Einn auðugasti maður landsins skilaði ekki skattframtali í áratug

Kristján Vil­helms­son, einn eig­andi Samherja, sem á meira en sex millj­arða í eignir, hefur ekki skilað skatt­inum upp­lýs­ingum frá árinu 2005.

Einn auðugasti maður landsins skilaði ekki skattframtali í áratug
Kristján Vil­helms­son Hefur auðg­ast veru­lega á sjáv­ar­út­vegi.

Einn auð­ug­asti maður lands­ins, Kristján Vil­helms­son, ákvað „af ásetn­ingi“ eða „í það minnsta af stór­kost­legu hirðu­leysi“ að sleppa því að skila skatt­fram­tali í meira en ára­tug, eða frá árinu 2005.

Yfir­skatts­nefnd úrskurð­aði nýlega í máli Krist­jáns Vil­helms­sonar, eins helsta eig­anda Samherja, sem skil­aði ekki skatta­yf­ir­völdum neinum skýrslum. Meðal ann­ars hlaut hann meira en 1,2 millj­arða króna í arð vegna hluta­bréfa­eignar sinnar árin 2012 og 2013, án þess að senda skatta­skýrslur. Frétta­blaðið greindi fyrst frá mál­inu í dag.

Einn helsti kvótaeigandi landsins

Kristján er hand­hafi 2,17 pró­sent allra veiði­heim­ilda við Íslands­strendur í gegnum 33,4 pró­sent hlut sinn í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Samherja, sem fer með 6,52 pró­sent alls fisk­veiði­kvóta. Talið er að Kristján eigi eignir upp á meira en 6 millj­arða króna. 

Þá hefur Stundin greint frá því að Kristján átti aflands­fé­lag á Tortola. Ekki er ljóst hvernig félagið var notað, en skatt­rann­sókn­ar­stjóri ákvað að hefja rann­sókn á skatt­skilum Krist­jáns „á grund­velli upp­lýs­inga sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra bár­ust um félag í hans eigu á lág­skatta­svæði“.

Frá árinu 2005 hafa tekjur því verið verið áætl­aðar á Kristján, þar sem hann skilar ekki skatta­yf­ir­völdum upp­lýs­ingum. Sama gildir um eig­in­konu hans. Kristján lét þannig hjá líða að „gera grein fyrir tekjum og eignum svo veru­legum fjár­hæðum nam,“ eins og segir í úrskurði yfir­skatta­nefndar.

Skiluðu ekki upplýsingum þrátt fyrir skattrannsókn

Yfir­skatta­nefnd lítur van­rækslu Krist­jáns og eig­in­konu hans, Kol­brúnar Ing­ólfs­dóttur, alvar­legum augum.

„Með rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins var leitt í ljós að gjald­endur hafa með van­rækslu sinni á skilum skatt­fram­tala ítrekað látið hjá líða að gera grein fyrir tekjum og eignum svo veru­legum fjár­hæðum nemur. Þá liggur fyrir að gjald­endur hafa ekki, þrátt fyrir rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins á skatt­skilum þeirra, staðið rík­is­skatt­stjóra skil á skatt­fram­tölum vegna umræddra gjald­ára,“ segir í úrskurði yfir­skatta­nefndar.

„Rík­is­skatt­stjóri sá ekki ástæðu til að end­ur­á­kvarða skatta gjald­enda“

Þeir sem van­rækja að skila skatt­fram­tali af ásetn­ingi eða stór­kost­legu gáleysi geta átt von á sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum, sam­kvæmt lag­anna hljóðan. Rannsókn skatta­yf­ir­valda leiddi hins vegar ekki í ljós und­an­skot í til­felli Krist­jáns og eig­in­konu hans. „Við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar þykir hafa þýð­ingu að rík­is­skatt­stjóri sá ekki ástæðu til að end­ur­á­kvarða skatta gjald­enda í kjöl­far rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins, sam­an­borið bréf rík­is­skatt­stjóra þess efnis, dag­sett 29. mars 2017, og voru áætl­anir rík­is­skatt­stjóra á skatt­stofnum gjald­enda vegna við­kom­andi gjald­ára látnar standa óhagg­aðar,“ segir í úrskurð­inum.

Ákveðið var að Kristján skyldi greina 5 millj­ónir króna í sektir, en eig­in­kona hans, Kolbrún Ing­ólfs­dóttir, eina milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár