Stýrivextir hafa verið hækkaðir úr 7,75% í 8%, vegna hárrar verðbólgu.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um þetta í morgun.
Stýrivextir, sem hafa bein áhrif á greiðslubyrði almennings af fasteignalánum og öðrum skuldum sem ekki eru með fasta vexti, höfðu stöðugt lækkað frá september 2024, þegar þeir náðu hámarki í 9,25%, þar til þeir fóru niður í 7,25% í nóvember í fyrra. Þeir hafa hækkað stöðugt síðan þá vegna vaxandi verðbólgu.
Ríkisstjórnin hafði lækkað virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11% tímabundið yfir sumarið í tilraun til að halda verðbólgu niðri, en hún jókst meðal annars vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, sem lokaði flutningsleiðum fyrir olíu úr Persaflóa. Vegna verðbólgunnar er ljóst að endurskoðunarákvæði kjarasamninga virkjast í lok ágúst, þrátt fyrir tilraunir stjórnvalda til að koma í veg fyrir það.
Í ritinu Peningamálum, sem Seðlabankinn gefur út, kemur fram að verðbólga verði líklega meiri en áður var talið, en …




















































Athugasemdir