Þessum götum í Reykjavík er lokað í dag

Tölu­verð­ar götu­lok­an­ir verða í mið­borg Reykja­vík­ur í dag vegna há­tíð­ar­halda dags­ins. Göt­um verð­ur lok­að á mis­mun­andi tím­um en rask­an­irn­ar standa yf­ir frá klukk­an 7 til 18,

Þessum götum í Reykjavík er lokað í dag
Hátíð í bæ Mikil hátíðahöld verða í miðborg Reykjavíkur í dag og verður því ýmsum leiðum lokað fyrir bílaumferð. Mynd: Shutterstock

Töluverðar götulokanir og umferðarraskanir verða í miðborg Reykjavíkur í dag vegna hátíðahalda. Raskanirnar standa yfir frá klukkan 7 til 18, en mismunandi götur verða lokaðar á ólíkum tímum dags.

Í tengslum við morgunathöfn á Austurvelli verða Skólabrú, Kirkjustræti, Pósthússtræti, Templarasund og Vonarstræti lokaðar frá klukkan 7. Lokanirnar standa til klukkan 12, en umferð um Skólabrú, Kirkjustræti og Pósthússtræti verður áfram lokuð til klukkan 13.

Þá verða takmarkanir á umferð um Suðurgötu, Túngötu og Aðalstræti á milli klukkan 11.45 og 12.30.

Vegna skrúðgöngu, sem fer frá Hallgrímskirkju og þaðan í Hljómskálagarð, verða frekari lokanir í miðborginni á milli klukkan 12 og 14. Lokað verður við Eiríksgötu og Barónsstíg, Eiríksgötu og Njarðargötu, Frakkastíg og Bergþórugötu, Skólavörðustíg og Bergstaðarstræti og við Bankastræti.

Takmarkanir verða einnig á umferð um götur sem þvera Skólavörðustíg og Bankastræti. Það á við um Kárastíg, Bjarnarstíg, Baldursgötu, Týsgötu, Ingólfsstræti, Þingholtsstræti og Skólastræti.

Á sama tíma verður Lækjargötu lokað frá Hverfisgötu. Einnig verður lokað um Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu og Skothúsveg vestan Fríkirkjuvegs. Skálholtsstígur verður lokaður fyrir neðan Laufásveg, Bragagata fyrir neðan Fjólugötu og Fjólugata norðan við Bragagötu.

Laugavegur verður þó opinn að Frakkastíg.

Í tengslum við fjölskyldudagskrá í Hljómskálagarði verða Fríkirkjuvegur frá Vonarstræti, Sóleyjargata og Skothúsvegur vestan Fríkirkjuvegs lokuð frá klukkan 14 til 18. Þá verða Skálholtsstígur, Bragagata og Fjólugata áfram lokuð með sama hætti og fyrr um daginn.

Breytingar verða einnig á einhverjum leiðum Strætó vegna hátíðahaldanna og er farþegum bent á að kynna sér nánari upplýsingar hjá Strætó áður en lagt er af stað.

LokanirÁ þessu korti Reykjavíkurborgar má sjá hvaða götum verður lokað í dag.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.
Borgþór Arngrímsson
2
PistillEitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­ur og lé­leg laun hafa orð­ið til þess að færri sækj­ast eft­ir her­mennsk­unni. Ný­lega varð danski flot­inn að af­lýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skip­ið. Slík­ar frétt­ir skaða ímynd flot­ans og geta ver­ið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
3
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár