Þjóðin klofnaði í tvær álíka stórar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort hefja ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Munurinn var þó meiri en skoðanakannanir höfðu gefið til kynna síðustu dagana fyrir atkvæðagreiðsluna.
Niðurstöður í einstaka kjördæmum gefa til kynna töluverðan mun á afstöðu eftir búsetu. Þannig var afgerandi meirihluti gegn áframhaldandi viðræðum utan höfuðborgarinnar. Að sama skapi var rúmur meirihluti fyrir því að taka upp viðræður á ný í Reykjavík.
Í Suðvesturkjördæmi, sem samanstendur af höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, var um það bil hnífjafnt á milli fylkinga.
Alls greiddu 225.031 atkvæði í atkvæðagreðislunni en 1.652 voru auð eða ógild. 105.339 sögðu já og 118.040 sögðu nei.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir (2)