Sigríður Andersen braut lög þegar hún handvaldi dómara í Landsrétt

Dóms­mála­ráð­herra fór gegn lögum þegar hún hand­valdi sjálf dóm­ara í Lands­rétt og sneiddi hjá nið­ur­stöðu sér­stakrar hæf­is­nefndar. Hún skip­aði eig­in­mann sam­starfs­konu sinnar og eig­in­konu þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem ekki voru valin af hæf­is­nefnd. Þingmenn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sam­þykktu aðgerð­ina, ásamt þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks.

Sigríður Andersen braut lög þegar hún handvaldi dómara í Landsrétt

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra braut lög þegar hún ákvað að fara ekki að áliti sér­stakrar hæf­is­nefndar þegar hún ákvað að velja sjálf fjóra af fimmtán dóm­urum í nýjan dóm­stól, Lands­rétt.

Þetta er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í kæru­máli Ástráðar Har­alds­sonar, eins umsækj­end­anna, gegn íslenska rík­inu. Ástráður hafði verið met­inn meðal fimmtán hæf­ustu af hæf­is­nefnd, en Sigríður Andersen ákvað að velja aðra í hans stað.

Ráðherra óheimilt að handvelja dómara

Í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms Reykja­víkur segir að sýnt hafi verið fram á að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

Í 12. grein laga um dóm­stóla er kveðið á um að ráð­herra skipi þá sem hæf­is­nefnd velur, en ráð­herra geti þó gert breyt­ingar ef Alþingi sam­þykkir það. 

„Óheimilt er að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd hefur ekki talið hæf­astan meðal umsækj­enda“

„Óheimilt er að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd hefur ekki talið hæf­astan meðal umsækj­enda, hvort heldur einn eða sam­hliða öðrum. Frá þessu má þó víkja ef Alþingi sam­þykkir til­lögu ráð­herra um heim­ild til að skipa í emb­ættið annan nafn­greindan umsækj­anda sem full­nægir að mati dóm­nefndar öllum skil­yrðum til að hljóta skipun í emb­ættið. Ráðherra skal þá leggja slíka til­lögu fyrir Alþingi innan tveggja vikna frá því að umsögn dóm­nefndar er afhent honum,“ segir í lög­unum.

Þingmenn Viðreisnar og BF samþykktu

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sam­þykkti hins vegar inn­grip Sigríðar í málið á Alþingi. Björt Ólafs­dóttir, ráð­herra úr Bjartri fram­tíð, gagn­rýndi þannig femínista fyrir að leggj­ast gegn breyt­ingu Sigríðar. Hún sagði að „svo­kallað fag­legt mat hæf­is­nefndar“ á umsækj­endum væri í anda „gamla Íslands“.

„Það er ótrú­legt að hlusta á femínist­anna alla í stjórn­ar­and­stöð­unni gagn­rýna að 7 konur og 8 karlar eru skip­aðir í Lands­rétt af dóms­mála­ráð­herra í stað 10 karla og 5 kvenna sem að svo­kallað fag­legt mat hæf­is­nefndar lagði til. Það er gamla Ísland,“ skrif­aði Björt á Facebook. „Ég fagna því að dóms­mála­ráð­herra leggur til eitt­hvað meira í anda 2017, og furða mig á því að aðrir geri það ekki.“

Valdi sér tengda aðila í dóminn

33 umsækj­endur voru um stöðu fimmtán dóm­ara við Lands­rétt. Sigríður valdi meðal ann­ars mann sem met­inn var 30. hæf­astur, Jón Finn­björns­son, sem er eig­in­maður fyrr­ver­andi sam­starfs­konu Sigríðar og vinnu­veit­anda til margra ára á lög­fræði­stof­unni Lex. 

Einnig valdi Sigríður eig­in­konu Brynjars Níels­sonar, sem er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ástráður Har­alds­son, sem var í 14. sæti í mati hæf­is­nefndar, hefur áður starfað fyrir Vinstri hreyf­ing­una grænt fram­boð og var með­limur í Alþýðu­banda­lag­inu á árum áður, og hefur því verið tengdur við flokka sem eru í póli­tískri and­stöðu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Ástráður ætti hins vegar ekki að fá fjár­bætur vegna máls­ins, þar sem hann hefði ekki sýnt fram á fjár­tjón. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár