Samlíking við þýska kyndingu vekur furðu já-sinna

Formaður Sjálfstæðis­flokksins útskýrði ólíka hagsmuni Íslendinga og ESB með dæmi um þýska kyndingu. Samlíkingin hefur vakið nokkra furðu já-sinna.

Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Haf­steins­dóttir Guðrún brydd­aði upp á lík­ingu á Útvarpi Sögu sem virð­ist hafa farið öfugt ofan í margan já-sinn­ann. Mynd: Samsett / Golli

Fjölmargar færslur má finna á Facebook-hópi þeirra sem segja já við ESB-viðræðum þar sem vakin er athygli á samlíkingu Guðrúnar Hafsteins­dóttur, formanns Sjálfstæðis­flokksins, við þýska kyndingu og yfir­stjórn Evrópska seðla­bankans þegar kemur að stjórn evrunnar.

Viðtalið sem um ræðir var á Útvarpi Sögu á föstu­daginn og þar var Guðrún að svara vanga­veltum Arnþrúðar Karls­dóttur um hvernig peningaleg yfir­stjórn færi með íslenskt hagkerfi sem Guðrún hélt því fram að væri bæði sérstakt og einstakt að því leyti að Ísland treystir að mestu á náttúru­auðlindir sínar.

Ekki hægt að miða við hitastigið í Frankfurt

Guðrún gerði svo tilraun til þess að útskýra sjónarmið sín:

„Til þess að einfalda þetta mjög, þessa útskýringu mína, þá langar mig að reyna að útskýra þetta eins og ég hef gert fyrir börnin mín. Nú bjó ég í Þýska­landi um árabil. Sumarið í Þýska­landi er langt og Þjóð­verjar eru sparsamir. Í byrjun apríl …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    hún hefur meira vit á ÍS kulda
    1
  • ÞFF
    Þóra F. Fischer skrifaði
    Meðfylgjandi athugasemd er ekki frá Þóru. Það er frá mér, Joachim Fischer.
    0
  • ÞFF
    Þóra F. Fischer skrifaði
    Langaði Guðrún Hafsteindóttir að vera fyndin?

    Það sem hún sagði um húshitun í Þýskalandi er ótrúlegt hvað varðar heimsku, dirfsku og hreinar lygar. Hún heldur því fram að ef Ísland gengi í ESB og Evrusvæðið yrðu öll húshitunarkerfi slökkt utan ákveðins tímabils, frá október til apríl. Með slíkum ósannindum er „nei“-klíkan að reyna að kynda undir andstöðu við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Maður getur aðeins vonað að meirihluti Íslendinga sé nógu klár til að viðurkenna slíkt rugl fyrir það sem það í raun er: rugl. Ég get fullyrt með vissu að í Þýskalandi, og um allt ESB, hitum við heimili okkar þegar þörf krefur, óháð dagatali. Á meðan ég var í þýska hernum hæddist fólk að þráhyggju Þjóðverja fyrir reglugerðum og sagði að maður þyrfti að vera í sumarkápu frá 1. apríl, jafnvel þótt það væri enn undir frostmarki, og vetrarkápu frá 1. október, þrátt fyrir hlýjan veður. En það var bara háð, ekki veruleiki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár