Pútin í vanda staddur: Má keisari sjá brjóst?

Pútin í vanda staddur: Má keisari sjá brjóst?
Mathilde og Nikulás Hún er leikin af pólsku leikkon­unni Mikalínu Olszansku, hann af þýska leik­ar­anum Lars Eidinger.

Nú er Vladimír Pútin Rúss­lands­for­seti í vanda staddur. Í októ­ber næst­kom­andi á að frum­sýna austur í hinu víð­áttu­mikla landi hans kvik­mynd sem þegar hefur valdið miklum deilum, þótt eng­inn hafi séð hana ennþá.

Og þar sem Rússland er nú þannig að þar kemur allt til kasta Pútins fyrr eða síðar, þá er nokkuð víst að það verður lagt fyrir hann að leysa úr þessum deilum.

Og fyrir Pútin er gall­inn sá að báðir deilu­að­ilar eru stuðn­ings­menn hans dágóðir.

Alexei Útjitel heitir kvik­mynda­leik­stjóri austur í Rúss­landi sem nú er kom­inn nokkuð nálægt sjö­tugu. Hann var upp­haf­lega kvik­mynda­töku­maður en laust fyrir alda­mótin fór hann að gera sínar eigin myndir og komst fljót­lega í hóp virtra leik­stjóra þar, þótt myndir hans hafi ekki orðið ýkja þekktar á Vest­ur­löndum.

Nema hvað nú ætlar Útjitel að frum­sýna mynd­ina Mathilde, og um hana stendur styrr­inn.

Mathile Ksess­in­skæja.

Myndin fjallar um ball­er­ín­una Mathildu Ksess­in­skæju. Hún fædd­ist árið 1872, var í raun­inni pólsk en flest hennar fólk dans­aði í Pét­urs­borg við Keis­ara­lega ball­ett­inn. 

Hún reynd­ist veru­legum hæfi­leikum gædd og 1890 þegar hún var aðeins 17 ára gömul dans­aði hún dúett á útskrift­ar­sýn­ingu ball­ett­skól­ans sem rek­inn var við Keis­ara­lega ball­ett­inn.

Alex­ander III keis­ari og fjöl­skylda hans var í áhorf­enda­salnum, þar á meðal Nikulás rík­is­arfi, sem þá var 22ja ára.

Nikulás heill­að­ist af ungu ball­er­ín­unni og urðu þau elskendur. Sam­bandið stóð í þrjú ár en þá þurfti Nikulás að kvæn­ast ein­hverri prinsessu til að við­halda „bláa blóð­inu“ og gekk að eiga Alix nokkra frá Þýska­landi, sem fékk heitið Alex­andra í Rúss­landi.

Þá sagði Nikulás skilið við Mathilde og er ekki vitað til að það hafi verið honum þung raun, enda var hann dauf­gerður maður til­finn­inga­lega.

Sjálf­sagt er þó smíð­aður úr því heil­mik­ill harm­leikur í mynd Útjitels.

Mathilda var ósmeyk við að nota kynni sín af Nikulási (sem varð keis­ari 1894) til að koma sér áfram í ball­ett­heim­inum. Hún þótti ekki vönd að með­ulum og einn helsti ball­ett­meist­ar­inn við leik­húsið lét svo um mælt að þótt hún væri frá­bær dans­ari væri hún „svín“ per­sónu­lega.

Og hún hélt sig við Rómanov-ætt­ina í ásta­málum því hún gerð­ist ást­kona tveggja frænda Niku­lásar og þegar hún eign­að­ist son gat hún ekki sagt til um hvor þeirra væri fað­ir­inn.

Gjörðist hún nú æ fræg­ari og rík­ari um skeið.

Eftir valda­rán Bol­sé­víka 1917 flutt­ist Mathilda til Parísar og bjó þar síðan. Hún gift­ist öðrum Rómanov-frænd­anum, rak ball­ett­skóla, hélt sýn­ingar og kom ágæt­lega undir sig fót­unum þótt ekki lifði hún jafn prakt­ug­lega og í Rúss­landi.

Hún dó 99 ára árið 1971.

Nema hvað - ástæða fyrir því að mynd Útjitels um Mathildu vekur nú deilur er sú að í stiklu, sem sett hefur verið í sýn­ingu, sést að á úrskrift­ar­sýn­ing­unni frægu hefur Mathilda vís­vit­andi eða af slysni misst niður hlýra á bún­ingi sínum svo það hefur sést í annað brjóstið. 

Og það er sví­virða, finnst sumum rétt­trú­uðum Rússum.

Ástæðan er sú að árið 2000 voru Nikulás og fjöl­skylda hans gerð að dýr­lingum rúss­nesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar.

Og það þykir óguð­legt að gefa í skyn að í helgum dýr­lingi, eins og Nikulás er nú, kunni að hafa kviknað kyn­ferð­is­legar kenndir við að sjá kven­manns­brjóstið.

Þetta er það sem deil­urnar snú­ast um.

Ég er ekki að grín­ast. Rúss­nesku kirkj­unni og stuðn­ings­mönnum hennar finnst þetta guð­last og sví­virða og skuli slíkt klám um helgan dýr­ling aldrei líð­ast.

Og nú vill svo til að Vladimír Pútin hefur einmitt haft vel­þóknun á vax­andi trú­ar­of­stæki rúss­nesku kirkj­unnar.

Af því kirkjan styður hann ein­dregið, eins og hún studdi Nikulás keis­ara á sínum tíma. 

Kirkj­unnar menn hafa kraf­ist þess að Pútin stöðvi þessa ósvinnu.

Gallinn er sá að Alexei Útjitel er líka í hópi stuðn­ings­manna Pútins. Hann skráði sig til dæmis á lista sem lýsti ánægju sinni með inn­limun Krím­skaga fyrir fáeinum árum.

Og hefur síðan verið í náð Pútins.

Þetta gæti orðið athygl­is­verður kafli í þeim menn­ing­ar­stríðum sem nú eru að brjót­ast út í Rúss­landi eins og alls­staðar þar sem ein­ræði að teygja út anga sína.

Pútin mun nú hafa farið fram á að fá sér­staka sýn­ingu fyrir sig í Kreml þar sem hann getur litið á það sem til­búið er af mynd­inni.

Einmitt þannig hag­aði Stalín sér líka.

Hann varð að leggja blessun sína yfir alla list­sköpun í Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu.

Alla vega er talið að þessi for­sýn­ing sé til merkis um að Pútin líti verk Útjitels með vel­þóknun. 

En kirkjan hefur ekki sagt sitt síð­asta orð!

Auðvitað má ekki gefa á nokkurn hátt í skyn að „saurugar hugs­anir“ hafi hugs­an­lega kviknað í hreinum huga dýr­lings­ins!

Látum vera þótt Nikulás hafi kúgað alþýð­una, fang­elsað bar­áttu­menn fyrir mann­rétt­indum, bælt niður umbætur af öllu tagi, það er allt í lagi.

En að það hafi hugs­an­lega farið kippur um hann neð­an­verðan við að berja augun kven­manns­brjóst, það gengur ekki.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár