Engin plön um að fjölga ferðum flugvallarstrætós

Flybus er nú án sam­keppn­is­að­ila í rútu­ferðum á milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og Reykja­víkur. Tillaga starfs­hóps um að bæta þjón­ustu strætó­leiðar 55 þar á milli hefur setið á hak­anum. Leiðin var und­an­skilin í end­ur­skoðun á leiða­kerfi lands­byggð­ar­vagna en ráðu­neytið boðar bætta aðkomu Strætó við Leifs­stöð.

Engin plön um að fjölga ferðum flugvallarstrætós
Flybus Strætó býður aðeins upp á fimm beinar ferðir á virkum dögum og engar um helgar en Flybus sinnir öllu áætl­un­ar­flugi Kefla­vík­ur­flug­vallar. Mynd: Golli

Ekkert liggur fyrir um að auka tíðni eða lengja þjón­ustu­tíma almenn­ings­sam­gangna til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli en „áfram verður gengið út frá því“ að þjón­ustan verði bætt.

Þetta kemur fram í svörum inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um almenn­ings­sam­göngur til og frá flug­vell­inum en til stendur að gera nýja sam­an­tekt á fyr­ir­liggj­andi grein­ingum og til­lögum til að móta val­kosti til fram­tíðar á grund­velli Sam­göngu­á­ætl­unar til 2030.

Starfs­hópur um bættar almenn­ings­sam­göngur á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Kefla­vík­ur­flug­vallar lagði til að þjón­ustu­tími yrði lengdur og tíðni ferða auk­inn á leið 55, einu strætó­leið­inni sem gengur á milli flug­vall­ar­ins og borg­ar­innar. Þetta var lagt til að fram­kvæma árið 2025 í skýrslu starfs­hóps­ins sem skilað var í sept­em­ber 2024.

Leið 55 gengur frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Reykja­víkur en lengi hefur verið gagn­rýnt að bið­stöð Strætó sé í nokk­urri fjar­lægð frá flug­stöð­inni á meðan Flybus rútur Reykja­vík Excursions stoppa beint fyrir utan bygg­ing­una.

Airport …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Það er beinlínis til skammar að enn sé ekki boðið upp á almennilegar almenningssamgöngur við helsta millilandaflugvöll landsins.
    Stöðugt er talað um orkuskipti, minni losun og eflingu almenningssamgangna, en leið 55 er enn rekin með of fáum ferðum, takmörkuðum þjónustutíma og tengingum sem gera hana lítt raunhæfa fyrir ferðamenn og starfsfólk í Leifsstöð.
    Starfshópur skilaði tillögum árið 2024. Tveimur árum síðar á enn að halda áfram að greina og móta valkosti. Hversu lengi á að greina sjálfsagða hluti?
    Bein og regluleg tenging milli Keflavíkurflugvallar, Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins ætti að vera sjálfsagður hluti af grunnsamgöngukerfinu.
    Það vantar ekki fleiri skýrslur. Það vantar ákvörðun, fjármögnun og framkvæmd.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár