Skilorð fyrir að senda 15 ára stúlku typpamynd

Maður ját­aði að hafa sent 15 ára stúlku „riða í kvöld?“ á Snapchat.

Skilorð fyrir að senda 15 ára stúlku typpamynd
Snapchat Maðurinn sendi 15 ára stúlku kyn­ferð­is­leg skila­boð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands hefur dæmt mann í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og til 400 þús­und króna sekt­ar­greiðslu fyrir að senda 15 ára stúlku óvið­eig­andi skila­boð á Snapchat.

Maðurinn, sem er ekki nafn­greindur í dómnum, var ekki tal­inn and­lega veikur eða van­þroska sam­kvæmt mati sem lagt var fyrir hér­aðs­dóm. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsi­vert brot.

Maðurinn ját­aði brotið, að hafa 12. mars síð­ast­lið­inn sett sig í sam­band við 15 ára stúlku í gegnum Snapchat og við­haft kyn­ferð­is­legt tal við hana með því að senda henni mynd sem á stóð „riða í kvöld?“ og mynd af kyn­færum karl­manns í fullri reisn.

Var tekið til greina að hann hefði geng­ist við broti sínu en á móti litið til þess að þol­andi hafi verið 15 ára. Var hann því dæmdur til tveggja mán­aða fang­elsis en fulln­ustu refs­ingar frestað gegn því að hann haldi almennu skil­orði í tvö ár. Þá …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár