Fólki kemur ekki við hvort það verður virkjað

Maðurinn sem hefur selt vatns­rétt­indi vegna virkj­unar í Hvalá, Pétur Guð­munds­son í Ófeigs­firði, er ósáttur við fólk að sunnan í leit að athygli sem er á móti virkj­un­inni. „Þeim kemur þetta ekk­ert við,“ segir hann. Stundin heim­sótti Pétur við enda veg­ar­ins í Ófeigs­firði.

Fólki kemur ekki við hvort það verður virkjað
Pétur í Ófeigs­firði Húsár­foss að baki hans er sýni­legur frá bæj­ar­dyrum hans. Hann mun ekki skerð­ast við virkj­un­ina. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Pétur Guð­munds­son er einn afskekkt­asti og ein­angr­að­asti íbúi Íslands.

Hann býr í Ófeigs­firði, þar sem nú er fyr­ir­huguð virkjun, sem mun valda því að fossar hverfa, en raf­magn og ljós­leið­ari með inter­neti kom­ast í næsta nágrenni við hann.

Pétur seg­ist vera orð­inn dauð­leiður á því að sitja og hlusta á Bubba Morthens á lang­bylgj­unni. 

„Við erum búin að fá bara nóg af honum,“ segir hann. „Við höfum ekki einu sinni útvarp. Við höfum lang­bylgj­una. Og á lang­bylgj­unni er nán­ast allan sól­ar­hring­inn Rás 2. Og við erum búin að fá miklu meira en nóg af þessu, og sér­stak­lega Óla Palla, og maður er búinn að fá nóg af Bubba, því hann er alltaf spil­aður. Enda­laust spil­aður Bubbi. Mér er ekk­ert illa við Bubba greyið. En maður fær bara nóg af þessu þegar þetta er annað hvert lag. Það er bara ekki hægt að opna útvarpið lengur. Það er …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár