Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu

Katla Guðna­dóttir byrj­aði að safna húð­flúrum 18 ára gömul.

Eitt þeirra er fyrir for­eldra hennar. Annað er per­sónan Eyrnaslapi úr Bangsímon-sög­unum. Enn annað múmínálfur en svo má sjá gleymérei og fiðr­ildi bregða fyrir á upp­hand­leggj­unum.

Eitt húð­flúr­anna vekur sér­staka eft­ir­tekt: „One day at a time“ með skraut­skrift.

Er það nýtt? „Nei,“ svarar Katla.

Hún seg­ist hafa haft þetta hug­ar­far – „einn dag í einu“ – löngu áður en lífið hennar breytt­ist.

Annað húð­flúr er í anda tví­bura­merk­is­ins, stjörnu­merkis Þrastar Steins Magn­ús­sonar, kærasta hennar, sem kemur til hennar á hverjum degi. Á fram­hand­leggnum er hún með tvo ten­inga með hjörtum í stað punkta, tákn um það hversu miklu gæfan stjórnar, en að kær­leik­ur­inn sé alltaf með í för.

„Lífið er stutt,“ segir Katla. „Mjög stutt. Og þú átt alltaf að reyna að njóta þess.“

Katla er með hæsta mænu­skaða sem nokkur hefur lifað af á Íslandi. Hún er lömuð fyrir …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár