Kjartan Þorbjörnsson, þekktur undir nafninu Golli, hlaut í dag verðlaun fyrir bæði fréttamynd ársins og mynd ársins við opnun ljósmyndasýningarinnar Myndir ársins 2025 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Verðlaunin eru veitt af Blaðaljósmyndarafélagi Íslands.
Mynd ársins er myndröð Golla sem fjallar um líf Oscars, ungan pilt sem senda átti úr landi. Í rökstuðningi dómnefndar segir að myndröðin minni okkur á að á bak við skrifræðiskerfi samfélagsins leynist alltaf raunveruleg mannslíf, og að hún dragi áhorfandann inn í ferðalag sem veki spurningar um grunngildi Íslands.
Fréttamynd ársins sýnir sögulegt augnablik þegar fjórar helstu valdastöður landsins voru skipaðar konum: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Guðrún Karls Helgudóttir biskup. Myndin sýnir þær fjórar að taka sjálfsmynd saman. Dómnefndin lýsir myndinni sem tákn fyrir harða aldalanga baráttu fyrir jafnrétti kvenna.
Dómnefnd ársins skipuðu Árni Torfason, Arnaldur Halldórsson, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mads Nissen, þrefaldur World Press Photo vinningshafi, sem sat í formennsku.
Á sýningunni Myndir ársins 2025 eru 104 myndir frá sextán blaðaljósmyndurum, valdar úr rúmlega 600 innsendum myndum. Sýningin er flokkuð í sex flokka: fréttamyndir, daglegt líf, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir og myndaraðir.
Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 17. maí 2026. Samhliða henni kemur út bók með öllum myndum sýningarinnar, sem er til sölu í safnbúð safnsins.
Rökstuðningur dómnefndar vegna vali á mynd ársins er eftirfarandi:
„Margir þurfa tíma til að átta sig á sögunni, þurfa baksýnisspegil til að átta sig á því sögulega eða umbreytandi andartaki sem átti sér stað fyrir framan þá. En framúrskarandi ljósmyndari er öðruvísi. Hann sér andartakið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þolinmóður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögulega stund, sem hlaut verðlaunin Fréttamynd ársins 2025, á sér langan aðdraganda. Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup sitja fyrir á sjálfsmynd sem virðist tekin í hita augnabliksins. Við þekkjum öll sjálfuna, hversdagslega athöfn sem endurtekur sig endalaust – óformleg, næstum kjánaleg – en þessar fjórar konur virðast engu að síður vera meðvitaðar um það afar táknræna og sögulega andartak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem fulltrúar harðrar aldalangrar baráttu fyrir jafnrétti kvenna sem er hvergi lokið.“
Rökstuðningur dómnefndar við val á fréttamynd ársins er eftirfarandi:

Athugasemdir