Margir hlæja að krabbameininu

Fannar Örn Ómarsson greind­ist í fyrra með krabba­mein í eista og voru komin mein­vörp í eitla og lungu. Við tók ströng lyfja­með­ferð sem hafði áhrif á lík­ama og sál. Fannar Örn segir að margir fari að hlæja þegar hann seg­ist hafa verið með krabba­mein í eista.

Margir hlæja að krabbameininu
Hvetur menn til að athuga Fannar Örn Ómarsson ráð­leggur strákum og körlum að skoða sig einu sinni í viku eða einu sinni í mán­uði í vel heitri sturtu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fannar Örn Ómarsson fór að finna fyrir verkjum í nára í fyrra­vor auk þess sem honum fannst annað eistað vera skrýtið. „Ég fór um tveimur vikum síðar á heilsu­gæsl­una þar sem læknir sagði að þetta væri ekki neitt og lét mig hafa sýkla­lyf. Sýkingin í nár­anum hvarf en eistað versn­aði.

Ég var kom­inn með ógleði­til­finn­ingu nokkrum vikum síðar og lík­am­inn var kom­inn í eitt­hvert sjokk. Ég fór um þremur vikum síðar á sjúkra­hús og hitti þar lækni sem kveikti strax á per­unni og pant­aði fyrir mig tíma í mynda­töku og ég hitti einnig þvag­færa­skurð­lækni.“

Fannar Örn fór í mynda­töku í byrjun maí og kom ekk­ert út úr henni. Verk­ur­inn í eist­anu versn­aði. „Það var orðið jafn­stórt og tenn­is­bolti.“

Hann fór síðan í aðra mynda­töku í júní og kom þá í ljós æxli í eist­anu. Bólgan vegna sýk­ing­ar­innar í nár­anum hafði komið í veg fyrir að það sæist …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár