DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu

Nafn­laus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dótt­ur frétta­konu Sýn­ar hef­ur ver­ið fjar­lægð­ur af vef DV. Eig­and­inn er sagð­ur nýta sér nafn­lausa pistla í áróð­urs­skyni til stuðn­ings rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Frosti Loga­son og Bogi Ág­ústs­son voru með­al þeirra sem tóku und­ir gagn­rýn­ina á skrif­in.

DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
Skjáskot af færslunni Fjölmargir fordæmdu nafnlaus skrif DV

Nafnlaus skoðanapistill um Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttakonu hjá Sýn, hefur verið fjarlægður af vef DV eftir að hafa vakið hörð viðbrögð. Þeir sem reyna að opna pistilinn fá nú skilaboðin: „Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.“

Fjölmiðlafólk úr ólíkum áttum gagnrýndi skrifin, þar á meðal Frosti Logason, ritstjóri Nútímans og Brotkastsins, Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttalesari hjá RÚV, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV. Fjölmargir aðrir fordæmdu pistilinn í athugasemdum á Facebook, meðal annars kjörnir fulltrúar.

Gagnrýnd fyrir að ganga hart eftir svörum

Í pistlinum, sem bar yfirskriftina „Orðið á götunni: Fréttamaður í undarlegum leiðangri“, var Elísabet Inga gagnrýnd fyrir að ganga hart á eftir svörum frá Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, um afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar.

Tilefnið var að Elísabet spurði Ingu um málið þegar ráðherrann yfirgaf afmælishátíð Menntaskólans í Reykjavík og fylgdi henni að ráðherrabílnum. Pistlahöfundur túlkaði spurningarnar sem atlögu að ráðherranum: „Bersýnilega átti að reyna að koma höggi á Ingu,“ sagði í pistlinum. Þar var afsögn Guðmundar Inga jafnframt sögð „ekki bara sjálfsögð heldur brýn nauðsyn“, bæði vegna heilsu hans og málaflokksins sem hann fór með.

Inga hefur ekki viljað tjá sig frekar um samskipti sín við Guðmund Inga eftir að hann upplýsti um skilaboð sem hann fékk frá þáverandi aðstoðarmanni sínum. Í þeim kom fram að það væri vilji Valkyrjanna svokölluðu að hann segði af sér embætti eftir að hafa undirgengist hjartaaðgerð.

Pistlahöfundur gerði einnig athugasemdir við fyrirsögn á viðtali Elísabetar við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra og fullyrti að hún hefði enga stoð átt í viðtalinu, heldur verið „einungis tilbúningur fréttamannsins“. Daði Már hafði sjálfur kvartað undan fyrirsögninni. 

Þá var rifjað upp viðtal Elísabetar við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið og því haldið fram að spurningar hennar hefðu byggst á „falsmálflutningi“.

Tengdi vinnubrögðin við pólitíska fortíð

Í pistlinum var fullyrt að Elísabetu gengi illa að gæta hlutleysis og framganga hennar borin saman við framkomu Stefáns Einars Stefánssonar hjá Morgunblaðinu. Vísað var til þess að hún hefði verið varaformaður Heimdallar, formaður Vöku og í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.

Pistlahöfundur hvatti jafnframt stjórnendur fréttastofu Sýnar til að „halda aðeins fastar um taumana“ og gæta þess að „einkaflipp einstakra fréttamanna í þágu persónulegra skoðana og hugsanlega pólitísks metnaðar“ rýrði ekki trúverðugleika fréttastofunnar. Einnig var ýjað að því að meint breyting á vinnubrögðum hennar tengdist eigendahópi Sýnar.

Segja þörf á fleiri fréttamönnum sem ganga eftir svörum

Frosti Logason, ritstjóri Nútímans og Brotkastsins, vakti athygli á pistli DV í færslu á Facebook. Hann sagði þar ekki aðeins ráðist að fagmennsku Elísabetar Ingu heldur reynt að gera gagnrýna fréttamennsku hennar tortryggilega með vísan til pólitískra skoðana og fyrri þátttöku í stjórnmálum.

„Það er merkileg skilgreining á hlutleysi blaðamanna að þegar ráðherra vill ekki svara spurningu eigi fréttamaðurinn einfaldlega að hætta að spyrja,“ skrifaði Frosti. Elísabet ætti ekki skilið skammir fyrir að ganga hart eftir svörum. „Við þurfum einmitt fleiri blaðamenn sem gera það.“

Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV, tók undir gagnrýnina í athugasemd við færsluna: „Sammála þér Frosti“.

Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttalesari hjá RÚV, tók einnig til varna fyrir Elísabetu og vísaði til eigin reynslu. Fyrir hálfri öld hefði fréttamaður verið ráðinn á fréttastofu Sjónvarpsins beint úr stúdentapólitíkinni. Sá hefði verið í Vöku og Heimdalli en sagt skilið við flokkspólitík og einbeitt sér að hlutlægri og faglegri blaðamennsku með hagsmuni almennings að leiðarljósi.

„Ég hef ekki merkt annað en Elísabet Inga hafi gert nákvæmlega það sama og skilið pólitíska fortíð eftir og nálgast viðfangsefni sín á faglegum forsendum,“ skrifaði hann undir færslu Kolbeins Tuma Daðasonar, ritstjóra fréttastofu Sýnar.

Eigandi nýtir sér nafnlausa pistla

Kolbeinn Tumi er harðorður í garð eigenda DV í sinni færslu og gagnrýnir að eigandinn nýti sér þennan vettvang til þess að koma skoðunum sínum áleiðis. 

„Orðið á götunni á DV, sem eigandinn Helgi Magnússon og Ólafur Arnarson [ritstjóri Eyjunnar] skrifa undir nafnleynd með reglulegu millibili, hefur oft ansi sérstaka nálgun á málin. Þannig er það með nafnleysið að þeir sem halda á penna geta leyft sér meira og verið rætnaðri en þeir myndu líklega vera augliti til auglitis. Það er ekki ósvipað þeim sem láta vaða í athugasemdakerfum en myndu aldrei voga sér að segja sömu hluti við fólkið ef það yrði á vegi þeirra.“

Kolbeinn bætir svo síðar við: „Helgi telur sig eflaust vera að hjálpa ríkisstjórninni með fabúleringum sínum. Hitt finnst mér þó líklegra: að ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnarflokkanna, jafnt sem annarra flokka, hristi frekar höfuðið yfir þessum nafnlausu skrifum. Þau dæma sig að mestu sjálf, en eru engu að síður umhugsunarverð því þar má lesa ýmislegt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
5
ViðtalLífið á Grensás

Þörf á að styrkja end­ur­hæf­ingu barna veru­lega

Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á milli ráðu­neyta þeg­ar kem­ur að end­ur­hæf­ing­ar­mál­um. Hún seg­ir að dæmi séu um að ungt fólk í end­ur­hæf­ingu hafi ekki feng­ið þá þjón­ustu sem það vildi. Mönn­un­ar­vandi sé ástæða þess að stofn­an­ir dragi sam­an eða loki á sumr­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár