Vitni í Minneapolis: „Ég horfði á hann deyja“

„Þetta var morð fyrir allra augum, úti á miðri götu,“ segir Stella Carlson sem varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis á laugardag. Hún segir lýsingar ríkis­stjórnar Donalds Trumps um málið ósannar.

Stella Carlson
Stella Carlson Varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana. Mynd: CNN / Skjáskot

„Ég horfði á hann deyja,“ segir Stella Carlson með tárin í augunum í viðtali við Anderson Cooper á CNN.

Hún varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis síðastliðinn laugardag. Carlson segir Pretti ekki hafa verið ógn við öryggi ICE-liða. „Þetta var morð fyrir allra augum, úti á miðri götu,“ segir hún. Pretti var 37 ára gamall hjúkrunar­fræðingur og bandarískur ríkis­borgari.

Carlson var ein af þeim sem tóku aðdrag­anda morðsins og morðið sjálft upp á myndband sem hægt verður að notast við sem sönnunar­gagn í rannsókn á málinu. Hún hafði sést á öðrum upptökum af morðinu og var kölluð „konan í bleika jakkanum“ en ákvað að stíga fram. „Ég trúi því að Banda­ríkin vilji heyra sann­leikann.“

Alex PrettiVar skot­inn til bana af ICE-liðum í Minn­ea­polis.

Lýsingar yfirvalda ósannar

Ríkis­stjórn …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Í viðtölum við Stellu Carlson og Kayla Schultz kemur fram að alríkislögreglan hafi ekkert verið í sambandi við þær út af rannsókn málsins. Það finnst mér mjög skrítið. Þær eru lykil vitni í málinu. Hér er viðtalið við Kayla https://youtu.be/jxI-QohWDBQ?si=u9UlK8sKkPreka2c
    1
  • Greg Hill skrifaði
    Þakka þér fyrir að halda áfram að segja frá frásögnum sjónarvotta þegar aðrir fjölmiðlar hafa að mestu hætt því. Mér finnst mjög skrýtið að ég þurfi að fá frekari upplýsingar frá Íslandi en ekki Bandaríkjunum. Ég vildi óska ​​að ég vissi hvað leiddi til þess að konan sem Pretti kom til að vernda var ýtt svona harkalega og beitt táragasi af ICE? Hún var á gangstéttinni, það er engin skýring á því hvers vegna þeir hljópu svona á hana.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skotárásir ICE

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár