Tékkneskur Trump vinnur kosningasigur

Margir eru uggandi yfir úrslitum tékknesku þing­kosninganna og óttast jafnvel að Tékkland kunni að sigla í sömu alræðisátt og nágranna­ríkin Pólland og Ungverja­land. Flokkur næst­ríkasta manns landsins vann stórsigur á meðan hinir hefð­bundnu valda­flokkar biðu afhroð.

Andrej Babiš
Andrej Babiš Tæplega þriðj­ungur kjós­enda sagði já við ANO, flokki auð­kýf­ings­ins Babiš. Mynd: Úr safni

Auðjöfurinn og fjölmiðla­mógúllinn Andrej Babiš var ótvíræður sigurvegari tékknesku þing­kosninganna þann 22. október síðastliðinn, þrátt fyrir að rannsókn á spillingar­málum honum tengdum standi enn yfir. Flokkur hans, ANO, sem þýðir „JÁ“ á tékknesku, hlaut tæp 30 prósent atkvæða og 78 þingsæti af 200 og er því lang­stærsti flokkur landsins. Hinir átta flokkarnir sem náðu kjöri eru með á bilinu 6–25 þingsæti.

Babiš hefur verið kallaður popúlisti og hefur í heims­pressunni verið líkt við stjórn­málamenn á borð við Donald Trump og Silvio Berlusconi, hann hefur jafnvel verið uppnefndur Babišconi. Það er þó um margt erfitt að festa fingur á stefnumál hans – og áherslur hans gætu litast töluvert af því með hverjum hann myndar á endanum ríkis­stjórn.

Ég hitti Jan Martinek, þing­frétta­ritara dagblaðsins Právo, við þinghúsið í Prag og ræddi við hann um stöðuna, stjórnar­kreppuna sem virðist líkleg, innflytjenda­málin, japansk-tékkneska rasista­leiðtogann og tékkneska pírata.

Stjórnarkreppa yfirvofandi?

„Ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár