Sakar ráðherra um „helför“

Magnús Þór Haf­steins­son, áhrifa­maður í Flokki fólks­ins, segir Viðreisn hata íslenskan land­búnað.

Sakar ráðherra um „helför“

Magnús Þór Haf­steins­son, rit­stjóri hér­aðs­blaðs­ins Vest­ur­lands og fram­bjóð­andi Flokks fólks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum, sakar Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um „hel­för“ vegna stefnu frá­far­andi rík­is­stjórnar í mál­efnum sauð­fjár­bænda.

Flokkur fólks­ins hefur mælst hátt í skoð­ana­könn­unum und­an­farna mán­uði og vakið athygli fyrir þjóð­ern­ispopúl­ískan mál­flutn­ing. Eitt af ein­kennum þjóð­ern­ispopúl­ískra hreyf­inga í Evrópu er til­hneig­ing þeirra til að gera lítið úr atburðum á borð við hel­för­ina.

„Stöðvið hel­för land­bún­að­ar­ráð­herra!“ er tit­ill­inn á leið­ara Magnúsar í Vest­ur­landi um stöðu sauð­fjár­ræktar sem var end­ur­birtur á Eyjunni um helg­ina. „Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir land­bún­að­ar­ráð­herra Við­reisnar vill láta lóga fimmtu hverju [sic] kind í land­inu,“ segir í leið­ar­anum. „Það verður að stöðva fyr­ir­ætl­aða hel­för land­bún­að­ar­ráð­herra. Það verður að koma í veg fyrir það með öllum til­tækum ráðum að hatur Við­reisnar á íslenskum land­bún­aði og fyr­ir­litn­ing þessa flokks á full­veldi þjóð­ar­innar fái að brjót­ast út með þessum barna­lega hætti.“

Magnús Þór var þing­flokks­for­maður Frjáls­lynda flokks­ins á árunum 2003 til 2007 og vakti meðal ann­ars athygli fyrir þing­ræður og grein­ar­skrif um að tak­marka ætti frjálst flæði launa­fólks frá nýjum ríkjum EES og „stýra flæði erlendra nýbúa til lands­ins“.

Hann rataði svo í frétt­irnar árið 2008 þegar hann lagð­ist gegn því að Akra­nes­bær tæki á móti þrjá­tíu palest­ínskum flótta­mönnum. Nýlega þýddi hann bók­ina „Þjóð­ar­plágan íslam“ eftir Hege Storhaug, norska bar­áttu­konu gegn múslimum sem gagn­rýnd hefur verið fyrir að ala á hatri gegn inn­flytj­endum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár