplýsingar um nýrnaveikina en íslenska dótturfélagið. „Mér finnst þú skrifa um laxeldið á mjög einsleitan hátt og mér finnst eins og þú sért á móti þessari grein. Þannig að ég ætla bara ekkert að tjá mig um þetta. Þú getur bara skrifað það sem þú vilt. Þetta er ekki stórmál og ekki viðkvæmt mál. Ég ætla ekki að tala um þetta. Takk fyrir að hringja,“ segir Víkingur.  

Glímt við veikina í heilt ár

Fréttatíminn greindi frá því ársbyrjun að nýrnaveiki hefði komið upp hjá Arnarlaxi en þessi sjúkdómur er einn helsti sjúkdómurinn sem komið getur upp í laxeldi og getur verið erfitt að eiga við hann. Löxum sem sýkjast af nýrnaveikinni er slátrað og þeim fargað líkt og gert var hjá Arnarlaxi og Arctic Sea Farm síðastliðið haust samkvæmt frétt Fréttatímans. Þar sagði að slátra hefði þurft 200 tonnum af eldislaxi vegna sjúkdómsins en sá fiskur er svo keyrður til Borgarfjarðar þar sem hann er urðaður hjá sorphreinsistöð Borgarfjarðar. 

Nýrnaveikin smitast frá villtum laxi yfir til eldislaxsins þó villtir laxar beri ekki smiteinkenni sem eldislaxarnir bera. Sjúkdómurinn sýnir að eldislaxinn hjá Arnarlaxi hefur komist í návígi við villtan lax og getur slíkt samneyti falið í sér hættu á erfðablöndunun á milli villta íslenska laxisins og norska eldislaxsins sem notaður er í eldinu á Íslandi. Nýrnaveikin getur orðið svo skæð að dæmi er um að laxeldisfyrirtæki hafi orðið gjaldþrota þegar hún hefur komið upp samkvæmt Matvælastofnun Íslands. 

Árshlutauppgjör Salmar As má nálgast hér.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.
Gagnrýni SFS leiddi til lykilbreytinga á laxeldisfrumvarpinu
SkýringLaxeldi

Gagn­rýni SFS leiddi til lyk­il­breyt­inga á lax­eld­is­frum­varp­inu

Gagn­rýni frá Sam­bandi ís­lenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja spil­aði stóra rullu í því að nýju frum­varpi um lax­eldi var breytt og við­ur­lög minnk­uð við slysaslepp­ing­um. Þetta er ann­að mest um­deilda ákvæði frum­varps­ins en hitt snýst um að gefa lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um ótíma­bund­in leyfi til sjókvía­eld­is hér við land. Mat­væla­ráð­herra vill hætta við ótíma­bundnu leyf­in í lax­eld­inu eft­ir harða um­ræðu á Al­þingi.

Mest lesið

Domino's-þjóðin Íslendingar
2
Skýring

Dom­ino's-þjóð­in Ís­lend­ing­ar

Guð­fað­ir og stofn­andi Dom­ino´s á Ís­landi, Birg­ir Bielt­vedt, hef­ur enn og aft­ur selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu og er út­gerð­ar­kon­an Guð­björg Matth­ías­dótt­ir nú orð­inn stærsti hlut­haf­inn. Birg­ir er rauði þráð­ur­inn í æv­in­týra­legri sögu pitsu­fyr­ir­tæk­is­ins á Ís­landi sem hef­ur kom­ið sér í ein­staka mark­aðs­stöðu á skyndi­bita­mark­að­in­um á Ís­landi.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
6
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
9
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
8
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu