Tveir þingmenn VG sögðu nei: Rósa Björk og Andrés treysta ekki Sjálfstæðisflokknum

9 af 11 þing­mönnum Vinstri grænna vilja hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir vilja það hins vegar ekki. Eitt skref tekið í átt að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Tveir þingmenn VG sögðu nei: Rósa Björk og Andrés treysta ekki Sjálfstæðisflokknum
Vill ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir er annar af tveimur þing­mönnum Vinstri grænna sem vill ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn. 9 vilja það hins vegar.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, seg­ist vera á móti því að Vinstri grænir myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum út af því hvernig tvær síð­ustu rík­is­stjórnir með flokk­inn inn­an­borðs hafa endað. Þá á Rósa við rík­is­stjórn­ina sem hætti í kjöl­far opin­ber­unar Panama­skjal­anna í fyrra og þeirrar rík­is­stjórnar sem sprakk nú á haust­dögum vegna upp­reist æru hneyksl­is­ins. „Ég ber fullt traust til for­ystu Vinstri grænna en ekki til við­mæl­enda okkar í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum, það er að segja til Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Rósa Björk var annar af þing­mönnum Vinstri grænna sem greiddi atkvæði gegn því að teknar yrðu upp form­legar við­ræður um stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sóknar en níu þing­menn voru fylgj­andi því að farið verði í þessar við­ræður. Hinn þing­mað­ur­inn er Andrés Ingi Jónsson. Kosning um við­ræð­urnar fór fram á þing­flokks­fundi sem hófst klukkan eitt í dag og sem lauk rétt fyrir klukkan tvö. 

Auk þess­ara spill­ing­ar­mála sem komið hafa upp á síð­ustu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár