Trump skoðaði hugmynd að niðurrifi Kennedy Center

Ljósmynd AFP af Donald Trump um borð í Air Force One hefur vakið athygli. Þar sést for­set­inn skoða mynd sem virð­ist sýna nið­ur­rif Kennedy Center, eftir að dóm­ari kom í veg fyrir að nafn Trumps yrði sett á bygg­ing­una.

Trump skoðaði hugmynd að niðurrifi Kennedy Center

Ljósmynd AFP af Donald Trump þar sem hann virð­ist skoða mynd af nið­ur­rifi Kennedy Center í Washington hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum. Trump hefur hótað að rífa hina þekktu menn­ing­ar­stofnun eftir að honum var meinað að nefna hana eftir sjálfum sér.

Á mynd­inni, sem Brendan Smialowski, ljós­mynd­ari AFP, tók á Joint Base Andrews-her­stöð­inni seint á mið­viku­dag, sést Trump í gegnum glugga Air Force One halda á spjaldi þar sem sjá má rauða áletr­un­ina: „Kennedy Center DEMOLIS...“

Glugga­karmur flug­vél­ar­innar skyggir á það sem eftir er orðs­ins, en Trump hefur ítrekað rætt þann mögu­leika að rífa Kennedy Center.

Fyrir neðan text­ann er stór mynd af gulri vinnu­vél að moka upp rústum.

Vin­sældir Trumps mæl­ast nú rétt yfir 30 pró­sentum, sam­hliða óánægju vegna stríðs­ins gegn Íran og hækk­andi fram­færslu­kostn­aðar. Á sama tíma hefur for­set­inn lagt mikla áherslu á að Kennedy Center verði nefnt eftir honum.

Hann hót­aði …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár