Bono var ekki á Íslandi

Fjöl­miðlar hafa í dag borið til baka fréttir þess efnis að írski söngv­ar­inn Bono hafi verið í gælu­dýra­búð, í Frú Laugu, á Prikinu og víðar.

Bono var ekki á Íslandi
Ekki Bono Með­fylgj­andi mynd er af Pavel Sfera Mynd: Bonodouble.com

Írski söngv­ar­inn Bono var ekki á Íslandi síð­ustu daga, þótt margar fréttir hefðu birst í ýmsum fjöl­miðlum um veru hans hér. Íslenskir fjöl­miðlar hafa í dag verið að leið­rétta fréttir þessa efnis.

„Hann keypti sér stein­selju og súr­deigs­ba­gettu. Hann var reyndar með aðra bagettu með sér þegar hann mætti til okkar en vildi greini­lega aðra,“ sagði við­mæl­andi Vísis í fyrstu frétt af mörgum um komu Bonos til Íslands á föstu­dag­inn í síð­ustu viku.

„Bono versl­aði í Frú Laugu“ var frétt á mbl.is 3. nóv­em­ber. „Afgreiðslu­konan var alveg grun­laus en henni þótti gler­augun kunn­ug­leg,“ sagði við­mæl­andi Morg­un­blaðs­ins.

Bono fór í gælu­dýra­búð, var önnur frétt á mbl.is. „Hann kom hérna í dag. En hann keypti ekki neitt,“ sagði við­mæl­andi Morg­un­blaðs­ins.

Raun­veru­legur BonoTón­list­ar­mað­ur­inn Kygo birti mynd af sér með upp­runa­legum Bono í Cannes 5. nóv­em­ber, á svip­uðum tíma og Bono var sagður vera í gælu­dýra­búð í Reykja­vík.

Bono keypti stein­selju og súr­deigs­ba­gettu í Frú Laugu, var end­ur­sögn Nútímans.is af ferðum hans hér­lendis.

Bono fór á Prikið, sagði í frétt Vísis.is. Birt var paparazzi mynd af honum því til sönn­unar, þar sem hann sást sitja eins og hver annar óáreittur með bjór. 

Nú er komið á dag­inn að Bono var ekki á Íslandi. Allar frétt­irnar áttu við um tví­fara hans, Serbinn Pavel Sfera. Hann spil­aði meðal ann­ars á gítar í Banka­stræti fyrir hóp fólks. Vísir.is, sem sagði fyrstu frétt af mál­inu, hefur nú greint frá mis­skiln­ingnum í frétt­inni „Tvífari Bono dregur Íslend­inga á asna­eyr­unum“.

Bono varði hins vegar ára­mót­unum á Íslandi 2013. Eða svo var sagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár