Fulltrúar ICE skutu annan mann til bana nokkrum dögum eftir banvæna skotárás

„Eini glæpur hans var að hann pass­aði við lýs­ingu á öðrum manni sem þeir voru að leita að,“ sagði lög­maður um mann sem var skot­inn til bana af ICE. Á innan við viku hafa tveir verið drepnir í árásum ICE, en í hvor­ugu til­vik­inu var hinn látni sá sem leitað var að. Vitni lýsa atvikum með allt öðrum hætti en yfir­völd. „Við búumst við yfir­hylm­ingu.“

Fulltrúar ICE skutu annan mann til bana nokkrum dögum eftir banvæna skotárás

Fulltrúi banda­rísku útlend­inga­stofn­un­ar­innar skaut til bana mann í gær. Mann­rétt­inda­sam­tök segja að mað­ur­inn hafi verið 26 ára gam­all og frá Kólumbíu. Þetta er í annað sinn á innan við viku sem alrík­is­full­trúar fremja mann­dráp.

Skotárásin átti sér stað í Bidd­eford, 22.000 manna bæ í norð­ur­rík­inu Maine. Árásin mun lík­lega ýta undir gagn­rýni á brott­vís­un­ar­her­ferð Donalds Trump for­seta og fram­kvæmd hennar af hálfu Útlend­inga- og tolla­eft­ir­lits­ins (ICE).

Banda­rískir fjöl­miðlar hafa greint frá því að fórn­ar­lamb ICE sé Joan Sebast­ian Guerrero, sem starf­aði sem sendi­bíl­stjóri og bjó Bidd­eford með eig­in­konu sinni og þriggja ára dóttur.

Leituðu að öðrum manni

Tals­maður ICE sagði að full­trúar hefðu reynt að stöðva bif­reið um klukkan 7:00 að morgni, eftir að hafa fylgst með síð­asta þekkta heim­il­is­fangi ein­stak­lings með brott­vís­unar­úr­skurð.

Öku­mað­ur­inn „reyndi að flýja af vett­vangi og af ótta við öryggi almenn­ings hleypti full­trúi af skoti. Ökumaður bif­reið­ar­innar varð fyrir skot­inu …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár