Norsk fyrirtæki eiga 84 prósent í íslensku fiskeldi

Norsk fyr­ir­tæki eiga 84 pró­sent í íslensku fisk­eldi, sam­kvæmt grein­ingu Stund­ar­innar. Þau færa út kví­arnar til Íslands vegna slæmra umhverf­is­á­hrifa af fisk­eld­inu í Noregi. Stór norsk eld­is­fyr­ir­tæki sjá sjó­kvía­eldi á laxi ekki sem fram­tíð­ina í grein­inni.

Nær allt hlutaféð frá Noregi
Nær allt hluta­féð frá Noregi Nær allt hlutafé íslensku fyr­ir­tækj­anna sem stunda sjó­kvía­eldi á laxi er komið frá norskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum. Myndin sýnir lax­eldi í Berufirði, hjá Laxeldi Aust­fjarða, sem er í meiri­hluta­eigu norskra eld­is­fyr­ir­tækja.

Tæplega 11 millj­arða króna hlutafé af rúm­lega 13 millj­arða króna hlutafé í fisk­eldi á Íslandi er í eigu erlendra fyr­ir­tækja. Um er að ræða ríf­lega 84 pró­sent af öllu hlutafé tíu íslenskra fisk­eld­is­fyr­ir­tækja. 

Að lang­mestu leyti er um að ræða hlutafé frá norskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum sem fjár­fest hafa í íslenskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum sem stunda sjó­kvía­eldi, Arn­ar­laxi og Arctic fish ehf. á Vest­fjörðum. Af 10.442 millj­óna króna hlutafé þess­ara tveggja fyr­ir­tækja eru 10.296 millj­ónir í eigu erlendra aðila en ein­ungis 146 millj­ónir í eigu íslenskra aðila. Þetta kemur fram við athugun Stund­ar­innar á hluta­fjár­eign þeirra 10 fisk­eld­is­fyr­ir­tækja sem starfs­hópur Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, fjall­aði um í skýrslu sem hann skil­aði af sér nú í ágúst. 

Auk þess­ara tveggja stóru og hluta­fjár­sterku lax­eld­is­fyr­ir­tækja eru tvö önnur lax­eld­is­fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í sjó­kvía­eldi á lax­fiskum í rúm­legri meiri­hluta­eigu norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja. Þetta eru Fiskeldi Aust­fjarða hf. og Laxar Fiskeldi hf. Eina fyr­ir­tækið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár