Samlíking við þýska kyndingu vekur furðu já-sinna

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins útskýrði ólíka hags­muni Íslend­inga og ESB með dæmi um þýska kynd­ingu. Sam­lík­ingin hefur vakið nokkra furðu já-sinna.

Samlíking við þýska kyndingu vekur furðu já-sinna
Guðrún Haf­steins­dóttir Guðrún brydd­aði upp á lík­ingu á Útvarpi Sögu sem virð­ist hafa farið öfugt ofan í margan já-sinn­ann. Mynd: Samsett / Golli

Fjöl­margar færslur má finna á Facebook-hópi þeirra sem segja já við ESB-við­ræðum þar sem vakin er athygli á sam­lík­ingu Guðrúnar Haf­steins­dóttur, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við þýska kynd­ingu og yfir­stjórn Evrópska seðla­bank­ans þegar kemur að stjórn evr­unnar.

Viðtalið sem um ræðir var á Útvarpi Sögu á föstu­dag­inn og þar var Guðrún að svara vanga­veltum Arn­þrúðar Karls­dóttur um hvernig pen­inga­leg yfir­stjórn færi með íslenskt hag­kerfi sem Guðrún hélt því fram að væri bæði sér­stakt og ein­stakt að því leyti að Ísland treystir að mestu á nátt­úru­auð­lindir sínar.

Ekki hægt að miða við hitastigið í Frankfurt

Guðrún gerði svo til­raun til þess að útskýra sjón­ar­mið sín:

„Til þess að ein­falda þetta mjög, þessa útskýr­ingu mína, þá langar mig að reyna að útskýra þetta eins og ég hef gert fyrir börnin mín. Nú bjó ég í Þýska­landi um ára­bil. Sumarið í Þýska­landi er langt og Þjóð­verjar eru spar­samir. Í byrjun apríl …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    hún hefur meira vit á ÍS kulda
    1
  • ÞFF
    Þóra F. Fischer skrifaði
    Meðfylgjandi athugasemd er ekki frá Þóru. Það er frá mér, Joachim Fischer.
    0
  • ÞFF
    Þóra F. Fischer skrifaði
    Langaði Guðrún Hafsteindóttir að vera fyndin?

    Það sem hún sagði um húshitun í Þýskalandi er ótrúlegt hvað varðar heimsku, dirfsku og hreinar lygar. Hún heldur því fram að ef Ísland gengi í ESB og Evrusvæðið yrðu öll húshitunarkerfi slökkt utan ákveðins tímabils, frá október til apríl. Með slíkum ósannindum er „nei“-klíkan að reyna að kynda undir andstöðu við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Maður getur aðeins vonað að meirihluti Íslendinga sé nógu klár til að viðurkenna slíkt rugl fyrir það sem það í raun er: rugl. Ég get fullyrt með vissu að í Þýskalandi, og um allt ESB, hitum við heimili okkar þegar þörf krefur, óháð dagatali. Á meðan ég var í þýska hernum hæddist fólk að þráhyggju Þjóðverja fyrir reglugerðum og sagði að maður þyrfti að vera í sumarkápu frá 1. apríl, jafnvel þótt það væri enn undir frostmarki, og vetrarkápu frá 1. október, þrátt fyrir hlýjan veður. En það var bara háð, ekki veruleiki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár