Högna sleppt úr kólumbísku fangelsi

Högni Kjartan Þorkelsson, sem sætir ákæru í Kólumbíu fyrir kynferðis­brot gegn 16 ára stúlku, var leystur úr haldi í júlí eftir að fram­burður þolanda breyttist. Lögmaður hans vonast til að málinu verði vísað frá á næstu dögum.

Högni Kjartan Þorkelsson
Högni Kjartan Þor­kels­son Íslend­ing­ur­inn ákærði í Kólumbíu var við­staddur með­ferð máls­ins í júlí í gegnum fjar­funda­búnað.

Kólumbískur lögmaður Högna Kjartans Þorkels­sonar vonast til að máli gegn honum verði vísað frá á næstu dögum eftir að þolandi breytti framburði sínum.

Högni var hand­tekinn í Medellín í Kólumbíu og úrskurðaður í gæslu­varðhald 22. desember í fyrra vegna meints kynferðis­brots gegn 16 ára stúlku.

Yfirvöld í Kólumbíu sögðu Högna hafa haft samband við stúlkuna, sem tilheyrir LGBTQ-samfélaginu að sögn lögreglu, og boðið henni pening í skiptum fyrir kynmök. Þá hafi hann farið með hana í íbúð í Simón Bolívar-hverfinu í Medellín þar sem atvikið hafi átt sér stað 6. desember. Hann hafi verið hand­tekinn skömmu síðar en neitað sök í málinu.

Við hand­tök­unaHögni sætir enn ákæru fyrir kyn­ferð­is­brot gegn 16 ára stúlku.

16. júlí síðastliðinn samþykkti dómari hins vegar að fella gæslu­varðhald yfir Högna úr gildi þar sem ný gögn höfðu komið …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár