Konan sem mætir prúðbúin á kjörstað

Ef Urður Harð­ar­dóttir fengi eina ósk þá væri hún sú að fólk sýndi meiri sam­kennd, góð­vild og vin­semd. Þá væri þetta betri staður, betri heimur. Vigdís Gríms­dóttir lagði fyrir hana 13 spurn­ingar.

Konan sem mætir prúðbúin á kjörstað

Nafn: Urður Harð­ar­dóttir

Fæð­ing­ar­dagur og ár: 1. októ­ber 1979

Starf: Ég vinn í upp­lýs­inga­tækni­deild Iceland Travel

Spurningar

1. Hvað er það skemmti­leg­asta sem þú gerir?

Ferðast með fjöl­skyld­unni og vera með skemmti­legu fólki ... já, og fara í rús­sí­bana.

2. Líf eftir þetta líf?

Veit það ekki, en vona það svo inni­lega.

3. Hvað er það neyð­ar­leg­asta sem þú hefur lent í?

Ég held að ég eigi ennþá eftir að lenda í því. Það gæti samt verið þegar ég óskaði konu til ham­ingju með ólétt­una sem var bara alls ekk­ert ólétt, eða þegar ég datt kylli­flöt fram fyrir mig á smekk­fullu veit­inga­húsi – já, ég var í mínu fín­asta pússi ... ekki töff.

4. Ertu póli­tísk?

Já, hæfi­lega. Fólkið í kringum mig hefur alltaf haft sterkar póli­tískar skoð­anir og ríka rétt­læt­is­kennd. Held ég hafi fengið gott póli­tískt vega­nesti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár