Fulltrúar ICE skutu annan mann til bana nokkrum dögum eftir banvæna skotárás

„Eini glæpur hans var að hann passaði við lýsingu á öðrum manni sem þeir voru að leita að,“ sagði lögmaður um mann sem var skotinn til bana af ICE. Á innan við viku hafa tveir verið drepnir í árásum ICE, en í hvorugu tilvikinu var hinn látni sá sem leitað var að. Vitni lýsa atvikum með allt öðrum hætti en yfirvöld. „Við búumst við yfir­hylmingu.“

Fulltrúi bandarísku útlendinga­stofnunarinnar skaut til bana mann í gær. Mann­réttinda­samtök segja að maðurinn hafi verið 26 ára gamall og frá Kólumbíu. Þetta er í annað sinn á innan við viku sem alríkis­fulltrúar fremja manndráp.

Skot­árásin átti sér stað í Biddeford, 22.000 manna bæ í norður­ríkinu Maine. Árásin mun líklega ýta undir gagnrýni á brott­vísunar­herferð Donalds Trump forseta og framkvæmd hennar af hálfu Útlendinga- og tolla­eftirlitsins (ICE).

Bandarískir fjöl­miðlar hafa greint frá því að fórnar­lamb ICE sé Joan Sebastian Guerrero, sem starfaði sem sendi­bílstjóri og bjó Biddeford með eiginkonu sinni og þriggja ára dóttur.

Leituðu að öðrum manni

Talsmaður ICE sagði að fulltrúar hefðu reynt að stöðva bifreið um klukkan 7:00 að morgni, eftir að hafa fylgst með síðasta þekkta heimilis­fangi einstaklings með brott­vísunar­úrskurð.

Ökumaðurinn „reyndi að flýja af vettvangi og af ótta við öryggi almennings hleypti fulltrúi af skoti. Ökumaður bifreiðarinnar varð fyrir skotinu …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skotárásir ICE

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár