Lofa að hækka frítekjumarkið sem þau lækkuðu sjálf

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætlar að bæta kjör eldri borg­ara með því að hækka frí­tekju­markið sem var lækkað í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, og með því að bæta heima­þjón­ust­una, sem er á ábyrgð sveit­ar­fé­laga en ekki rík­is­ins. Páll Magn­ús­son seg­ist hins vegar hafa átt við heima­hjúkrun, sem sé almennt á vegum rík­is­ins.

Lofa að hækka frítekjumarkið sem þau lækkuðu sjálf
Páll Magn­ús­son Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í suð­ur­kjör­dæmi aug­lýsir aðgerðir sem eru á for­ræði sveit­ar­fé­laga, en ekki rík­is­ins. Mynd: Skjáskot af Facebook

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðar betri  kjör eldri borg­ara með því að hækka frí­tekju­markið, bæta heima­þjón­ust­una og fjölga hjúkr­un­ar­heim­ilum að því er fram kemur í nýju kosn­inga­mynd­bandi frá flokknum. Frí­tekju­mark atvinnu­tekna eldri borg­ara var áður 109 þús­und krónur en var lækkað niður í 25 þús­und krónur um síð­ustu ára­mót. Sú ákvörðun var tekin í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þá er sú heima­þjón­usta sem öldruðum stendur til boða ekki á vegum rík­is­ins, heldur veita sveit­ar­fé­lög þá þjón­ustu. 

Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, fer fyrir umræddri aug­lýs­ingu. Hann segir ekki sann­gjarnt að stilla þessu upp með þeim hætti að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi lækkað frí­tekju­markið, enda hafi kerfið allt tekið stórum breyt­ingum á þessum tíma. Þá seg­ist hann ekki hafa átt við heima­þjón­ustu, líkt og hann segir í mynd­band­inu, heldur heima­hjúkrun. 

Orðrétt segir Páll í mynd­band­inu: „Við þurfum að breyta því hvernig við hugsum um eldra fólk. Við eigum ekki að setja fólk á hlið­ar­lín­una vegna ald­urs. Fólk þarf að geta unnið ef það vill vinna, en eiga vísan stuðn­ing þegar starfs­orkan minnkar. Þetta ætlum við að gera með því að hækka frí­tekju­markið, bæta síðan heima­þjón­ust­una og fjölga hjúkr­un­ar­heim­ilum. Af því að sam­fé­lagið er betra þegar allir taka þátt.“

 

Hafa áður lofað að afnema tekjutengingar

Eins og Stundin greindi frá í síð­asta blaði sendi Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kjós­endum bréf í aðdrag­anda kosn­inga árið 2013. Þar gaf hann öldruðum lof­orð um eitt og annað, kæm­ist hann í rík­is­stjórn, og sagði „eldri kyn­slóðir verð­skulda að búa við öryggi og góð lífs­gæði“ og fólk eigi að njóta afrakst­urs erf­iðis síns á efri árum. Meðal þess sem Bjarni lof­aði var að lækka fjár­magnstekju­skatt, sem kæmi einna harð­ast niður á eldri borg­urum lands­ins, og þá lof­aði hann að afnema tekju­teng­ingar elli­líf­eyris og sagði að þar væri „sann­ar­lega um rétt­læt­is­mál að ræða“. 

Eftir kosn­ing­arnar fór Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Fram­sókn­ar­flokknum og í tíð þeirrar rík­is­stjórnar var meðal ann­ars ákveðið að lækka frí­tekju­markið niður í 25 þús­und krónur, en það hafði sem fyrr segir áður verið 109 þús­und krónur. Þessi breyt­ing tók gildi um síð­ustu ára­mót og sagði Gísli Jaf­ets­son, fram­kvæmda­stjóri Félags eldri borg­ara í Reykja­vík, í við­tali við Stundina að breyt­ingin hefði haft mikil áhrif á afkomu elli­líf­eyr­is­þega.

Páll segir ekki sann­gjarnt að stilla málum upp með þessum hætti, því á þessum tíma hafi kerfið allt tekið miklum breyt­ingum, sem fólu meðal ann­ars í sér lækkun á frí­tekju­mark­inu. „Þannig það er býsna lang­sótt að tala um að frí­tekju­markið hafi verið lækkað blákalt og bera það svo saman við hækk­un­ina núna, vegna þess að allt kerfið breytt­ist,“ segir hann. „Kjör þeirra sem frí­tekju­markið var lækkað hjá hækk­uðu mikið meira með öðru fyr­ir­komu­lagi á þeim tíma sem þetta var gert. En auð­vitað liggja mis­mun­andi póli­tísk sjón­ar­mið þarna að baki.“

Rétt er að lækkun frí­tekju­marks­ins var hluti af stærri heild­ar­breyt­ingu á almanna­trygg­inga- og líf­eyr­is­kerf­inu í tíð Eyglóar Harða­dóttur þáver­andi hús­næðis- og félags­mála­ráð­herra. Hækkun frí­tekju­marks­ins olli hins vegar áhyggjum meðal elli­líf­eyr­is­þega á vinnu­mark­aði og sagði Haukur Ingi­bergs­son, þáver­andi for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, þær ekki atvinnu­hvetj­andi.

Allir stjórn­mála­flokkar lofa nú annað hvort hækkun frí­tekju­marks eða afnámi skerð­inga vegna atvinnu­tekna eldri borg­ara. Eins og fram kom í úttekt Stund­ar­innar á kosn­inga­lof­orðum telur hag­deild ASÍ að slíkar aðgerðir gagn­ist aðeins þeim ell­efu pró­sent elli­líf­eyr­is­þega sem hafa atvinnu­tekjur, en mis­muni þeim elli­líf­eyr­is­þegum sem ekki eru á vinnu­mark­aði því líf­eyr­is­sjóðs­tekjur þeirra muni eftir sem áður skerða elli­líf­eyri. 

Átti við heimahjúkrun

Í öðru lagi lofar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að bæta heima­þjón­ustu eldri borg­ara, en það eru sveit­ar­fé­lög sem veita þá þjón­ustu en ekki ríkið. Þjón­ustan er veitt á grund­velli laga um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga, en sveit­ar­fé­lögin setja sjálf nán­ari reglur um fram­kvæmd­ina. Það er því ekki á valdi rík­is­stjórn­ar­innar að bæta heima­þjón­ustu aldr­aðra, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lofar kom­ist hann til valda. 

Páll seg­ist hins vegar hafa átt við heima­hjúkrun, sem er aftur á móti almennt á hendi heil­brigð­is­stofn­ana í hverju heilsu­gæslu­um­dæmi, nema í heil­brigð­is­um­dæmi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem heima­hjúkrun er veitt af Heima­þjón­ustu Reykja­víkur sem heyrir undir Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar. Þar hefur félags­leg heima­þjón­usta verið sam­einuð heima­hjúkrun. Þá er heima­hjúkrun einnig á vegum sveit­ar­fé­lags­ins í til­viki Akur­eyrar.

Páll segir að almennt sé talað um að heima­þjón­usta skipt­ist í tvennt; ann­ars vegar félags­legu heima­þjón­ust­una sem sé veitt af sveit­ar­fé­lög­unum og síðan hjúkr­un­ar­þjón­ust­una sem sé veitt af heil­brigð­is­stofn­unum, nema í Reykja­vík og á Akureyri. Hann hafi verið að tala um hjúkr­un­ar­þjón­ust­una, þótt hann hafi notað orðið „heima­þjón­usta“ í aug­lýs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár