Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum

Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu þjóð­irnar. Skuld­bind­ingar ríkja duga ekki til að ná Par­ís­armark­mið­unum.

Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Jök­ull­inn sem hvarf Okjökull ofan Borg­ar­fjarðar var með tákn­rænum hætti kvaddur árið 2019 vegna hlýn­unar. Mynd: JEREMIE RICHARD / AFP

Alþjóð­legar skuld­bind­ingar um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda duga hvergi nærri til að ná lofts­lags­mark­mið­unum sem sam­þykkt voru í París. Nú stefnir í að jörðin hlýni um 2,6 gráður á þess­ari öld ef núver­andi mark­miðum verður fylgt, en 2,8 gráður að óbreyttu, vör­uðu Sam­ein­uðu þjóð­irnar við í dag.

Skýrsla Umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNEP) sýnir glöggt bilið milli orða og athafna í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar og þá áskorun sem bíður stjórn­mála­leið­toga á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP31 í nóv­em­ber.

Jafnvel þótt ríki standi að fullu við nýj­ustu lofts­lagslof­orð sín gæti hita­stig á jörð­inni hækkað um 2,6 gráður fram til árs­ins 2100 miðað við tíma­bilið fyrir iðn­bylt­ingu, segir í árlegri skýrslu UNEP um bilið milli los­unar og lofts­lags­mark­miða.

2,8 gráður
Að óbreyttri stefnu stefnir í að jörðin hlýni um 2,8 gráður á þess­ari öld. Það er langt umfram mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um að halda hlýnun vel undir tveimur gráðum.

Þá færi …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár