Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greiðir lík­lega atkvæði í dag um útþynnta til­lögu Persaflóa­ríkja um að sér­hverju landi verði heim­ilt að beita her­valdi til að opna fyrir sigl­ingar um Hor­mússund. Olíuverð hefur snar­hækkað eftir að Íranir svo gott sem lok­uðu sund­inu eftir árásir Banda­ríkj­anna og Ísraels á landið.

Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu
Örygg­is­ráðið Lönd sem eiga fast sæti í örygg­is­ráð­inu – og þar með neit­un­ar­vald – hafa ekki verið á bandi Persaflóa­ríkj­anna í mál­inu. Mynd: EPA

Búist er við að örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greiði atkvæði í dag um útvatn­aða ályktun þar sem kallað er eftir því að Hor­mússund verði opnað. Tillagan er langt frá upp­haf­legu mark­miði Persaflóa­ríkj­anna sem standa að henni, um að fá heim­ild til að opna sigl­inga­leið­ina með valdi.

Atkvæða­greiðslan er áætluð klukkan þrjú í dag, þótt nið­ur­staðan sé ekki vís. Texti álykt­un­ar­innar hefur verið þynntur út und­an­farna daga í von um að koma í veg fyrir að henni verði hafnað. Í drögum sem AFP sá í gær er ekki lengur minnst á heim­ild til vald­beit­ingar – ekki einu sinni í varn­ar­skyni.

Atkvæða­greiðslan fer fram aðeins nokkrum klukku­stundum áður en frestur sem Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna gaf Íran til að að opna sundið eða eiga á hættu að banda­ríski her­inn eyði­leggi orku­ver og brýr lands­ins. Frest­ur­inn rennur út á mið­nætti. 

Stjórn­völd í Barein, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna og ann­arra olíu­út­flutn­ings­ríkja við Persaflóa, hófu samn­inga­við­ræður fyrir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár