Verðbólga eykst á evrusvæðinu

Mesta verðbólga í þrjú ár mælist nú hjá ESB-ríkjum með evru.

Verslað í Rennes
Verslað í Rennes Evruríki eiga ekki að venj­ast mik­illi verð­bólgu. Mynd: Unsplash / Feodor Chistyakov

Verð­bólgan á evru­svæðinu fór upp í 3,3 prósent í ágúst, sem er það hæsta í þrjú ár, þar sem stríðið í Mið-Austur­löndum hélt áfram að auka orku­kostnað, samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í morgun.

Mælingin frá hagstofu Evrópu­sambandsins, sem er vel yfir tveggja prósenta markmiði Seðla­banka Evrópu, hækkaði verulega úr 2,9 prósentum í júlí og var í samræmi við spár greiningar­aðila fyrir Bloomberg.

Verð­bólgan á Íslandi jókst í sama mánuði úr 5,3% í 5,6% og er talið að ýta muni undir verð­bólguna í september að tíma­bundin lækkun virðis­aukaskatts á eldsneyti féll niður í dag.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár