„Venjulegi náunginn“ sem varð morðingi

Morð­mál­ið gegn Luigi Mangi­o­ne hverf­ist um hagn­að­ar­drif­ið heil­brigðis­kerfi Banda­ríkj­anna. Mangi­o­ne slas­að­ist á hrygg og virt­ist venju­leg­ur og „klár strák­ur“ áð­ur en hann ákvað að myrða for­stjóra heil­brigð­is­trygg­inga­fé­lags.

„Venjulegi náunginn“ sem varð morðingi
Luigi Mangione Luigi Mangione, sem er sakaður um morðið á Brian Thompson, forstjóra United Healthcare, kemur fyrir dómara í undirbúningsréttarhöldum í Manhattan-sakamáladómstólnum í New York þann 11. ágúst síðastliðinn. Mynd: AFP

Maðurinn sem játaði að hafa skotið bandarískan forstjóra sjúkratryggingafyrirtækis til bana notaði tækifærið í réttarsal til að kenna bakmeiðslum um glæpi sína, sem hann sagði að hefðu miðað að því að „bæta heilbrigðisþjónustu fyrir alla“.

Luigi Mangione, 28 ára, komst í sviðsljósið árið 2024 eftir að hafa skotið Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare og tveggja barna föður, til bana í miðborg Manhattan um hábjartan dag.

Málið afhjúpaði djúpstæða gremju og reiði í garð einkavædds heilbrigðiskerfis Bandaríkjanna, sem Mangione sagði að hefði brugðist sér eftir bakmeiðsli.

Vangaveltur um ástæður Mangione sprungu út eftir að hann var handtekinn á dramatískan hátt í Pennsylvaníu eftir að ábending barst frá manni sem sá hann á McDonald's.

Mangione hefur eignast fjölda dyggra aðdáenda og fylgjenda sem senda honum póst í fangelsið og gefa í málsvarnarsjóð hans.

Gagnrýnendur hans, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í fararbroddi, hafa kallað eftir því að hann fái þunga refsingu.

Mynd á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár