Hægri meirihluti að myndast í Reykjavík

Hildur Björns­dóttir, Ari Edwald og Einar Þor­steins­son geta náð meiri­hluta miðað við nýja könnun.

Hægri meirihluti að myndast í Reykjavík

Ný könnun Gallups sýnir að nýtt meiri­hluta­mynstur hægri flokk­anna er mögu­legt í Reykja­vík. Miðað við könn­un­ina er núver­andi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti úr leik.

Í könn­un­inni fær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, undir for­ystu Hildar Björns­dóttir, sem nemur 8 borg­ar­full­trúum af 23. Mið­flokk­ur­inn með Ara Edwald í far­ar­broddi fær þrjá borg­ar­full­trúa og þar með getur Einar Þor­steins­son, eini mældi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, fram­fylgt ósk sinni um að mynda hægri meiri­hluta, en hann hefur um leið úti­lokað sam­starf við Sam­fylk­ing­una. Einar vill mynda „banda­lag flokka um breyt­ingar frá miðju til hægri“.

Sam­fylk­ingin fær fimm borg­ar­full­trúa, eins og í síð­ustu kosn­ingum, Vinstrið þrjá, Viðreisn tvo og Sós­í­alista­flokk­ur­inn einn. Það þýðir að núver­andi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti hefur aðeins 11 borg­ar­full­trúa og fær þann tólfta ekki frá Fram­sókn­ar­flokknum. Lítið þarf þó að breyt­ast til þess að Sam­fylk­ingin nái inn sjötta full­trú­anum.

Miðað við nýju könn­un­ina getur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndað meiri­hluta án Við­reisnar, sem áður var talin í lyk­il­stöðu.

Mikil óvissa hefur verið um mögu­legar meiri­hluta­mynd­anir, ekki síst vegna úti­lok­ana Fram­sóknar á sam­starfi við Sam­fylk­ingu og efa­semdum Bjargar Magn­ús­dóttur, odd­vita Við­reisnar, um sam­starf við Mið­flokk­inn. Í kapp­ræðum á Sýn sagð­ist Björg vilja „byggja frjáls­lyndan sterkan meiri­hluta út frá miðj­unni“. Hún myndi þó ekki fyrst hringja í Pétur Mart­eins­son og Heiðu Björg Hilm­ars­dóttur. Samkvæmt grein­ingu Rík­is­út­varps­ins á kosn­inga­prófi RÚV eiga fram­bjóð­endur Við­reisnar meiri sam­fylgd með stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar en Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Björg ítrek­aði í kapp­ræðum RÚV í kvöld að hún myndi ekki hringja fyrst í Sam­fylk­ingu til að mynda meiri­hluta. Hún sagði jafn­framt að „póli­tískur ómögu­leiki“ fælist í að vinna með Mið­flokknum og ját­aði því að hún úti­lok­aði það sam­starf.

Í könnun Maskínu sem kynnt var sama dag var nið­ur­staðan hins vegar að hægri meiri­hluti með Sjálf­stæð­is­flokki væri með Viðreisn en ekki Mið­flokki.

Á sama tíma úti­loka bæði Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn sam­starf með Mið­flokknum og Okkar borg.

Borg­ar­búar skipt­ast í tvö horn eftir því hvort þeir vilja hægri meiri­hluta eða vinstri meiri­hluta, eins og verið hefur, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu sem kynnt var í dag á Vísi.is. 50,7 pró­sent vilja meiri­hluta frá miðju til vinstri en 49,3 pró­sent vilja meiri­hluta frá miðju til hægri. 

Verði meiri­hlut­inn að veru­leika er hugs­an­legt að sam­göngusátt­máli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sé í upp­námi. Hildur Björns­dóttir ætlar strax að „fara fram á end­ur­skoðun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins“. Mið­flokk­ur­inn vill hverfa frá hug­myndum um borg­ar­línu og inn­leiða ódýr­ari upp­færslu á leiða­kerfi Strætó.

Könnun Gallups var gerð 11. til 15. maí og 3.587 manns 18 ára eða eldri með lög­heim­ili í Reykja­vík. Þátt­töku­hlut­fall var 41,3%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár